Innlent | mbl | 6.9.2026 | 13:02 Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Magnús Benediktsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg/aðsend Setja bókamerki Áform um uppbyggingu á skíðasvæðinu í Skálafelli kunna að vera í uppnámi en samþykkt var á fundi samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins fyrir skemmstu að láta kanna hvort tilefni sé til að endurskoða samkomulag frá árinu 2018 um uppbyggingu á svæðinu. Samstarfsnefndin samþykkti á fundinum að óska eftir umræðu og ákvörðun frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um það hvort tilefni sé til endurskoðunar á samkomulaginu, bæði framkvæmdaáætlun og fjárhæðum sem þar eru. Skíðasvæðið í Skálafelli er lokað sem stendur þrátt fyrir að samkomulag hafi náðst um uppbyggingu á svæðinu árið 2018. Frétt af mbl.is Uppbygging gæti numið allt að 6 milljörðum Samræmist ekki áherslum sjálfstæðismanna Magnús Benediktsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi, benti á það í bókun sinni að áætlaður kostnaður vegna uppbyggingar á svæðinu væri þó nokkrir milljarðar. Sjálfstæðismenn eru í meirihluta í samstarfsnefndinni og segir Magnús að fyrirhuguð uppbygging á Skálafelli samræmist ekki þeim áherslum sem flokkurinn hefur staðið fyrir. Allra síst í ljósi aðstæðna sem nú eru í samfélaginu. Segir Magnús um gæluverkefni að ræða. Nú þegar sé rekið stórt skíðasvæði og engin ástæða sé til þess að reka annað af sömu stærðargráðu. Magnús segist hafa svarið kjósendum sínum og íbúum á Seltjarnarnesi þann eið að að fara vel með skattfé og forgangsraða rétt. „Að svo stöddu tel ég að stöðva þurfi frekari uppbyggingu á Skálafelli. Þar að auki þarf að endurmeta verkefnið algjörlega frá grunni áður en ráðist verður í frekari fjárfestingar,“ segir í bókun Magnúsar. Krefst þess að staðið verði við samkomulagið Þrátt fyrir bókun Magnúsar og að samþykkt hafi verið að kanna hvort tilefni sé til endurskoðunar virðist ekki einhugur innan nefndarinnar um að hætta við uppbygginguna. Valdimar Birgisson, varabæjarfulltrúi Viðreisnar í Mosfellsbæ, lagði til að mynda fram bókun þar sem hann lagði áherslu á að staðið yrði við uppbygginguna. „Fulltrúi Mosfellsbæjar gerir kröfu um að staðið verði við þetta samkomulag og Skálafell verði opnað sem fyrst,“ segir í bókun Valdimars. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Infantino í furðulegu viðtali Everton – Man. Utd, staðan er 0:0 Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Fylkir fékk sekt – „Drepum alla í Mosó“ Funduðu með Pútín í gær og með Selenskí í dag Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Neikvætt eigið fé Heimildarinnar Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Bilun í kerfi Teya Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Mest lesið Í gær Í vikunni Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Trúbadorinn þurfti sveitina í lífið Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Einn fær 800 þúsund Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Nýjast á mbl.is » Infantino í furðulegu viðtali Everton – Man. Utd, staðan er 0:0 Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Fylkir fékk sekt – „Drepum alla í Mosó“ Funduðu með Pútín í gær og með Selenskí í dag Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Margir Íslendingar vilja ekki leysa ráðgátuna“ Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Mest lesið Í gær Í vikunni Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Trúbadorinn þurfti sveitina í lífið Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Einn fær 800 þúsund Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi