Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Á batavegi eftir alvarlegt bílslys í Mývatnssveit

Read Full Article →

Erlendir ferðamenn sem lentu í alvarlegu bílslysi í Mývatnssveit í fyrradag eru útskrifaðir af sjúkrahúsi og á batavegi. Þetta staðfestir lögreglan á Norðurlandi eystra og segir rannsókn á tildrögum slyssins langt komna. Tveir voru í bílnum, karl og kona, og var annað þeirra klippt úr bílnum með björgunarklippum eftir að bíll þeirra fór út af vegi við Mývatn og lenti harkalega. Þau voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku á Akureyri. Lögregla segir meiðsl þeirra hafa virst alvarleg á vettvangi, en svo reynst minni en talið var. Akstursskilyrði voru erfið í Mývatnssveitinni á þriðjudag að sögn lögreglu, krapi, snjór og bleyta var á veginum og hvasst.

Share this article