Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Umferðarslys í Mývatnssveit

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Um­ferð­ar­slys í Mý­vatns­sveit Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Þrír hlutu minniháttar meiðsl þegar tveggja bíla árekstur varð á Þjóðvegi 1 við Vindbelgjarfjall í Mývatnssveit. Annar bílanna hafnaði utan vegar og valt á hlið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Tveir slökkviliðsbílar fóru á vettvang vegna þess að margir vettvangsliðar eru í slökkviliðinu, segir fulltrúi lögreglu. Lögregla stöðvaði umferð í skamma stund á meðan bílarnir voru dregnir af vettvangi. Þeir voru báðir óökuhæfir eftir slysið. RÚV / Bjarni Rúnarsson Fyrir 56 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump: „Klúðr­um þessu ekki!“ Donald Trump er gagnrýninn á árásir Ísraels á Beirút í morgun. Þær setji friðarviðræður í uppnám. Hann biðlar til allra sem koma að málinu að halda að sér höndum og klúðra ekki tækifærinu á friði. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Ná þeir minnstu og elstu að stöðva Þjóð­verja? Mögu­lega Í dag eru fjórir leikir á dagskrá á HM karla í fótbolta. Hér fylgjumst við með leikjum Þýskalands gegn Curacao, sem hófst klukkan 17:00, og leik Hollands og Japans, sem hefst klukkan 20:00. Staðan er 1-1 um miðjan fyrri hálfleik. Þýskaland komst yfir snemma leiks en Curacao menn náðu að jafna metin. Curacao sló met Íslands sem fámennasta þjóð í sögu HM og þjálfari liðsins, Dick Advocaat, verður í dag sá elsti í sögunni. Við hitum upp fyrir leikina og fylgjumst með gangi mála í lifandi leikdagsvakt. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Eig­andi Exit segir lok­un­ina ólög­mæta Eigandi skemmtistaðarins Exit sem lögregla lokaði um helgina segir aðgerðir lögreglu ólögmætar. Lögmaður félagsins fari yfir málið auk þess sem aðkomu SVEIT hafi verið óskað. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Sig­ur­gleð­in fór úr bönd­un­um Stuðningsmenn New York Knicks slepptu fram af sér beislinu í fagnaðarlátum eftir að liðið vann sinn fyrsta meistaratitil í áratugi. Nokkrir fóru þó yfir strikið. Táningur særðist í skothríð og skemmdir voru unnar á bílum. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Formúla 1 Sá sig­ur­sæl­asti náði í sinn fyrsta sigur með þeim sig­ur­sæl­ustu Lewis Hamilton, sigursælasti ökuþór sögunnar í Formúlu 1, vann í dag sinn fyrsta sigur fyrir Ferrari. Þetta var tilfinningaþrungin stund fyrir hinn 41 árs gamla Hamilton, en þetta er hans fyrsti sigur í keppni í tæp tvö ár. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Árekst­ur við Hafn­ar­braut í Kópa­vogi Ragnhildur Helgadóttir Árekstur varð á Hafnarbraut á Kársnesi í Kópavogi fyrir skemmstu. Dælubíll og tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Talið er að tveir séu með minniháttar áverka. Annað farartækið er strætisvagn að sögn varðstjóra en enginn farþegi var um borð. Aðsend Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Golf Hulda Clara önnur ís­lenska konan til að vinna at­vinnu­mót Hulda Clara Gestsdóttir vann í dag Czech Ladies Challenge mótið á LET Access mótaröðinni. Þar með er hún önnur íslenska konan til að vinna atvinnumót í golfi. Hulda lék alla þrjá hringina á pari. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Greiða leigu þrátt fyrir mikið rask á starf­semi vegna myglu Ríkisstofnanir á Akureyri hafa verið á hrakhólum síðan mygla greindist í starfsstöðvum þeirra að Borgum vorið 2024. Starfsfólk hefur ýmist unnið heima eða í öðru húsnæði. Þrátt fyrir rask hefur leiga verið greidd að fullu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Laus af strand­stað við Akurey Farþegabáturinn Skúlaskeið strandaði við Akurey í morgun með sextán um borð. Báturinn losnaði þegar flæddi að síðdegis. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Árborg heldur aftur af gjald­skrár­hækk­un­um til að vinna gegn verð­bólgu Sveitarfélagið Árborg hefur ákveðið að hækka ekki gjaldskrár sínar í fjárhagsáætlun umfram 2,5% vegna ársins 2027. Bæjarstjórinn hvetur önnur sveitarfélög og ríkið til að gera slíkt hið sama til að draga úr verðbólgu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Stefnu­breyt­ing án umræðu mögu­leg upp­spretta ólgu innan Sam­fylk­ing­ar­inn­ar Stjórnmálafræðingur telur undirliggjandi ólgu í Samfylkingunni benda til þess að óánægja sé með fleira en bara útlendingamál innan flokksins. Stefnu flokksins hafi verið breytt mikið án umræðu eða formlegra ferla. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Bárð­ar­bunga eins og glas sem er orðið hálf­fullt Öflug jarðskjálftahrina varð í Bárðarbungu í gær og í nótt. Jarðeðlisfræðingur líkir öskju Bárðarbungu við glas sem er orðið hálffullt, og því sé ólíklegt að fari að gjósa þar í bráð. Náttúran eigi það þó til að koma á óvart. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Sex sjóð­heit­ir þættir til að horfa á í sól­inni Ekki er hægt að treysta á íslensku sumarsólina en í spilara RÚV má alltaf finna eitthvað fyrir alla, hvort sem það er dularfullt ástarævintýri, áratugagamlar ráðgátur, sameiginleg ást á kvikmyndum eða breskir grínarar sem villa á sér heimildum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Kín­verj­ar segja sjáv­ar­dýr notuð til njósna Þjóðaröryggisráðuneyti Kína heldur því fram að erlend ríki noti njósnaskjaldbökur og njósnafiska til að safna viðkvæmum gögnum um sjávarumhverfi á kínversku hafsvæði. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sviss Sviss­lend­ing­ar hafna 10 millj­óna til­lög­unni í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu Útgönguspár í Sviss gefa til kynna að landsmenn hafi hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu tillögu um að takmörk yrðu sett á íbúafjölda landsins, þannig að ekki mættu fleiri búa þar en tíu milljónir. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti „Svar­aði enginn“ þegar hann reyndi að hringja á sjúkra­bíl Maður sem þurfti að kalla til sjúkrabíl á Skagaströnd á föstudagsmorgun segir að hann hafi ekki náð sambandi við 112 þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar telur þetta mögulega skýrast af lokun 3G-farsímakerfisins. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Heilsa Í nammi­bind­indi í 14 ár Ólöf Rún Tryggvadóttir fór ekki hefðbundna leið að því að gerast frumkvöðull og fyrirtækjaeigandi. Hún hætti ung í skóla og stofnaði fjölskyldu en söðlaði síðar um og fór í háskóla fertug því hún þráði að stofna fyrirtæki og ráða sér sjálf. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Stærsti skjálft­inn mæld­ist 4,8 – enginn gos­órói Skjálftavirkni í Bárðarbungu hefur dvínað síðan í gærkvöld en stærsti skjálftinn var 4,8 að stærð. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Haítí–Skot­land Skotar unnu sinn fyrsta sigur á HM í 36 ár, eða frá HM 1990, þegar þeir unnu 0-1 sigur gegn Haítí. Mark John McGinn í fyrri hálfleik reyndist nóg. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía Nýr for­sæt­is­ráð­herra í Rúm­en­íu Forseti Rúmeníu útnefndi í morgun nýjan forsætisráðherra sem á að reyna að sefa pólitískan óróa sem verið hefur í landinu síðustu mánuði. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Ástr­al­ía–Tyrk­land Ástralir unnu frækinn 2-0 sigur gegn Tyrkjum í D-riðli á HM karla í fótbolta í nótt. Hér má sjá mörkin. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tekinn á 200 Ragnhildur Helgadóttir Lögregla stöðvaði allmarga ökumenn í nótt, að því er kemur fram í dagbók lögreglu, þar af sjö vegna ölvunaraksturs. Þá voru nokkrir kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem mældist á mestum hraða ók á 200 kílómetra hraða á klukkustund á götu þar sem hámarkshraði er 80. Tilkynnt var um innbrot í miðborginni og um tónlistarhávaða víða. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hitinn allt að 19 stigum Hiti gæti farið upp í 19 stig í dag. Hlýjast verður sunnan- og vestanlands. Vindátt er hæg og breytileg. 14. júní 2026 kl. 7:15ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Bretar stöðva rúss­neskt skip á Ermar­sundi Breski herinn stöðvaði olíuflutningaskip úr skuggaflota Rússa á siglingu um Ermarsundið í nótt. 14. júní 2026 kl. 6:16ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Ástr­al­ir lögðu Tyrki 2–0 Ástralir lögðu Tyrki 2–0 á HM í fótbolta í nótt. Tyrkir áttu 30 skot, þar af átta á markið, en góð vörn Ástrala tryggði þeim sigur. 14. júní 2026 kl. 6:00ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Þjóð­verj­ar mæta til leiks gegn minnstu þjóð­inni Heimsmeistaramót karla heldur áfram. Fjórir leikir eru á dagskránni í dag, til að mynda viðureign Þýskalands og Curaçao, fámennasta þjóð sem komist hefur á HM. Þá eigast Holland og Japan við og Svíar spila sinn fyrsta leik á mótinu. 14. júní 2026 kl. 5:48ERLENDAR FRÉTTIR Úganda Mót­mæla ferða­tak­mörk­un­um an­n­arra ríkja Stjórnvöld í Úganda gagnrýna ferðatakmarkanir sem mörg ríki hafa lagt á úganska borgara vegna ebóluveirunnar. Þau telja algjört ferðabann ekki í samræmi við raunverulega hættu af sjúkdómnum. 14. júní 2026 kl. 4:04ÍÞRÓTTIR Körfubolti Knicks er NBA-meist­ari New York Knicks er NBA-meistari í körfubolta í fyrsta sinn í 53 ár eftir stórkostlega endurkomu á útivelli í kvöld. Liðið var um tíma 16 stigum undir, en sneri leiknum sér í vil í síðasta leikhluta. 14. júní 2026 kl. 3:44ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Fyrsti HM-sigur Skota í 36 ár Skotar unnu 1–0 sigur á Haítí í fyrsta leik sínum á HM á þessari öld. 14. júní 2026 kl. 3:33ERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Hrina há­karla­árása í Ástr­al­íu Kona á fertugsaldri er í lífshættu eftir hákarlaárás á einni af vinsælustu ströndum Ástralíu í gær. Fjórir hafa orðið hákarli að bráð í landinu á þessu ári, sem er óvenju mikið. 14. júní 2026 kl. 2:26INNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Ein kröft­ug­asta hrinan í Bárð­ar­bungu frá gosinu 2014 Alexander Kristjánsson Veðurstofan hefur hækkað fluglitakóða fyrir Bárðarbungu upp í gulan. Þetta var gert skömmu fyrir klukkan eitt í nótt eftir mikla skjálftahrinu í norðanverðri öskju Bárðarbungu. Stærsti skjálftinn var klukkan 20:14 í kvöld, eða 4,8 að stærð. Síðan þá hafa um 250 eftirskjálftar mælst, þar af ellefu yfir þremur að stærð. Enginn gosórói mælist þó. Síðast gaus úr eldstöðvakerfi Bárðarbungu sumarið 2014. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að hrinan nú sé ein sú kröftugasta frá

Share this article