Fram undan eru tveir mikilvægir heimaleikir hjá kvennalandsliðinu í fótbolta. Fyrst er það Úkraína á þriðjudag og svo England á laugardaginn eftir viku. Linda Líf Boama kemur inn í hópinn í fyrsta sinn. Linda Líf er sóknarmaður og hún gekk í raðir Kristianstad í Svíþjóð í vetur. Áður lék hún með Víkingum í Bestu deildinni og varð bikarmeistari með liðinu 2023. „Það er bara geggjað að mæta aftur á Laugardalsvöll. Ég á náttúrulega góðar minningar þaðan úr bikarnum svo ég er bara spennt að mæta þangað aftur.“ Tveir mikilvægir leikir bíða íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta nú á dögunum í undankeppni HM 2027. Linda Líf Boama er nýliði í íslenska hópnum. Hún kemur með gott sjálfstraust inn í verkefnið eftir góða byrjun hjá Kristianstad í Svíþjóð. „Þetta er mikill heiður og ég er klár í þetta. Sama hvaða hlutverk ég fæ þá er ég klár. Sem sóknarmaður er alltaf gott að hafa gott nesti með sér. Ég byrjaði sænsku deildina mjög vel. Það er alltaf gott að vera með kassann úti.“ Á fyrstu tveimur leikjum tímabilsins með Kristianstad skoraði Linda tvö mörk og til viðbótar átti hún eina stoðsendingu. Glöð í Íslendingaliði Kristianstad Þá segist Linda afar ánægð í Svíþjóð. „Þegar manni líður vel, þá gengur líka yfirleitt vel. Klúbburinn er frábær og bærinn er frábær.“ Lið Kristianstad er ríkt af Íslendingum því landsliðskonurnar Alexandra Jóhannsdóttir og Guðný Árnadóttir eru liðsfélagar Lindu í Kristianstad. Þá er Elísa Lana Kristjánsdóttir í liðinu. „Ég er með Alex og Guðnýju, Elísu og fleiri, ég gæti haldið áfram að telja, þetta er fjöldi manns og allir frábærir.“