Elín Klara Þorkelsdóttir, landsliðskona í handbolta, spilaði sitt fyrsta tímabil með Sävehof í Svíþjóð í vetur. Óhætt er að segja að hún hafi komið inn af krafti því hún varð sænskur meistari með liðinu og valin besti leikmaður deildarinnar. „Ég var ekkert að búast við því að þetta myndi ganga svona vel. Maður er bara að venjast umhverfinu, flytja að heiman í fyrsta skipti og í nýtt land, nýtt lið. Það er margt sem spilar inn í. Svo mætir maður út og er að spila á móti og með sterkari leikmönnum og það gerir mann betri fyrir vikið.“ Elín Klara segir að hlutirnir ytra hafi smollið eftir Evrópumótið með landsliðinu síðasta vetur. „Þetta var alveg krefjandi. Maður saknaði fjölskyldunnar og vina. En ég myndi segja að eftir jól, eftir stórmótið í desember, þá fannst mér ég finna mig betur. Þá leið mér betur bæði innan og utan vallar.“ Landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir átti afar gott tímabil með Sävehof þar sem hún var valin besti leikmaður sænsku deildarinnar. Þetta var fyrsta tímabil Elínar Klöru í atvinnumennsku. Heiðurinn mikill Hún segir það mikinn heiður að hafa verið útnefnd besti leikmaður deildarinnar. „Það er mikil hvatning og ótrúlega skemmtilegt. Það er mikið af mjög sterkum leikmönnum í deildinni og þess vegna er þetta mikill heiður.“ Elín Klara er 21 árs. Hún gerði samning við Sävehof til þriggja ára en hugsar jafnframt stærra og lengra. „Mér finnst þetta hafa verið mjög gott skref frá Íslandi að fara til Svíþjóðar. Ég hugsa þetta í litlum skrefum. Ég held að það sé fínt að taka ekki of stór skref í einu. Auðvitað langar mann bara að fara alla leið og það er markmiðið.“ Leikmenn leita út og það styrkir landsliðið Elín Klara hefur spilað stórt hlutverk með landsliðinu og segir það jákvætt fyrir liðið hve margir leikmenn hafi stigið út í atvinnumennsku eða séu á leið út. Thea Imani Sturludóttir er á leið til SCM Craiova í Rúmeníu, Katrín Tinna Jensdóttir fer til HH Elite og Alfa Brá Oddsdóttir hefur gert samning við Thüringer HC í Þýskalandi svo dæmi séu tekin. „Það eru enn fleiri leikmenn að fara út og margir efnilegir leikmenn að koma upp hérna heima. Ég fylgist líka mikið með deildinni. Ég held að við verðum enn sterkari ef við fáum fleiri leikmenn út að spila í hraðari og betri deildum.“