Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Golli tók myndir ársins 2025

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.4.2026 | 15:30 Golli tók myndir ársins 2025 Myndin sýnir fyrstu stundina í sögu Íslands þegar fjórar helstu valdastöðurnar voru allar í höndum kvenna: Halla Tómasdóttir forseti, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Guðrún Karls Helgudóttir biskup. Ljósmynd/Golli Setja bókamerki Blaðaljósmyndarafélag Íslands veitti í dag Kjartani Þorbjörnssyni, betur þekktum sem Golla, ljósmyndara Heimildarinnar, verðlaun fyrir fréttamynd ársins og mynd ársins. Verðlaunin voru afhent í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag. Í dómnefndinni voru Árni Torfason, Arnaldur Halldórsson, Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir og Mads Nissen, þrefaldur World Press Photo vinningshafi, sem var formaður dómnefndar. Á ljósmyndasýningunni Myndir ársins 2025 eru 104 myndir frá sextán blaðaljósmyndurum sem valdar voru úr rúmlega 600 hundruð innsendum myndum. Átján ljósmyndarar sendu inn myndir til dómnefndar og mátti hver eingöngu senda inn 66 myndir. Á sýningunni eru myndirnar í sex flokkum: fréttamyndir, daglegt líf, íþróttamyndir, portrettmyndir, umhverfismyndir, og myndaraðir. Í ár veitti dómnefndin verðlaun fyrir bestu fréttamynd ársins og fyrir mynd ársins 2025, en að þessu sinni varð myndröð fyrir valinu í þeim flokki. Í umsögn dómnefndar segir um mynd ársins: „Sigurvegari í flokknum mynd ársins er einstakt rannsóknarverk sem minnir okkur á að á bak við skrifræðiskerfi samfélagsins leynast alltaf raunveruleg mannslíf. Í sífellt flóknari heimi, þar sem fréttirnar buna áfram og stjórnmálin snúast hraðar og hraðar, eru sinnuleysi og kaldhæðni alltaf í nánd að leita færis. Það getur virst ómögulegt að skilja heiminn. Áreitið er stöðugt. Það er svo auðvelt að gefast upp. En saga Oscars gerir það ómögulegt að vera sama. Alþjóðastjórnmál birtast hér í lífi einnar ungrar manneskju. Við erum nærri þegar örlög hans eru mótuð og ráðin. Stefna í málefnum útlendinga, sem ætlað er að vernda Ísland, mætir skyndilega veruleikanum – þar sem samfélag tekur höndum saman í verndarskyni. Til að vernda Oscar. Í sundurleitum heimi er dómnefndin ekki að verðlauna eina glæsilega mynd, heldur rannsóknarmyndaröð. Samkenndin og nærveran í myndunum hittir okkur í hjartastað og dregur okkur inn í ferðalag sem vekur opinskátt spurningar um grunngildi Íslands og framtíðina sem við deilum saman.“ Ein af myndunum í flokknum mynd ársins. Ljósmynd/Golli Ein af myndunum í flokknum mynd ársins. Ljósmynd/Golli Ein af myndunum í flokknum mynd ársins. Ljósmynd/Golli Í umsögn dómnefndar um fréttamynd ársins: „Margir þurfa tíma til að átta sig á sögunni, þurfa baksýnisspegil til að átta sig á því sögulega eða umbreytandi andartaki sem átti sér stað fyrir framan þá. En framúrskarandi ljósmyndari er öðruvísi. Hann sér andartakið fyrir. Berst til að koma sér í rétta stöðu. Og bíður þolinmóður þangað til stundin rennur upp og rétt er að smella af. Þessi sögulega stund, sem hlaut verðlaunin Fréttamynd ársins 2025, á sér langan aðdraganda. Myndin sýnir fyrstu stundina í sögu Íslands þegar fjórar helstu valdastöðurnar voru allar í höndum kvenna: Halla Tómasdóttir forseti, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Guðrún Karls Helgudóttir biskup sitja fyrir á sjálfsmynd sem virðist tekin í hita augnabliksins. Við þekkjum öll sjálfuna, hversdagslega athöfn sem endurtekur sig endalaust – óformleg, næstum kjánaleg – en þessar fjórar konur virðast engu að síður vera meðvitaðar um það afar táknræna og sögulega andartak sem þær eru hluti af. Að bak við brosið séu þær þarna sem fulltrúar harðrar aldalangrar baráttu fyrir jafnrétti kvenna sem er hvergi lokið.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ellefu framboðslistar á kjörseðlum borgarbúa Ari hetjan í Svíþjóð Golli tók myndir ársins 2025 Liverpool – Fulham kl. 16.30, bein lýsing Victor Wembanyama stórkostlegur Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Aðgerðunum fálega tekið Andlát: Elva Dagmar Simundsson Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Gæsluvarðhaldskröfu hafnað Starfsfólk Norðuráls fær undanþágu í göngin Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Nýjast á mbl.is » Ellefu framboðslistar á kjörseðlum borgarbúa Ari hetjan í Svíþjóð Golli tók myndir ársins 2025 Liverpool – Fulham kl. 16.30, bein lýsing Victor Wembanyama stórkostlegur Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Geimfarið lenti án vandræða Aðgerðunum fálega tekið Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Aðgerðunum fálega tekið Andlát: Elva Dagmar Simundsson Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Gæsluvarðhaldskröfu hafnað Starfsfólk Norðuráls fær undanþágu í göngin Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi

Share this article