Ljósmyndasería Kjartans Þorbjörnssonar, Golla, sem sýnir frá daglegu lífi Oscars Andres Bocanegra Florez var valin mynd ársins af dómnefnd Blaðaljósmyndarafélags Íslands. Golli vann einnig í flokki fréttamynda ársins. Sigurmyndin sýnir þær Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra Reykjavíkur, Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, Guðrúnu Karls Helgudóttur biskup Íslands og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Verðlaunin voru afhent í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag, við opnun sýningarinnar Myndir ársins 2025. Myndirnar á sýningunni eru 104 frá 16 blaðaljósmyndurum. Þær voru valdar úr rúmlega 600 innsendum myndum. Átján ljósmyndarar sendu inn myndir til dómnefndar og mátti hver ljósmyndari senda inn 66 myndir. Dómnefndarstörf fóru fram í febrúar. Í dómnefnd sátu: Árni Torfason, Arnaldur Halldórsson, Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir og Mads Nissen, þrefaldur World Press Photo-vinningshafi sem var formaður dómnefndar. Eins og áður segir var ljósmyndaröð Golla þar sem Oscari Andres Bocanegra Florez var fylgt eftir valin mynd ársins. Mikið var fjallað um mál Oscars í fjölmiðlum í fyrra. Til stóð að flytja hann úr landi eftir að honum var synjað um alþjóðlega vernd af bæði Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Brottvísuninni var harðlega mótmælt. Útlendingastofnun frestaði brottvísun vegna upplýsinga frá Víði Reynissyni formanni allsherjarnefndar um að það stæði til að veita Oscari ríkisborgararétt, sem hann svo hlaut síðasta sumar. Hér fyrir neðan má sjá verðlaunamyndröð Golla: