- What: Discussion on Iceland's role in international development aid
- Impact: Concerns about meeting international commitments
Framkvæmdastjóri Barnaheilla segir að Ísland ætti að sýna fordæmi og standa við alþjóðlegar skuldbindingar í þróunarsamvinnu. Þróunaraðstoð hefur dregist mikið saman undanfarið því mörg ríki hafa dregið úr framlögum. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi verður heildarfjárheimild til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu hækkuð um rúmlega 1,3 milljarða króna frá því í fyrra. „Það segir nefnilega ekki alla söguna,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. „Þó að við fögnum auðvitað því að við séum að hækka í krónutölu, þá erum við langt frá þeim markmiðum sem þingið setti sér að stefna á í þróunarsamvinnu. Þannig að gatið er í rauninni að breikka þó að krónutalan sé að hækka.“ Þrátt fyrir smæð sé Ísland mikilvægur hlekkur í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Mikilvægt sé að sýna fordæmi og tala fyrir því að efla þróunaraðstoð fremur en að draga saman seglin. „Þróunar- og mannúðaraðstoð er ekki það sama og góðgerðarmál. Þetta er fjárfesting í stöðugleika, friði og mannréttindum,“ segir Tótla. „Þegar við hjálpumst ekki að og útrýmum ekki óstöðugleika og faröldrum þá verður heimurinn bara miklu hættulegri. Þetta er það sem við höfum séð ýta undir flótta, efnahagslegar krísur, átök og hungursneyðar og þetta eru vandamál sem haldast ekki bara á einum stað. Þetta kemur niður á öllum. Í grunninn er þetta kjarnaöryggismál að þróunar- og mannúðaraðstoð sé sinnt.“ Ísland langt frá alþjóðamarkmiði Ísland sé þar að auki að fjarlægjast markmið um að verja 0,7% af vergum þjóðartekjum til þróunaraðstoðar í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. „0,7% markmiðið virðist vera mjög langt í burtu. Við erum í rauninni að fara úr þessum 0,35% sem við höfum hangið í heillengi niður í 0,3%. Þannig að við erum í rauninni í öfugri þróun.“ Þónokkur ríki hafa dregið úr framlögum til þróunaraðstoðar, til að mynda Bretland, Frakkland, Þýskaland og Svíþjóð. Mestu munar að Bandaríkin hafa dregið verulega úr. Tótla segir að Ísland ætti að berjast gegn þeirri þróun. „Götin sem eru að myndast hafa gígantíska höggbylgju í gegnum heiminn. Þegar við erum að sjá aðila draga sig út án nokkurs fyrirvara. Þá auðvitað er spurning um okkar ábyrgð líka, hvar við ætlum að standa.“ Fjallað var um stöðu þróunaraðstoðar í heiminum í Heimskviðum um síðustu helgi og rætt við framkvæmdastjóra Mannfjöldastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Ísland er að fjarlægjast alþjóðleg markmið um þróunaraðstoð á sama tíma og stór ríki draga saman seglin, segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. Hún segir að Ísland ætti að taka afstöðu og sýna fordæmi í þessum efnum.