- What: The Icelandic Sports Association has signed agreements to improve sports opportunities, especially in rural areas.
- Impact: The agreements involve a total funding of approximately 1.8 billion Icelandic króna.
Innlent | mbl | 11.2.2026 | 21:21 Willum: Mikilvægt fyrir alla íþróttahreyfinguna Willum Þór Þórsson og Inga Sæland fyrr í dag. mbl.is/Eyþór Willum Þór Þórsson, forseti Íþróttasambands Íslands, segir samninga sem undirritaðir voru fyrr í dag og snúa að því að leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs vera mikilvæga fyrir íslensku íþróttahreyfinguna. Inga Sæland undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra. Með samningunum er lögð áhersla á að bæta og jafna tækifæri fólks til íþróttaiðkunar, einkum á landsbyggðinni, og að styðja betur við afreksíþróttafólk. Heildarfjárframlagið í samningunum fimm nemur samtals um 1,8 milljörðum króna. Inga Sæland og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ. mbl.is/Eyþór Sýni vilja til að halda forvarnargildi íþrótta á lofti „Þetta er mjög mikilvægt fyrir okkur öll. Það er líka gott að finna hug og hjarta ráðherrans í þessum málaflokki,“ segir Willum Þór í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Hann bendir á að löngu sé búið að sýna fram á forvarnargildi íþróttahreyfingarinnar, þá sérstaklega í uppvexti barna- og unglinga. Samningar sem undirritaðir voru fyrr í dag séu til staðfestingar á þeim vilja til að halda þeim gildum á lofti og gera áfram vel. Inga og Þórður Árni Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra, undirrita samning. mbl.is/Eyþór „Þá munum við eignast öflugra og sterkara afreksfólk“ „Þarna er líka inni aukinn stuðningur við afreksfólkið okkar sem sprettur auðvitað af grasrótarstarfinu þannig ef við vöndum okkur áfram og leggjum auknar áherslur á forvarnar- og lýðheilsustarf, og það að börnin okkar og unglingar geti stundað íþróttir og fundið sína hillu, óháð efnahag, þá munum við eignast öflugra og sterkara afreksfólk inn í framtíðina,“ segir Willum að lokum. mbl.is/Eyþór Willum: Mikilvægt fyrir alla íþróttahreyfinguna Með Icelandair á nyrsta McDonald's heims Lygileg endurkoma Njarðvíkur Forsætisráðherra og Seðlabankinn tala í kross Inga tekur fimm með sér úr félagsmálaráðuneytinu ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert Veruleg fjölgun í íslenskum málum hjá Eurojust „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Aðstæður stofni sjúklingum og starfsfólki í hættu Mestu vonbrigðin í forstjóratíð Runólfs Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Willum: Mikilvægt fyrir alla íþróttahreyfinguna Með Icelandair á nyrsta McDonald's heims Lygileg endurkoma Njarðvíkur Forsætisráðherra og Seðlabankinn tala í kross Inga tekur fimm með sér úr félagsmálaráðuneytinu ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ „Forsætisráðherra er bara að ljúga að þjóðinni“ Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar