Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Búa sig undir tvær myrkar mínútur

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 14.4.2026 | 12:12 Búa sig undir tvær myrkar mínútur Ferðamenn við Rif á Snæfellsnesi síðasta sumar, í ákjósanlegu veðri fyrir almyrkva. En nú gildir óvissan ein. mbl.is/Eggert Skúli Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Það verður ekki einungis á bílum sem ferðamenn eiga eftir að streyma að vestustu oddum landsins miðvikudaginn 12. ágúst. Fyrir liggur að þangað mun fjölda skemmtiferðaskipa stefnt sömuleiðis. Mörg leggja þau að landi jafnvel áður en sól rís þennan sama dag, einmitt fyrir þær sakir að hennar verður þar ekki notið í eins og tvær mínútur síðdegis. Runólfur Þórhallsson, sem stýrir almannavörnum ríkislögreglustjóra, kynnti fyrstu áætlanir lögreglu á opnum fjarfundi í gær fyrir ferðaþjóna í þeim landshlutum þar sem almyrkvann ber fyrir. Þar eru undir Reykjanesskagi, Vesturland, Snæfellsnes og Vestfirðir. Talið er að ferðamenn muni sækja mest á Snæfellsnes og Vestfirði, þar sem myrkvans gætir lengst. Sumir ferðamanna muni koma sér fyrir með nokkurra daga fyrirvara og einhverjir þeirra hafi jafnvel bókað gistingu fyrir fram á nokkrum stöðum. Þá sé viðbúið að gengið verði á fjöll á borð við Snæfellsjökul til að njóta myrkvans þaðan. Allt er þetta þó veðri háð. 45 km ómalbikaður vegur „Veðurspá mun hafa töluverð áhrif,“ sagði Runólfur á fundinum. Skapast kunni slíkt ástand að ferðamenn muni margir vilja færa sig um set með litlum fyrirvara. „Það mun hafa mikil áhrif á umferðina og umferðarskipulagið,“ bætti hann við. Allt í allt þykir ljóst að tugþúsundir erlendra og innlendra ferðamanna muni þarfnast ýmist gistingar, veitinga eða salernisaðstöðu. Gagnvart Íslendingum á suðvesturhorni landsins sagði Runólfur að kjarnaskilaboð yfirvalda yrðu einföld: Njóta megi myrkvans án þess að ferðast nokkuð. „Það er mikilvægt að benda á það að íbúar á til dæmis höfuðborgarsvæðinu geta notið þessa atburðar í garðinum heima hjá sér eða á einhverjum útsýnisstöðum á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði hann. „En við þekkjum það nú vel að þótt það komi einhver tilmæli frá stjórnvöldum munu svæðin, þá helst þarna fyrir vestan, draga að sér. Fólk mun sækja í það að fá sem mest út úr þessum atburði,“ bætti hann við en sagði að halda þyrfti því á lofti að sjá mætti myrkvann víðar. „Þetta snýst ekki allt saman um að koma öllum á Látrabjarg. Það er ekki hægt. Heldur að reyna að hafa eins mikil áhrif á ferðaákvarðanir og mögulegt er, án þess að fara út í of mikla forræðishyggju hvað það varðar.“ Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, tók einnig til máls og varpaði ljósi á hvað við er að glíma í umdæminu. Helst er þá horft til þess að mikill fjöldi vilji leggja leið sína að Látrabjargi til að berja myrkvann augum sem lengst. Þangað liggur 45 kílómetra langur vegur frá botni Patreksfjarðar, ómalbikaður með öllu, mjór á köflum og brattur. „Það eru ýmsar áskoranir,“ sagði Hlynur og nefndi að veðurfar dagana á undan hefði áhrif á ástand vegarins þennan dag. Lögreglan gerir ráð fyrir því að stýra umferð inn á veginn þannig að einstefna verði út að bjarginu fyrir myrkvann og öfugt að honum loknum. Ekki verði í boði að leggja á veginum. „Við erum að meta það með Vegagerðinni og öðrum hversu margir bílar komast inn á þennan legg,“ sagði Hlynur. „Þannig að á einhverjum tímapunkti verður bara uppselt út á þennan vegarkafla.“ Þá verði veginum upp á Bolafjall lokað fyrir almenna umferð en hægt verði að fara þangað með rútum. Í umdæminu öllu gerir lögreglan ráð fyrir að vera með átta áhafnir lögregluþjóna þennan dag, jafnvel í þrjá daga fyrir og svo daginn eftir, sagði Hlynur. „Við eigum von á aðstoð frá Vegagerðinni, björgunarsveitum og öðrum, til að tryggja að allt fari vel.“ Fá útihátíð ofan í myrkvann Enn fleiri lögregluþjónar verða á vakt á Vesturlandi. „Við verðum með tólf bíla, sem sagt tólf áhafnir, á þessum svæðum,“ sagði Jónas Hallgrímur Ottósson aðstoðaryfirlögregluþjónn. „Alveg norður í Búðardal en svo er náttúrulega megináherslan á Snæfellsnesið.“ Fastir póstar verða á gatnamótum við Vatnaleiðina og við veginn yfir Fróðárheiði, en hreyfanlegt eftirlit frá Búðum að Hellissandi, þar sem búist er við mesta álaginu að sögn Jónasar. Hyggst lögreglan setja einstefnu fyrir Nesið, frá Hellissandi og að Búðum. „En við verðum líklega að hafa tvístefnu frá Hellissandi að Ólafsvík, þar sem ofan í þetta fáum við síðan nokkur þúsund manna útihátíð sem stendur í viku,“ sagði Jónas. „Og svo til þess að tryggja að við séum búin undir það að fjarlægja bíla sem verða skildir eftir við vegi verðum við með kranabíla sem munu fjarlægja þá bíla, eða setja þá út fyrir veg, sem trufla umferð.“ Brúðkaup og samkvæmi Á Suðurnesjum ætlar lögreglan að fyrirskipa einstefnu í austurátt um Vatnsleysustrandarveg, og um Ósabotnaveg í norðurátt, sagði Arnar Steinn Elísson, almannavarnafulltrúi lögreglunnar þar. Lögreglan verður þá sérstaklega viðbúin í Höfnum, við Reykjanestá og í Grindavík. „Það sem er kannski öðruvísi við okkur á Reykjanesi, miðað við það sem er að gerast á Vestfjörðum og Vesturlandi, er það að innviðirnir eru nú þokkalega góðir hjá okkur, fyrir utan þessa tvo vegi sem eru einbreiðir á köflum.“ Sagði hann lögreglu búast við stóru samkvæmi við Kaffi Golu, sem stendur við Hvalsneskirkju, eða allt að tólf hundruð manns. Eins er búist við fjölda manns á Garðskaga. Arnar lýsti áhyggjum af Vigdísarvallaleið, þar sem lögregla ætli að setja á svokallaða mjúka lokun. „Þar sem hún er ekki fær öllum ökutækjum yfir sumarið. Og hvað þá ef það verður rigning, eins og er náttúrulega aldrei á Reykjanesi,“ bætti hann við í gamni. Við þennan sama veg hafa útlendingar einnig boðið til brúðkaups. „Það verður einhver mannfjöldi í kringum það.“ Alls verði á svæðinu 40 lögregluþjónar, 40 slökkviliðsmenn og 35 björgunarsveitarmenn, auk þriggja björgunarstjóra og tveggja vettvangsstjórna. Fyrst og fremst hafi lögregla áhyggjur af miklu streymi fólks frá höfuðborginni. „Við munum auka viðbragðið okkar á Reykjanesbraut og reyna að halda henni eins góðri og mögulegt er, því við erum á háannatíma á flugvellinum akkúrat á þessum dögum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Starf Arteta í hættu Samfelldar upplýsingar um stöðu barna aðgengilegar Frosti Logason sameinar tvö fyrirtæki Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Búa sig undir tvær myrkar mínútur Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum „Teljum okkur vera komna með skýra mynd af atburðarásinni“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Lést eftir fall í Ölfusá Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Hagur verkafólks að standa utan ESB Lögregla setur einstefnu á valda vegi Krefur ráðherra svara um ESB-aðlögun Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Þjónusta milljónir manna í Kína Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Þekkt leikkona styður Grindavík Nýjast á mbl.is » Starf Arteta í hættu Samfelldar upplýsingar um stöðu barna aðgengilegar Frosti Logason sameinar tvö fyrirtæki Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Búa sig undir tvær myrkar mínútur Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaus í fyrsta skipti 63 ára Lofað upp í ermina á Alþingi Kristrún staðið sig best en Inga verst Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Lést eftir fall í Ölfusá Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Hagur verkafólks að standa utan ESB Lögregla setur einstefnu á valda vegi Krefur ráðherra svara um ESB-aðlögun Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Þjónusta milljónir manna í Kína Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta

Share this article