Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Best að vera heima yfir almyrkvann – Annars gott að undirbúa sig vel

Read Full Article →

Búast má við umferðartöfum víða á vestanverðu landinu á miðvikudag vegna almyrkva á sólu. Fólk er hvatt til að njóta myrkvans að heiman. Standi til að ferðast er mikilvægt að undirbúa ferðalagið vel og reikna með töfum. Aðeins tveir dagar eru þar til almyrkvi á sólu verður sjáanlegur á vestanverðu landinu. Skyggni verður einna best á Vestfjörðum samkvæmt veðurspám. Almannavarnir hvetja fólk til að fylgjast með myrkvanum að heiman. Leggi það í ferðalög sé mikilvægt að skipuleggja þau vel og reikna með töfum í þjónustu og á umferð. „Mikill umferðaþungi“ „Okkar skilaboð hafa verið hingað til og verða áfram að njóta þessa viðburðar heima hjá sér og sérstaklega á stóru þéttbýlissvæðunum á vesturhluta landsins,“ segir Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. „Ef fólk hyggur á ferðalag á morgun eða á miðvikudaginn sjálfan er ráð að huga vel að því að leggja snemma af stað, vera vel undirbúin, gera ráð fyrir því að á þjónustu á Vestfjörðum og að einhverju leyti á Vesturlandi líka, Snæfellsnesi, geti orðið biðraðir. Það geta orðið umferðartafir og mikill umferðarþungi.“ Nokkrum vegum á vestanverðu landinu verður lokað eða umferð stýrt. Almannavarnir hvetja fólk til að kynna sér vel umferðarskipulag á Ísland.is , vef Vegagerðarinnar eða Sólmyrkvi2026.is . Aukinn viðbúnaður á Suðurnesjum Lögregla, björgunarsveitir og slökkvilið á Suðurnesjum verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans. Í tilkynningu lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að aðgerðastjórn verði virkjuð í Reykjanesbæ og að þrjár vettvangsstjórnir verði starfræktar á svæðinu. Þeir sem hyggjast ferðast um Reykjanes eru hvattir til að leggja snemma af stað og gera ráð fyrir að dvelja lengur á áfangastað en áformað er. Gott er að hafa mat, drykk og lyf meðferðis þar sem til tafa getur komið.

Share this article