Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Lagt til að Sigurjónssafn fái styttu Friðriks til afnota

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.4.2026 | 14:20 Lagt til að Sigurjónssafn fái styttu Friðriks til afnota Stuttan af sr. Friðriki Friðrikssyni stóð við Lækjargötu áður en hún var tekin niður. mbl.is/Hákon Pálsson Setja bókamerki Á fundi borgarráðs í gær var lögð fram tillaga þess efnis að Listasafn Sigurjóns Ólafssonar fái styttu af sr. Friðriki Friðrikssyni til afnota. Afgreiðslu tillögunnar var frestað á fundinum. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi, í pontu í Ráðhúsinu. mbl.is/Árni Sæberg Tillagan, sem Kjartan Magnússon borgarfulltrúa, lagði fram hljómar svo: „Lagt er til að samið verði við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar um að safnið fái afnot af styttu Sigurjóns Ólafssonar af séra Friðriki Friðrikssyni æskulýðsleiðtoga, sem nú er hýst í lokaðri listaverkageymslu Listasafns Reykjavíkur. Um lánsafnot verði að ræða.“ Í greinargerð með tillögunni segir: „Borgarráð Reykjavíkur samþykkti hinn 23. nóvember 2023 að listaverkið ,,Séra Friðrik og drengurinn", stytta af séra Friðriki Friðrikssyni, sem staðið hafði við horn Lækjargötu og Amtmannsstígs frá árinu 1955, yrði tekin af stalli og úr almannarými og flutt í geymslur Listasafns Reykjavíkur. Hinn 1. desember 2023 gerði Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara og höfundar umrædds listaverks, tilkall til styttunnar og óskaði eftir því að fá hana afhenta. Tilkallið var gert eftir að styttan hafði verið tekin af stalli og flutt í lokaða geymslu. Tilkallið var rökstutt með því að um væri að ræða einstakt verk eftir Sigurjón og hafi hann lagt mikið til við gerð hennar. Á fundi borgarráðs 1. febrúar 2024 var beiðni Birgittu Spur um tilkall til styttunnar hafnað með vísan í umsögn Listasafns Reykjavíkur um málið frá 18. desember 2023, sem og minnisblaðs embættis borgarlögmanns frá 26. janúar 2024. Í áðurnefndri umsögn Listasafns Reykjavíkur kemur fram að í samþykktum þess komi fram, að ekki sé heimilt að selja eða láta á annan hátt af hendi listaverk úr eigu borgarinnar, sem þegin hafa verið að gjöf. Allt mæli með því að þetta ákvæði eigi við um umrætt verk. Segja má að vafi leiki á um eignarhald styttunnar enda hafa ekki fundist formlegar og/eða skýrar eignarheimildir yfir henni. Á sínum tíma efndu nokkrir þekktir einstaklingar til fjársöfnunar á landsvísu í því skyni að styrkja Sigurjón til skapa listaverkið. Styttan hefur þó verið í umsjá Reykjavíkurborgar frá afhjúpun hennar í maí 1955. Í áðurnefndu minnisblaði embættis borgarlögmanns frá 26. janúar 2024 segir að telja verði örðugt að fullyrða um eignarhald á styttunni á grundvelli skráðra eignarheimilda. Hins vegar verði ekki litið fram hjá því að styttan var á ábyrgð Reykjavíkurborgar, allt frá uppsetningu og að hún hafi verið athugasemdalaust í umráðum borgarinnar í rúm 38 ár. Hafi hún ekki í upphafi verið gefin Reykjavíkurborg til eignar, megi því engu að síður telja að styttan hafi orðið eign borgarinnar á grundvelli hefðar í síðasta lagi árið 1994. Borgarráð tók ákvörðun sína í kjölfar ásakana um að sr. Friðrik hefði beitt drengi kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Umræddar ásakanir voru nafnlausar og ekki hefur verið sýnt fram á að þær eigi við rök að styðjast. Segja má að þannig hafi verið kveðinn upp dómur yfir látnum manni án fullnægjandi gagnaöflunar og rannsóknar. Tilgangurinn með umræddu tilkalli Birgittu Spur var að sjá til þess að listaverkið yrði tekið til sýningar í Listasafni Sigurjóns Ólafssona við Laugarnestanga, með öðrum verkum listamannsins og miðla því þannig til safngesta, í stað þess að það yrði haft í lokaðri geymslu Listasafns Reykjavíkur um ókomna tíð. Tillaga um að Reykjavíkurborg semji við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar um lánsafnot af listaverkinu, felur í sér málamiðlun milli fram kominna sjónarmiða í málinu. Listaverkið yrði þannig áfram í eigu Reykjavíkurborgar en lánað og haft til sýnis á safni, sem helgað er minningu og verkum listamannsins.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hanna Katrín fundaði með sjávarútvegsstjóra ESB Lagt til að Sigurjónssafn fái styttu Friðriks til afnota Þessi vilja verða dómarar við Landsrétt Mikið áfall fyrir Arsenal Fullkomið fjölskylduskipulag í 124 fm raðhúsi Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Lokaðir inni um óákveðinn tíma Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Hanna Katrín fundaði með sjávarútvegsstjóra ESB Lagt til að Sigurjónssafn fái styttu Friðriks til afnota Þessi vilja verða dómarar við Landsrétt Mikið áfall fyrir Arsenal Fullkomið fjölskylduskipulag í 124 fm raðhúsi Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óábyrgt að fara að lofa einhverju Veruleg skerðing á bílastæðum Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article