Innlent | Morgunblaðið | 4.9.2026 | 20:00 Til minningar um fyrsta stórmeistarann Friðrik Ólafsson kemur heim með Sólfaxa, vél Flugfélags Íslands, eftir sigur á alþjóðlega mótinu í Hastings á Englandi í janúar 1956. mbl.is/Ólafur K. Magnússon Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Tekin hefur verið ákvörðun í skákhreyfingunni um að minnast fyrsta stórmeistara okkar Íslendinga, Friðriks Ólafssonar, með því að halda alþjóðlegt skákmót síðar á árinu. Mótshaldið og undirbúningurinn eru samstarfsverkefni Skáksambands Íslands og Taflfélags Reykjavíkur. Mótið fer fram 24.-29. nóvember og ber yfirskriftina Minningarmót Friðriks Ólafssonar. Teflt verður í húsakynnum Skáksambandsins í Faxafeni að sögn Gunnars Björnssonar framkvæmdastjóra sambandsins. Friðrik lést í apríl í fyrra, níræður að aldri. Spurður hvort til standi að minningarmótið verði árlegur viðburður segir Gunnar of snemmt að fullyrða um það. Ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um slíkt. Vonir standi þó til að mótið verði í það minnsta reglulegur viðburður. Jafnframt sé þá hugsunin sú að hérlendis verði hægt að halda tvö alþjóðleg mót á ári en Opna Reykjavíkurmótið er afar vel sótt og glæsilegt sem kunnugt er. Fer það mót gjarnan fram fyrri hluta ársins. Mót fyrir þá stigahærri Gunnar segir vel fara á því að Skáksambandið og TR standi saman að verkefninu því Friðrik hafi verið heiðursfélagi hjá bæði sambandinu og félaginu. „Hann var ótrúlega merkilegur maður,“ segir Gunnar en Friðrik var vitaskuld þjóðþekktur fyrir afrek sín við taflborðið og störf í skákhreyfingunni auk þess að hafa gegnt embætti skrifstofustjóra Alþingis í rúma tvo áratugi. Gunnar Björnsson, framkvæmdastjóri Skáksambands Íslands. Gunnar leggur áherslu á að minningarmótið verði mun minna í sniðum en Opna Reykjavíkurmótið en á þessari stundu liggi ekki fyrir hversu margir erlendir keppendur muni taka þátt í því. Hann á von á því að erlendir skákmenn verði áhugasamir um að halda minningu Friðriks á loft enda var hann vel kynntur á alþjóðavettvangi, ekki síst eftir að hafa verið forseti Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, á árunum 1978-1982. Gunnar býst jafnframt fastlega við því að fremstu skákmenn Íslendinga í dag muni mæta til leiks. Segja má að minningarmótið sé fyrir lengra komna í skáklistinni en keppendur þurfa að vera með 2.000 Elo-stig eða meira til að öðlast keppnisrétt. Tefldar verða níu umferðir á sex dögum. Þar sem tilgangurinn sé að heiðra Friðrik muni allir gefa vinnu sína í tengslum við mótið að sögn Gunnars og það sé mikilvægt. Með því að halda mótið í Faxafeninu megi jafnframt spara kostnað við húsaleigu og þess háttar. „Í kringum þennan viðburð verðum við með fyrirlestra, hraðskákmót og sitthvað skemmtilegt,“ segir Gunnar en þær fyrirætlanir munu taka á sig mynd þegar nær dregur. Í hávegum hafður Friðrik var í fremstu röð í heiminum sem ungur maður og komst til að mynda á áskorendamótið árið 1959 í gömlu Júgóslavíu. Þar tókust bestu skákmenn heims á um réttinn til að skora á heimsmeistarann Mikhail Botvinnik. Skákáhugi landsmanna var geysilega mikill þegar seig á seinni hluta síðustu aldar og þann áhuga þakka menn Friðriki Ólafssyni öðrum fremur. Einnig er almennt talið að Friðrik hafi átt mikinn þátt í því að samkomulag náðist um að Ísland yrði vettvangur einvígis Bobbys Fischers og Borisar Spasskís árið 1972. Fyrir vikið fékk Friðrik ýmsar vegtyllur fyrir framlag sitt eins og stórriddarakross hinnar íslensku fálkaorðu og var gerður að heiðursborgara í Reykjavík. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Milljarðafjárfestingin sem á að koma London City í Meistaradeildina Ipswich - Liverpool, staðan er 0:2 Komst ekki í Meistaradeildarhópinn Ekkert jafnast á við Balí Til minningar um fyrsta stórmeistarann Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Æfingin á Íslandi gekk vonum framar Myndir: Tignarlegur borgarísjaki við bæjarstæðið Ólíklegt er að Blöndulón fyllist þetta sumar Spursmál: Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Sérsveitin kölluð til á Akureyri „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Stöðvaður á 190 km hraða Nýjast á mbl.is » Milljarðafjárfestingin sem á að koma London City í Meistaradeildina Ipswich - Liverpool, staðan er 0:2 Komst ekki í Meistaradeildarhópinn Ekkert jafnast á við Balí Til minningar um fyrsta stórmeistarann Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Finnbjörn kveður á komandi þingi ASÍ Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Þetta má ekki endurtaka sig“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Sérsveitin kölluð til á Akureyri „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Stöðvaður á 190 km hraða