Bráða- og viðbragðsteymi, sem hefur það að markmiði að draga úr ofbeldishegðun barna, hefur tekið til starfa. „Markmið Púlsins er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi,“ segir í tilkynningu. „Við erum að snúa bökum saman og ráðast í þetta sem við lítum á sem mjög mikilvægt verkefni sem snýr eingöngu að velsæld og öryggi barnanna,“ segir Inga Sæland við fréttastofu. Hún segir verkefnið risastóran lið í því að skapa öruggt umhverfi fyrir börn. Hún bendir á að ofbeldi gegn börnum hafi aukist sem og ofbeldi sem börn beita. „Tilkynningum til barnaverndar og lögreglu hefur fjölgað mikið.“ Ráðuneyti hennar styrkir verkefnið sem er unnið í samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu. Níu starfa í teyminu og geta gripið snemma inn í ef börn lenda í ógöngum. „Þá verða þau ekki látin bíða, oft hefur það verið þannig að það er ekki brugðist nógu skjótt við,“ segir Inga. Teymið hefur aðsetur í Suðurmiðstöð Reykjavíkurborgar en starfsfólk verður á ferðinni á milli sveitarfélaganna eftir því sem aðstæður krefja. „Í Púlsinum starfar hópur reyndra sérfræðinga sem hefur umfangsmikla reynslu af því að vinna með ungmennum í vanda. Hópnum er ætlað að bregðast við og taka á ofbeldismálum, skýra og auðvelda boðleiðir og tryggja skilvirka samvinnu allra þjónustuveitenda og -kerfa,“ segir í fréttatilkynningu Stjórnarráðsins.