Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.4.2026 | 17:09 | Uppfært 17:28 Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Frá undirritun samstarfssamnings um Púlsinn í Suðurmiðstöð Reykjavíkurborgar í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Kennarar æfir út í Ingu Seljaskóli leysir Ölduselsskóla af hólmi Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum » Fleiri tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar „Ég er harmi slegin“ » Fleiri tengdar fréttir „Við sjáum að það er vaxandi ofbeldi á meðal ungmenna og mun alvarlegra ofbeldi sem er farið að beita,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í samtali við mbl.is við opnun nýs úrræðis sem nefnist Púlsinn. Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn hefur nú formlega tekið til starfa en markmið þess er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi. Teymið, sem er hluti af aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu, er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (SSH), lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu. Sögðust ekki kannast við vandann Morgunblaðið og mbl.is greindu fyrst frá umfangsmiklum og langvarandi ofbeldisvanda í Breiðholtsskóla fyrir rúmu ári. Borgaryfirvöld sögðust þá ekki kannast við vandann. Umfjöllunin vakti mikla umræðu í samfélaginu og fluttar voru fleiri fréttir af auknu ofbeldi meðal barna. Frétt af mbl.is Foreldrar lýsa ofbeldinu: „Börn eru lamin í frímínútum“ Frétt af mbl.is Einkunnir gáfu allt aðra mynd Inga Sæland flutti ávarp á opnuninni. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Þetta er dásamlegur dagur“ „Þetta er alveg rosalega stórt skref og mikill áfangi sem við höfum náð með því að sameinast hér, öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, um það að vera með puttann á púlsinum og reyna að vera með snemmtæka íhlutun, grípa inn í, fylgja eftir börnunum okkar, reyna að koma í veg fyrir og bregðast við ofbeldishegðun,“ segir Inga. „Við sjáum hérna glæsilegan níu manna hóp sem er starfshópur Púlsins. Þau sjá fyrir sér að geta gripið börnin strax, ef eitthvað kemur upp á fyrir barn, að það þurfi ekki að bíða, að það sé hægt að reyna að setja málin strax í ferli.“ Þá sé draumurinn að geta komið í veg fyrir að slík atvik gerist með forvarnarstarfi. „Fyrst og síðast er þetta risastór áfangi sem er hugsaður fyrir börnin okkar til að gera tilveruna þeirra betri. Þetta er dásamlegur dagur.“ Auk ráðherrans voru það Halla Bergþóra Björnsdóttir ríkislögreglustjóri, Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Margrét Hjaltested bæjarstjóri Mosfellsbæjar og Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar sem undirrituðu samstarfssamning um Púlsinn í Suðurmiðstöð Reykjavíkurborgar í dag. Frétt af mbl.is Vék eftir árás drengjanna Frétt af mbl.is Ráðuneytið fylgist með Breiðholtsskóla „Þetta er dásamlegur dagur,“ segir Inga. mbl.is/Eggert Jóhannesson 240 milljónir í uppbyggingu Púlsins Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að í haust hafi ráðuneytið styrkt sveitarfélögin um tæplega 500 milljónir króna til 15 verkefna um allt land. Stærsti styrkurinn, 240 milljónir, hafi verið veittur til uppbyggingar á Púlsinum. Þar starfar hópur reyndra sérfræðinga sem hefur umfangsmikla reynslu af vinnu með ungmennum í vanda. Hópnum er ætlað að bregðast við og taka á ofbeldismálum, skýra og auðvelda boðleiðir og tryggja skilvirka samvinnu allra þjónustuveitenda og -kerfa. Með því að koma fyrr að slíkum málum og veita börnum sem beita ofbeldi viðeigandi stuðning fljótt og markvisst eru vonir bundnar við að draga úr líkum á að slík brot endurtaki sig og fækka ofbeldismálum meðal barna. Frétt af mbl.is „Fullorðið fólk myndi aldrei sætta sig við svona“ Frétt af mbl.is Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Kennarar æfir út í Ingu Seljaskóli leysir Ölduselsskóla af hólmi Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum » Fleiri tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar „Ég er harmi slegin“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » KR - Þór, staðan er 1:0 Færist nær enska félaginu Húðvörur velta milljörðum Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Reitir tryggja fjármögnun til heilbrigðisverkefna Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Málið komið fram á fölskum forsendum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » KR - Þór, staðan er 1:0 Færist nær enska félaginu Húðvörur velta milljörðum Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Reitir tryggja fjármögnun til heilbrigðisverkefna Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Málið komið fram á fölskum forsendum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article