Innlent | mbl | 17.4.2026 | 22:13 Vilja að brugðist verði við óboðlegu ástandi Í erindinu kemur fram að að ferðaþjónustan í Vestmannaeyjum hafi fengið skell þar sem höfnin sé venjulega opin á þessum árstíma. Hver dagur sé mjög þungur og að ástandið sé að verða óbærilegt. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum vara við yfirvofandi neyðarástandi í samgöngum við eyjuna og krefjast tafarlausra aðgerða. Þetta kemur fram í erindi sem bæjarstjóri Vestmannaeyja sendi innviðaráðherra, vegamálastjóra og formönnum ríkisstjórnarflokkanna í vikunni. Í erindinu, sem birt hefur verið á vef Vestmannaeyja , segir að nú í miðjum apríl sé Landeyjarhöfn enn lokuð og að ekkert gangi við dýpkun. Nýjasta mæling sýni afleita stöðu í höfninni og að marga dýpkunardaga þurfi til að opna. Frétt af mbl.is Bilun stöðvar Herjólf tímabundið Ráða illa við verkefnið „Í þeim dýpkunarglugga sem var að ljúka gat Álfsnesið ekkert gert í hafnarmynninu og eru þeir farnir í Þorlákshöfn. Þeir treystu sér ekki til að vinna vegna stöðunnar í höfninni og ráða illa við verkefnið. Það er ekki útlit fyrir að þeir geti opnað höfnina á næstunni samkvæmt upplýsingum frá hafnardeild Vegagerðarinnar,“ segir í erindinu. Er þar enn fremur bent á að Herjólfur sé nú bilaður og gangi bara á annarri skrúfunni og sé því lengri á leiðinni til Þorlákshafnar en venjulega, eða allt að fjóra tíma. Þá sé haffæri takmörkunum háð vegna bilunarinnar og skipið gæti því verið kyrrsett í vondum veðuraðstæðum. „Samgöngurnar eru því mjög brothættar og er ástandið óvenju slæmt núna því höfnin hefur ekki opnað svona seint frá árinu 2019 þegar nýi Herjólfur hóf siglingar. Þetta þýðir stórlega skertar sjósamgöngur. Í stað 7 ferða eru 2 ferðir á dag, stöðugir biðlistar fyrir bíla og í svefnrými og mjög löng sigling. Frá áramótum hefur Herjólfur siglt 73 daga í Þorlákshöfn sem þýðir um 146 ferðir í stað 511 ferða. Þetta skerðir verulega alla flutninga sem atvinnulífið treystir á og hefur í raun sett þá í uppnám. Þetta hefur áhrif á hagkerfið mun víðar en bara í Eyjum.“ Frétt af mbl.is Belgískt fyrirtæki dýpkar næstu árin Bitnar á ferðaþjónustunni Í erindinu kemur einnig fram að ferðaþjónustan hafi fengið skell þar sem höfnin sé venjulega opin á þessum árstíma. Hver dagur sé mjög þungur og að ástandið sé að verða óbærilegt. Þá óskar Vestmannaeyjabær eftir því að belgíska fyrirtækið Jan De Nul, sem sér um dýpkun Landeyjahafnar, komi fyrr en gert er ráð fyrir og að höfnin verði opnuð. Auk þess er óskað eftir því að flugsdögum verði fjölgað á meðan siglt er í Þorlákshöfn og aukinheldur er óskað eftir því að lögð verði fram áætlun um hvernig eigi að bregðast við ef Herjólfur getur ekki siglt vegna viðgerða eða bilunar þar sem Breiðafjarðarferjan Baldur dugi ekki til að bregðast við stöðunni. Að lokum óska bæjaryfirvöld eftir fundi við fyrsta tækifæri. Þá kemur fram á vef Vestmannaeyja að bæjarráð hafi hist á undirbúningsfundi í dag þar sem samgöngumálin hafi verið rædd sem og mikilvægi þess að brugðist verði strax við því ástandi sem er við dýpkun á höfninni. „Ekki hefur enn borist formlegt svar við erindinu, sem hefur verið ítrekað, en bæjarráð mun funda með vegamálastjóra og fulltrúum Vegagerðarinnar vegna stöðunnar í Landeyjahöfn á mánudag í tengslum við fund bæjarráðs,“ segir á vef Vestmannaeyja. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Erum með stórkostlega stuðningsmenn“ Samgöngur og vatnsöryggi á oddinum Andri Rúnar hetjan í Garðabæ Vilja að brugðist verði við óboðlegu ástandi Ægileg dramatík og læti út af engu Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Vildi ekki hitta þingmennina Meirihlutinn fallinn „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » „Erum með stórkostlega stuðningsmenn“ Samgöngur og vatnsöryggi á oddinum Andri Rúnar hetjan í Garðabæ Vilja að brugðist verði við óboðlegu ástandi Ægileg dramatík og læti út af engu Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málið komið fram á fölskum forsendum Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Vildi ekki hitta þingmennina Meirihlutinn fallinn „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá