Innlent | mbl | 3.6.2026 | 11:55 Vestmannaeyjabær mæti afgangi Síðasti vetur reyndist Vestmannaeyingum erfiður. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Tengdar fréttir Landeyjahöfn Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun Beint: Eyjólfur situr fyrir svörum Framlengja áætlunarflug til mánaðamóta » Fleiri tengdar fréttir Íbúar í Vestmannaeyjum upplifa skilnings- og aðgerðarleysi af hálfu ríkisstjórnarinnar og eru þreyttir á að fá langar og flóknar útskýringar í stað skýrra svara. Þetta segir Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, íbúi Vestmannaeyja, í samtali við mbl.is. Hún var ein þeirra sem sátu fund Vegagerðarinnar og Vestmannaeyjabæjar í gær og fann sig knúna til að skrifa færslu á Facebook í kjölfar fundarins þar sem hún segir svörin hafa verið fá en afsakanirnar margar. „Ráðherra virðist ekki hafa neinn áhuga eða sýna okkur neinn skilning. Það þýðir ekki að tala um það að ætla að smíða bát eftir níu eða tíu ár,“ segir Jóhanna í samtali við blaðamann eftir fundinn. Á fundinum kynnti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra að ferjurnar Baldur og Herjólfur myndu báðar sigla til og frá Eyjum frá og með mánudeginum 8. júní. Þetta fyrirkomulag yrði við lýði meðan unnið væri að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Frétt af mbl.is „Við getum ekki annan svona vetur“ Frétt af mbl.is Herjólfur frestar sumarsiglingum Mikil óvissa Jóhanna segir seinasta vetur hafa verið erfiðan og litla hjálp að fá. „Það er verið að láta okkur hafa flug, níu sæta vél, og samningurinn er aðeins framlengdur í tvær vikur í senn og því fylgir mikil óvissa. Ef þú ert að fara til læknis þá veist þú ekkert hvort það sé flug eftir þrjár eða fjórar vikur.“ Það sé óboðlegt að það taki Eyjamenn fimm til sex tíma að ferðast á milli með Herjólfi. Mörg börn ferðist jafnvel hverja helgi vegna íþróttaviðburða. „Það er hægt að aflýsa öllum leikjum hér vegna þess að fólk treystir sér ekki frá landi og hingað en okkar börn verða alltaf að fara annars er dæmdur tapaður leikur hjá okkur,“ segir hún. Frétt af mbl.is Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Ráðherra ekki með á nótunum Jóhanna segir innviðaráðherra ekki hafa svarað neinum spurningum, ekki lofað neinu fjármagni og ekki virst „vera með á nótunum“ varðandi stöðu Vestmannaeyja. „Eins og fram kom á fundinum getur Vegagerðin ekkert gert nema hún fái fjármagn og það veltur allt á ríkisstjórninni en við höfum ekki séð nein viðbrögð hjá þessari ríkisstjórn um að gera nokkurn skapaðan hlut fyrir okkur,“ segir Jóhanna að lokum. Tengdar fréttir Landeyjahöfn Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun Beint: Eyjólfur situr fyrir svörum Framlengja áætlunarflug til mánaðamóta » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vestmannaeyjabær mæti afgangi Gere kallar Trump „brjálæðing“ Leikmaður fékk ekki inngöngu í Bandaríkin „Hvers vegna ég tek svona glataðar myndir“ Nýr veitingastaður opnaður í Mosfellsbæ Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Skelfilega erfið mál“ Stefna að upptöku evru Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Beint: Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendings saknað á Taílandi Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans Íslendingar í sérstakri stöðu en glata forskotinu Áslaug Arna hættir á Alþingi Erfitt að glíma við ytri áföll Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Nýjast á mbl.is » Vestmannaeyjabær mæti afgangi Gere kallar Trump „brjálæðing“ Leikmaður fékk ekki inngöngu í Bandaríkin „Hvers vegna ég tek svona glataðar myndir“ Nýr veitingastaður opnaður í Mosfellsbæ Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Skjálftarnir malla áfram“ Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendings saknað á Taílandi Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans Íslendingar í sérstakri stöðu en glata forskotinu Áslaug Arna hættir á Alþingi Erfitt að glíma við ytri áföll Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt