Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Logi Einarsson fundaði með Apple

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.4.2026 | 9:17 Logi Einarsson fundaði með Apple Logi Einarsson ráðherra ásamt Maiju Corinti Salvén, forstöðumanni opinberrar stefnumótunar hjá Apple og fulltrúum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og Almannaróms. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Íslenska Engin áhersla á íslenskuna í raun Nemendur taka betur í Laxness Úthlutaði styrkjum upp á 70 milljónir Vænir Eirík um slagsíðu í svari á Vísindavefnum Íslenska mest töff tungumál í heimi » Fleiri tengdar fréttir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra fundaði með fulltrúum tæknifyrirtækisins Apple í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Battersea í London á mánudaginn. Ásamt ráðherra sóttu fundinn fulltrúar frá Almannarómi - miðstöð máltækni á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á síðu Stjórnarráðsins. Erindi fundarins var að óska eftir því að íslenska verði hluti af iOS stýrikerfi Apple en engin tæki frá framleiðandanum eru fáanleg með íslensku notendaviðmóti. Í árlegri neyslu- og lífstílskönnun Gallup kemur fram að iPhone er sú tegund farsíma sem flestir Íslendingar kjósa og fer prósentan upp í 74% á aldrinum 18 – 34 ára. „Máltækniáætlanir stjórnvalda hafa skilað sér með margvíslegum hætti, svo sem í íslenskumælandi mállíkönum á borð við ChatGPT. Microsoft og Google hafa einnig nýtt gögn úr máltækniáætlun stjórnvalda til að gera flestar lausnir sínar nothæfar á íslensku. Eftir situr tæknirisinn Apple sem erfitt hefur reynst að nálgast en þetta er fyrsti fundur stjórnvalda með fyrirtækinu síðan 2022. Frá því sá fundur átti sér stað, hefur Ísland markað sér sess sem forysturíki þegar kemur að máltækni og vinnu við að gera tungumál sem fáir tala, nothæft í helstu tæknilausnum heims,“ segir í tilkynningunni. Afhenti áskorun frá ÖBÍ Í tilkynningunni kemur einnig fram að öryrkjabandalagið, samtök 23 hagsmunafélaga fólks með fötlun, hafi vakið athygli á að tæki frá Apple séu almennt ákjósanlegust fyrir fólk með fötlun og nefnir sem dæmi að iPad feli í sér byltingu í þjálfun og endurhæfingu, en þar sem viðmótið, raddgreiningin og talgerving styðji ekki íslensku sé mjög takmarkað hvaða forrit og lausnir sé hægt að nýta. Það takmarki aðgengi barna að tal-, sjón- og þroskaþjálfun og aðgengi t.d. fullorðinna heilabilaðra einstaklinga á endurhæfingu. Auk þess býður iPad upp á margskonar tjáskiptalausnir fyrir athafnir daglegs lífs - ef tækið skildi íslensku. Ráðherra afhenti fulltrúum Apple áskorun fyrir hönd ÖBÍ þar sem fyrirtækið er hvatt til þess að innleiða íslensku og standa þannig vörð um eitt af kjarnagildum sínum sem er aðgengi. Almannarómur fundaði líka með Google Logi segir fulla ástæðu til gleðjast yfir því að fyrsta skrefið hafi verið stigið þó Apple hafi ekki orðið við ósk Íslands þar og þá, enda sé um langhlaup að ræða. Fulltrúar fyrirtækisins hafi sýnt erindinu einlægan áhuga en næstu skref séu að veita aðgengi að opnum máltæknigögnum og skilgreina hvaða áskoranir eru til staðar. Almannarómur fundaði einnig með aðilum úr aðgengisteymi Google í Lundúnum um raddstýringu á íslensku. Með innleiðingu raddstýringar í Google-umhverfið gætu notendur meðal annars talað við tölvupóst sinn og dagatal sem myndi auka aðgengi og sjálfstæði fólks með fötlun. Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms afhenti á fundinum áskorun fyrir hönd Öryrkjabandalag Íslands þar sem skorað var á fyrirtækið að bæta raddlausnir sínar á íslensku fyrir íslenska notendur þeirra. Hún segir áskoruninni hafa verið vel tekið og Google hafi reynst góður samstarfsaðili Íslands í máltækni en það þurfi sífellt að halda áherslum á lofti og minna á sig til þess að sitja ekki eftir í þeim hraða sem tæknin vinnur á. Tengdar fréttir Íslenska Engin áhersla á íslenskuna í raun Nemendur taka betur í Laxness Úthlutaði styrkjum upp á 70 milljónir Vænir Eirík um slagsíðu í svari á Vísindavefnum Íslenska mest töff tungumál í heimi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Flóttamannaleið lokað tímabundið Logi Einarsson fundaði með Apple Opið hús í garðyrkjuskólanum á Reykjum This is what the First Day of Summer weather will be like Mikið andlegt álag á Frey Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jón Pétur með buxurnar á hælunum Veigamikið framsal ríkisvalds Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Jón Pétur með buxurnar á hælunum Þrír hafa verið náðaðir Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Sviptur ökuréttindum á staðnum Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Myndir: Krakkarnir í góðum gír á Akureyri Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Flókið, erfitt og tímafrekt að þétta í borginni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Flóttamannaleið lokað tímabundið Logi Einarsson fundaði með Apple Opið hús í garðyrkjuskólanum á Reykjum This is what the First Day of Summer weather will be like Mikið andlegt álag á Frey Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvað vildu þeir til Mexíkó? Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Börnin vilja vinna meira með fíknivanda sinn Vilja bjóða fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Jón Pétur með buxurnar á hælunum Þrír hafa verið náðaðir Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Sviptur ökuréttindum á staðnum Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Myndir: Krakkarnir í góðum gír á Akureyri Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Flókið, erfitt og tímafrekt að þétta í borginni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum

Share this article