Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýsköpun verður næsta stóra verkefni Apple

Read Full Article →

John Ternus verður forstjóri Apple á þriðjudag og tekur við af Tim Cook. Samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal verður nýsköpun eitt helsta verkefni fyrirtækisins á næstu árum, ekki síst í þróun gervigreindar. Cook tók við Apple árið 2011. Þá seldi fyrirtækið 72 milljónir iPhone-síma á ári en á þessu ári er gert ráð fyrir að salan verði um 255 milljónir síma. Markaðsvirði Apple hefur jafnframt margfaldast á þessum tíma og er nú nærri 5 billjónum dala. Apple hefur þó ekki fylgt öðrum stórum tæknifyrirtækjum eins vel eftir í þróun gervigreindar. Siri hefur til dæmis lengi verið á eftir öðrum gervigreindaraðstoðarmönnum, en Apple hefur nú unnið að endurbótum. Undir stjórn Cook hafa þó komið fram fleiri stórar vörur. Apple Watch og AirPods hafa báðar orðið mikilvægur hluti af rekstri fyrirtækisins og þjónustustarfsemin hefur einnig vaxið mikið. Á sama tíma er samkeppnin í tæknigeiranum að breytast. Fyrirtæki vinna nú að nýjum tækjum sem eru sérstaklega þróuð með gervigreind í huga, á sama tíma og Apple reynir að styrkja stöðu sína á því sviði. Fyrirtækið undirbýr meðal annars nýja útgáfu af Siri sem á að geta sinnt fleiri verkefnum fyrir notendur. Þá er einnig talið að Apple kynni samanbrjótanlegan iPhone á næstu misserum. John Ternus tekur því við Apple á tímum mikilla breytinga í tæknigeiranum. Næstu ár munu meðal annars ráðast af því hvernig fyrirtækinu tekst að halda í við þróun gervigreindar og koma nýjum vörum á markað.

Share this article