Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 29 mínútumÍÞRÓTTIR Bardagaíþróttir Ingibjörg og Guðmundur Flóki tóku brons Anna Sigrún Davíðsdóttir Ingibjörg Erla Grétarsson og Guðmundur Flóki Sigurjónsson kepptu á British open, alþjóðlegu móti í ólympísku taekwondo. Bæði tóku þau brons með heim. Ingibjörg keppir í -62 kílóa flokki. Ingibjörg sigraði tvo bardaga 2-0 en laut svo í lægra haldi fyrir sigurvegaranum í flokkum. Ingibjörg endaði í þriðja sæti af 21. Ingibjörg Erla á æfingu. RÚV Guðmundur Flóki keppti í -80 kílóa flokki ásamt 13 öðrum. Hann vann einn bardaga öruggt en tapaði þeim næsta og endaði þriðji. Fyrir 37 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína „Chernobyl var risastór ríkisstyrkt lygi“ Fjörutíu ár eru liðin frá versta kjarnorkuslysi sögunnar þegar kjarnaofn í Chernobyl-kjarnorkuverinu sprakk. Maður sem hefur ljósmyndað afleiðingar slyssins frá nánast fyrstu stundu segir fólkið sem hann hitti í gegnum árin eftirminnilegast. Fyrir 52 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Valsmenn jafna einvígið við Grindavík Anna Sigrún Davíðsdóttir Valur og Grindavík mættust öðru sinni í æsispennandi leik í undanúrsitum úrslitakeppni karla í körfubolta í kvöld. Liðin skiptust á forystunni í fyrsta leikhluta og að honum loknum var allt jafnt 19-19. Sömu sögu var að segja í öðrum leikhluta og í leikhléi var staðan 41-41. Kári Jónsson kom Val í 68-57 snemma í fjórða leikhluta. Þá hafði aldrei munað eins miklu á liðunum, enda leikurinn afar jafn. Þá var bitið farið úr sóknarleik Grindavíkur og Valsmenn héldu út og sigldu sigri í hús, 79-72. Kári Jónsson og Callum Lawson voru stigahæstir Valsmanna hvor með 16 stig. Staðan í einvíginu er 1-1. Liðin mætast aftur á fimmtudag í Grindavík. Kári Jónsson skoraði 16 stig í kvöld, öll í seinni hálfleik. Mummi Lú Fyrir 58 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Svartþrastarmóðir sinnir ungviðinu í beinni Hægt er að fylgjast með nýbakaðri svartþrastarmóður sinna fjórum ungum sínum í beinni útsendingu á YouTube. Hreiður hennar uppgötvaðist þann 11. apríl og síðan þá hefur hún haft í nógu að snúast. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Mikil ánægja með opnun nýrrar slökkviliðsstöðvar á Laugarvatni Mikil ánægja ríkir með nýja slökkviliðsstöð sem opnað hefur á Laugarvatni. Þrettán slökkviliðsmenn eru skráðir í slökkviliðið. Starfsemin heyrir undir Brunavarnir Árnessýslu. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Nýliðarnir sóttu fyrsta sigurinn norður Anna Sigrún Davíðsdóttir Keflavík heimsótti KA í fyrsta leik fjórðu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í dag. Nýliðar Keflavíkur unnu sinn fyrsta sigur í deildinni. Oliver Heiðarsson kom KA-mönnum yfir á 31. mínútu þegar hann sólaði sig fram hjá markverði og skaut boltanum í netið. Rúmum tíu mínútum síðar kom jöfnunarmark frá Davíð Helga Aronssyni, 1-1. Sigurmark Keflavíkur skoraði Stefn Ljubicic á 60. mínútu og færði Keflavík um leið fyrsta sigurinn á tímabilinu. Keflavík er með fjögur stig eftir jafnmargar umferðir og KA með eitt. Umferðin klárast svo á morgun. Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur. Mummi Lú Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Maðurinn sem fannst við Háafoss er látinn Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti við Háafoss í Þjórsárdal í kvöld er látinn. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra Hundruð plokkara á öllum aldri tíndu rusl í dag á Stóra plokkdeginum. Rótarýhreyfingin á Íslandi stendur að skipulagningu dagsins. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Maðurinn fundinn: Fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar Allt tiltækt viðbragðslið var kallað til rétt fyrir klukkan sjö í kvöld vegna manns í neyð niðri í gilinu við Háafoss. Maðurinn er fundinn og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Engar upplýsingar fást um líðan mannsins. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Arsenal vann fyrri leikinn í Meistaradeild Anna Sigrún Davíðsdóttir Arsenal tók á móti Lyon í fyrri leik liðanna í Meistaradeild kvenna í fótbolta í dag. Arsenal kom sér í góða stöðu með 2-1 sigri. Gestirnir byrjuðu betur og Jule Brand kom Lyon yfir á 19. mínútu. 1-0 stóð í hálfleik en á 61. mínútu skoraði Ingrid Engen sjálfsmark fyrir Lyon, 1-1. Það var svo Olivia Smith sem fann sigurmark Arsenal á 83. mínútu og 2-1 sigur enska liðsins niðurstaðan. Liðin mætast aftur í Frakklandi næsta laugardag. Olivia Smith þrumar boltanum í netið. EPA / DAVID CLIFF Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tilræðið við Bandaríkjaforseta kunni að kynda undir samsæriskenningum Dósent í stjórnmálafræði segir ólíklegt að tilræðið við Bandaríkjaforseta í nótt hafi langtímaáhrif á stöðu hans, vinsældir eða fylgi. Þó kunni það að kynda undir samsæriskenningum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malí Varnarmálaráðherra Malí felldur í bílsprengju Varnarmálaráðherra Malí lést í dag ásamt þremur fjölskyldumeðlimum sínum af völdum bílsprengju sem var komið fyrir af vígahópum. Jihadistar og hópar uppreisnarmanna hófu víðtækar árásir í landinu í gær. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ánægja Reykvíkinga með þjónustu dalað á kjörtímabilinu Marktækt minni ánægja mælist með þjónustu sveitarfélagsins meðal Reykvíkinga samanborið við íbúa í öðrum sveitarfélögum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Danmörk Vitni að banaslysinu í Danmörku fá áfallahjálp Framkvæmdastjóri Fallhlífarmiðstöðvarinnar í Óðinsvéum segir samfélag fallhlífastökkvara í áfalli vegna banaslyssins í morgun. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Chelsea og Manchester City mætast í úrslitum bikarsins Anna Sigrún Davíðsdóttir Chelsea og Leeds mættust í seinni undanúrslitaleik ensku bikarkeppni karla í fótbolta í dag. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum en það var Enzo Fernandez sem gerði það fyrir Chelsea á 23. mínútu. 1-0 lokatölur og ljóst að það verða Chelsea og Manchester City sem mætast í úrslitaleik ensku bikarsins í maí. Manchester City tryggði sæti sitt í úrslitum í gær með sigri á Southampton, 2-1. Liðin mætast á Wembley laugardaginn 16. maí. Enzo Fernandez fagnar markinu. EPA / VINCE MIGNOTT Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Blak KA Íslandsmeistari í níunda sinn Þróttur Reykjavík og KA mættust í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í blaki í dag. Þróttur komst tvívegis yfir en norðanmenn náðu sigrinum og þar með Íslandsmeistaratitlinum. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Badminton Íslandsmótið í badminton: Systraslagur og jöfnun á meti Íslandsmótið í badminton fór fram í gær. Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson sýndu yfirburði sína þegar þeir urðu Íslandmeistarar áttunda árið í röð í tvíliðaleik karla. Systur börðust í tvíliðaleik kvenna. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Vopnahlé milli Ísraels og Hezbollah hangir á bláþræði Vopnahlé milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna stendur völtum fótum. Fulltrúar beggja hliða hafa sakað hver annan um að brjóta gegn því. Ísraelsher hefur gert loftárásir í suðurhluta Líbanons en Hezbollah segist hafa ráðist á ísraelskar hersveitir. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Náttúra Elsti kolkrabbi heims reyndist önnur tegund eftir allt saman Fjöldi tanna í fornum steingervingi sem var talinn elsti kolkrabbi heims komu upp um krabbann. Hið rétta er að steingervingurinn er snekkja, sem er dýr skylt skeldýrum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Meira þurfi til starfsins en að vera „góð kona“ Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir skilning skorta á störfum hjúkrunarfræðinga. Hún segir þá skoðun loða enn við stéttina að það eina sem þurfi til sé að vera góð kona. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Danmörk Íslenskur karlmaður lést í fallhlífarstökki 24 ára íslenskur karlmaður lést við fallhlífarstökk í Óðinsvéum í Danmörku rétt fyrir hádegi að dönskum staðartíma. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin sækir í sig veðrið á Akureyri Samfylkingin fengi þrjá bæjarfulltrúa á Akureyri samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem gerð var í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Flokkurinn fékk einn fulltrúa í síðustu kosningum. Ef könnunin gengi eftir væri núverandi meirihluti fallinn. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Grét þegar hún sá fyrstu tvo þættina af Hildi Finnsk/íslenski metsöluhöfundurinn Satu Rämö ræddi um sjónvarpsþættina Hildi og ferilinn sinn í Miðstöðinni. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Árásarmaðurinn vildi skjóta embættismenn í Bandaríkjastjórn Árásarmaðurinn sem grunaður er um að hafa hleypt af skotum á kvöldverði Samtaka blaðamanna Hvíta hússins sagðist hafa viljað skjóta embættismenn í ríkisstjórn Trumps. Hann var handtekinn og Bandaríkjaforseti var fluttur burt óhultur. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Klifur Agnes fyrst til að klifra í undanúrslitum Anna Sigrún Davíðsdóttir Agnes Matthildur Helgadóttir Folkmann keppti á Evrópubikarmóti í Litáen um helgina. Agnes gerði vel og komst í undanúrslit keppninnar. Nokkuð sem íslenskur klifrari hefur ekki gert áður. Agnes endaði í 18. sæti í undankeppni mótsins í gær og tryggði sig þar með áfram í undanúrslitin. Í morgun var keppt í undanúrslitum og þar endaði Agnes í 24. sæti af 24 keppendum. Agnes klifrar í undanúrslitum. Klifursamband Íslands Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Hélt að sprengja hefði sprungið þegar jarðskjálftinn reið yfir Jarðskjálfti, 3,6 að stærð, varð rétt norðaustur af Osló í Noregi í morgun. Íbúar í suðausturhluta Noregs fundu vel fyrir honum. Íslendingur sem býr í Noregi vaknaði upp við skjálftann. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Rusl á víðavangi í Gufunesi Rusl hefur safnast upp í nágrenni við móttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi. Sviðsstjóri segir slíkt algengt á vorin þegar snjó tekur að bráðna. Plokkarar landsins tína rusl í dag á Stóra plokkdeginum. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Hlaup Tveir í mark á undir tveimur tímum í sögulegu Lundúnarmaraþoni Lundúnarmaraþonið, eitt af stærstu keppnismaraþonunum, f