Íslenskt landsliðsfólk í taekwondo keppti á sterku G1-móti í Portúgal um helgina. Ingibjörg Erla Grétarsdóttir vann til bronsverðlauna í -62 kílóa flokki þar sem 20 keppendur voru skráðir til leiks. Eftir að hafa setið hjá í fyrstu umferð vann Ingibjörg öruggan 2–0 sigur á spænskum keppanda í 16 manna úrslitum. Í átta manna úrslitum beið hennar sterkur andstæðingur frá Frakklandi. Ingibjörg hafði betur, 2–1, eftir spennandi viðureign og tryggði sér sæti í undanúrslitum. Þar mætti hún keppanda frá Ekvador en laut í lægra haldi þar. Sú ekvadorska stóð uppi sem sigurvegari og Ingibjörg fór heim með brons. Guðmundur Flóki Sigurjónsson og Leo Anthony Speight kepptu einnig fyrir hönd Íslands á mótinu.