Innlent | Morgunblaðið | 27.4.2026 | 13:30 Bíóhöllin í Mjódd verður stækkuð Nýir eigendur eru að láta endurnýja húsið fyrir nýja starfsemi. Byggt verður á lóðinni sunnan við það. Ljósmynd/Eignabyggð Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Nýir eigendur Álfabakka 8 í Mjódd áforma að stækka húsið um rúmlega sex þúsund fermetra. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í ósk um að á 1.000 fermetra svæði í nýbyggingunni verði innréttuð matvöruverslun. Sambíóin ráku um árabil kvikmyndahús í byggingunni og um tíma var þar vinsælasti skemmtistaður borgarinnar, Broadway. Kvikmyndahúsinu var lokað fyrr á þessu ári eftir 44 ára rekstur. Fjarskiptafyrirtækið Nova flytur í húsnæðið þar sem bíóið hefur verið til húsa. Nú er unnið að endurskipulagningu hússins og annast fasteignafyrirtækið Eignabyggð verkið. Frétt af mbl.is Hringnum lokað í Álfabakka Stækkun er heimil Gríma arkitektar senda fyrirspurnina til skipulagsfulltrúa fyrir hönd eigenda Álfabakka 8. Þar kemur fram að samkvæmt deiliskipulagi frá 2008 sé heimilt að stækka lóðina, reisa viðbyggingu sunnan við núverandi byggingu og auka byggingamagn upp í samtals 10.100 fermetra á lóðinni. Samkvæmt stefnumörkun aðalskipulags til 2040 sé heimilt að vera með matvöruverslun á reitnum, en nýjar matvöruverslanir verði almennt ekki stærri en 700 fermetrar. Í nýju byggingunni við Álfabakka 8 sé áhugi fyrir því að hýsa matvöruverslun á jarðhæð. Fyrirliggjandi hugmyndir geri ráð fyrir því að stærð hennar verði 1.000 fermetrar. Að sögn rekstraraðila sé ekki rekstrargrundvöllur fyrir minni verslun en það á þessu svæði. Það helgist m.a. af fjarlægð í næsta íbúðahverfi. „Staðsetning í Mjódd, við Reykjanesbrautina, styður aftur á móti rekstur stærri verslunar, þar sem hún verður í nálægð við stofnbraut og vænta má þess að fólk komi við t.d. á leið sinni til og frá vinnu,“ segir í fyrspurninni. Er að lokum spurt hvort lóðarhafi geti fengið vilyrði fyrir því að heimilt verði að reka verslun í byggingunni þar sem verslunarflötur verður 1.000 fermetrar, sem verði stærri en viðmið aðalskipulags. Jákvætt er tekið í að hafa matvöruverslun með að hámarki með 1.000 fm gólfflöt verslunarrýmis í Álfabakka 8 en breyta þarf deiliskipulagi, er niðurstaða skipulagsfulltrúa. Hann tekur fram að mikilvægt sé að byrgja ekki fyrir glugga jarðhæðar, fyrsta hæð hússins eigi að vera opin og lifandi. „Jarðhæðin og inngangar tengja bygginguna við umhverfið; þeir eiga að vera sýnilegir, aðgengilegir og skýrt tengdir við götu og önnur borgarrými.“ Frétt af mbl.is Hringnum lokað í Álfabakka Broadway og bíó Húsið Álfabakki 8 er alls 3.316 fm að stærð. Ólafur Laufdal opnaði skemmtistaðinn Broadway í kjallara hússins í nóvember 1981. Þetta var einn vinsælasti staðurinn í Reykjavík og margir heimsfrægir tónlistarmenn komu þar fram. Broadway flutti í nýbyggt Hótel Ísland 1987 í enn stærra húsnæði. Og í mars 1982 opnaði Árni Samúelsson og fjölskylda Bíóhöllina á efri hæðum hússins. Þar voru fjórir sýningarsalir. Bíóhöllin bryddaði upp á ýmsum nýjungum eins og að sýna myndir mjög stuttu eftir að þær komu út en áður leið gjarnan langur tími þar til myndir bárust til Íslands. Í nóvember 1991 byrjaði kvikmyndahúsakeðja Árna Samúelssonar að nota nafnið Sambíóin. Félagið Álfabakki 8 ehf. keypti húsið í fyrra. Metnaðarfullt verkefni Á vefsíðu Eignabyggðar kemur fram að Álfabakki 8 sé metnaðarfullt þróunarverkefni þar sem fyrrverandi kvikmyndahúsi verði umbreytt í nútímalegt skrifstofu- og þjónustuhúsnæði. Húsnæðið verður stækkað í alls 9.600 fm og mun bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika fyrir fyrirtæki og þjónustuaðila. „Með áberandi staðsetningu í einu vinsælasta viðskipta- og þjónustusvæði höfuðborgarinnar, ásamt góðu aðgengi og bílastæðum, verður Álfabakki 8 eftirsóttur valkostur fyrir nútímalega starfsemi,“ segir á heimasíðunni. Verklok eru áætluð árið 2027. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mikið áfall fyrir Valsmenn Noregskonungur horfir á lærisveina Freys Eldur kviknaði vegna matargerðar í Vesturbæ Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða Bíóhöllin í Mjódd verður stækkuð Umræðan Tækifærið er núna Góður rekstur skilar sér til Kópavogsbúa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Undanþágur aðallega tímabundnar Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn fannst látinn við Háafoss Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Hvassviðri eða stormur í kvöld Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Minnast Íslendingsins í Danmörku Myndskeið: Ísland sendir Apple kveðju Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Mikið áfall fyrir Valsmenn Noregskonungur horfir á lærisveina Freys Eldur kviknaði vegna matargerðar í Vesturbæ Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða Bíóhöllin í Mjódd verður stækkuð Umræðan Tækifærið er núna Góður rekstur skilar sér til Kópavogsbúa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjálfunaraðstaða lögreglu stenst ekki samanburð Hvetur þingmenn til að koma sér saman um spurningu Árásin undirstrikar þörfina: „Við þurfum danssalinn“ Segir fundina með Þorgerði hafa verið gagnslausa Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn fannst látinn við Háafoss Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Hvassviðri eða stormur í kvöld Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Minnast Íslendingsins í Danmörku Myndskeið: Ísland sendir Apple kveðju Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði