Menning | mbl | 30.4.2026 | 15:45 Guðjón gerður að heiðursborgara Guðjón hefur fjallað um ýmislegt, meðal annars sögu fjölmiðla á íslandi, samvinnuhreyfinguna, sögu fráveitu og Faxaflóahafna, sögu Rauða krossins á Íslandi og ekki síst sögu barna í Reykjavík. mbl.is/Ómar Setja bókamerki Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og rithöfundur, var útnefndur heiðursborgari Reykjavíkurborgar hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni en Guðjón Friðriksson er níundi einstaklingurinn sem gerður er að heiðursborgara Reykjavíkurborgar. „Með því að sæma Guðjón Friðriksson heiðursborgaratitli vill Reykjavíkurborg þakka fyrir ómetanlegt framlag hans til sögunnar, menningarinnar og borgarinnar okkar,“ segir í tilkynningunni. Fengist við ýmislegt , lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1965 og BA-prófi í sagnfræði og íslensku frá Háskóla Íslands árið 1970, auk prófs í uppeldis- og kennslufræði 1971. Hann starfaði við kennslu á áttunda áratugnum en sneri sér síðan að blaðamennsku og var blaðamaður á Þjóðviljanum í nær heilan áratug, þar á meðal ritstjóri Sunnudagsblaðs Þjóðviljans. Árið 1985 var hann ráðinn af Reykjavíkurborg sem ritstjóri Sögu Reykjavíkur og sinnti því til ársins 1991. Síðan þá hefur hann verið sjálfstætt starfandi rithöfundur og sagnfræðingur. Afraksturinn er umfangsmikið ævistarf sem spannar bókaútgáfu, greina- og ritgerðaskrif og þáttagerð fyrir útvarp og sjónvarp. Guðjón Friðriksson hefur átt mikinn þátt í því að halda sögu höfuðborgarinnar til haga. mbl.is/Unnur Karen Dýpkað skilning okkar á sögu Reykjavíkur „Guðjón Friðriksson er einn fremsti sagnfræðingur og rithöfundur landsins. Í meira en hálfa öld hefur hann verið áberandi í íslensku menningarlífi, fyrst sem blaðamaður og síðar sem höfundur sagnfræðirita sem hafa dýpkað skilning okkar á sögu Reykjavíkur og íslensku samfélagi,“ segir í tilkynningu borgarinnar. „Hann hefur með störfum sínum gert söguna aðgengilega almenningi, byggt brú milli fræðimennsku og daglegs lífs. Fáir ef nokkrir hafa gert meira til að lyfta upp sögulegri sjálfsmynd Reykjavíkur en Guðjón og hin síðari ár hefur hann verið ötull að miðla sögu húsa í Reykjavík á samfélagsmiðlum.“ Fjöldi verðlauna Verk Guðjóns ná yfir vítt svið íslenskrar sögu. Má þar til dæmis nefna tveggja binda Sögu Reykjavíkur, Bærinn vaknar og ævisögur Einars Benediktssonar, Jóns Sigurðssonar, Hannesar Hafstein og Halldórs Ásgrímssonar. Þá hefur hann fjallað um sögu fjölmiðla á íslandi, samvinnuhreyfinguna, sögu fráveitu og Faxaflóahafna, sögu Rauða krossins á Íslandi og ekki síst sögu barna í Reykjavík. Allt eru þetta verk sem varpa ljósi á þróun íslensks samfélags. Guðjón hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín og er í hópi verðlaunuðustu fræðihöfunda landsins. Hann hlaut Móðurmálsverðlaun úr Minningarsjóði Björns Jónssonar árið 1985, Menningarverðlaun Visa-Íslands árið 2000 og hefur sjö sinnum verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlotið þau fjórum sinnum. Þá hefur hann hlotið Verðlaun Jóns Sigurðssonar, verið sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu og hlotið Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framúrskarandi starf í þágu íslenskrar tungu. Árið 2025 var hann útnefndur heiðursfélagi í Sagnfræðingafélagi Íslands. Heiða Björg borgarstjóri sagði í lok ræðu sinnar að henni væri heiður að fá að sæma hann nafnbótinni sem hann verðskuldaði svo sannarlega. Heiðursborgarar Reykjavíkur: séra Bjarni Jónsson, 1961 Kristján Sveinsson, 1975 Vigdís Finnbogadóttir, 2010 Erró, 2012 Yoko Ono, 2013 Friðrik Ólafsson, 2015 Þorgerður Ingólfsdóttir, 2018 Björk Guðmundsdóttir, 2024 G uðjón Friðriksson, 2026 Guðjón fæddist og ólst upp í Reykjavík. mbl.is/Golli Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan skuldar laun Dauðvona maður birtist á skrifstofu Yfir 100 vildu komast í áheyrnarprufur Gabríela tilnefnd til verðlauna á Cannes Merkingarþrungnar rimlagardínur Þórdísar Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Þorum ekki að tala um kynlíf Nýtt útilistaverk Önnu Júlíu vígt í dag „Við erum öll dansarar“ Berskjaldaðri heima á Íslandi Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Yfir 100 vildu komast í áheyrnarprufur Þorum ekki að tala um kynlíf Nýtt útilistaverk Önnu Júlíu vígt í dag Dauðvona maður birtist á skrifstofu „Við erum öll dansarar“ Berskjaldaðri heima á Íslandi Hildi vel tekið í Finnlandi Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Tæpar 183 milljónir veittar í 131 styrk Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Danska konan skuldar laun Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Yfir 100 vildu komast í áheyrnarprufur Mulholland Drive sú besta á öldinni Hvað er það versta sem þú hefur gert? Útför Björgvins Halldórssonar opin öllum „Spennandi, sexí, skemmtileg og bara best“ Sérstök íslensk mynd fer á safn í Belgíu Áhugaverð viðtöl Menning Reynir að vera sem ósýnilegust Menning Varð óvart að söngleik Menning Ómögulegt að gera þetta svona sjaldan Menning Sannleikurinn má ekki spilla góðri sögu Menning Upplifði hryllingstilfinningu Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan skuldar laun Dauðvona maður birtist á skrifstofu Yfir 100 vildu komast í áheyrnarprufur Gabríela tilnefnd til verðlauna á Cannes Merkingarþrungnar rimlagardínur Þórdísar Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Þorum ekki að tala um kynlíf Nýtt útilistaverk Önnu Júlíu vígt í dag „Við erum öll dansarar“ Berskjaldaðri heima á Íslandi Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Yfir 100 vildu komast í áheyrnarprufur Þorum ekki að tala um kynlíf Nýtt útilistaverk Önnu Júlíu vígt í dag Dauðvona maður birtist á skrifstofu „Við erum öll dansarar“ Berskjaldaðri heima á Íslandi Hildi vel tekið í Finnlandi Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Tæpar 183 milljónir veittar í 131 styrk Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Danska konan skuldar laun Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Yfir 100 vildu komast í áheyrnarprufur Mulholland Drive sú besta á öldinni Hvað er það versta sem þú hefur gert? Útför Björgvins Halldórssonar opin öllum „Spennandi, sexí, skemmtileg og bara best“ Sérstök íslensk mynd fer á safn í Belgíu Áhugaverð viðtöl Menning „Ég gef engan afslátt“ Menning Sannleikurinn má ekki spilla góðri sögu Menning Málaði trjáboli með varalitum Menning Allt yfirborðskenndara í LA Menning Berskjaldaðri heima á Íslandi