Innlent | mbl | 16.8.2026 | 15:55 Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ Guðjón Norðfjörð með börnum í ABC-skólanum í Búrkína Fasó. Ljósmynd/Guðjón Norðfjörð Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Guðjón Norðfjörð hyggst hlaupa heilt maraþon til styrktar uppbyggingu heilbrigðisþjónustu við ABC-skólann í Bobo-Dioulasso í Búrkína Fasó. Þjónustan mun nýtast bæði börnum í skólanum og íbúum hverfisins. Uppbyggingin er þegar hafin og segir Guðjón tæpar tvær milljónir króna hafa safnast. Áætlað er að um sjö milljónir króna þurfi til að koma aðstöðunni upp en að því loknu þarf að finna styrktaraðila til að styðja við reksturinn. Heilbrigðisþjónustan mun bera nafnið Arna Heilbrigðisþjónusta, til minningar um Örnu Hansen, eiginkonu Guðjóns. Mikil hlaupafjölskylda Í samtali við mbl.is segist Guðjón hafa stundað langhlaup í mörg ár. Hann hefur hlaupið nokkur heil maraþon og mörg hálfmaraþon auk þess að hafa lokið nokkrum hálfum járnkörlum og tveimur heilum. Í júlí hljóp hann jafnframt 55 kílómetra Laugavegshlaupið og þá í þriðja skiptið. Langhlaup og þríþrautir hafa raunar lengi verið sameiginlegt áhugamál hjá fjölskyldunni. Árið 2022 tók fjölskyldan þátt í járnkarli á Ítalíu þar sem Guðjón, börn hans Ísak, Nökkvi og Ísold og tengdasonurinn Sveinn Þráinn Guðmundsson luku heilum járnkarli og Arna Hansen, eiginkona Guðjóns, lauk hálfum. Mynd af fjölskyldunni eftir að hafa öll klárað Ironman. Frá vinstri eru Arna Hansen, Nökkvi Norðfjörð, Sveinn Þráinn Guðmundsson, Ísöld Norðfjörð, Ísak Norðfjörð og Guðjón Norðfjörð. Ljósmynd/Aðsend Afþökkuðu blóm og kransa Arna lést 31. maí síðastliðinn. Hún bar mikinn hlýhug til ABC starfsins í Búrkína Fasó að sögn Guðjóns og vildi hún að blóm og kransar yrðu afþökkuð vegna jarðarfarar hennar og í staðinn yrði starfið styrkt í hennar minningu. Margir urðu við óskinni og söfnuðust um 1,3 milljónir. „Þetta var hennar ósk,“ segir Guðjón. „Við vissum svo sem ekkert hvort fólk myndi leggja einhvern pening inn á reikninginn en síðan kom svo mikið inn að við fórum að velta fyrir okkur hvort allur þessi peningur gæti ekki farið í eitt ákveðið verkefni í nafni Örnu.“ Arna Hansen árið 2018. Ljósmynd/Guðjón Norðfjörð Stóð til að stækka heilbrigðisþjónustuna Guðjón segist hafa stungið upp á að féð yrði nýtt í eitthvað heilbrigðistengt. „Arna var hjúkrunarfræðingur og átti langan starfsferil innan heilbrigðis- og lyfjageirans. Þegar hún kom til Búrkína Fasó árið 2018 var hún að hjálpa til í þessari litlu heilsugæslu sem starfrækt er þar.“ Jóhanna Sólrún Norðfjörð, systir Guðjóns, sem heldur utan um starfið í Búrkína Fasó í samstarfi við ABC á Íslandi, ásamt eiginmanni sínum Haraldi Pálssyni, benti þá á að það stæði til að stækka heilsugæsluna og að heimamenn vildu efla þjónustuna við börnin. Í kjölfarið var haft samband við Kadí Sun, framkvæmdastjóra skólans, og aðra sem stýra starfinu í Búrkína Fasó og spurt hvort söfnunarféð gæti runnið til uppbyggingar heilbrigðisþjónustunnar og hvort hún mætti bera nafn Örnu. Guðjón segir að því hafi verið afar vel tekið Lítið sár orðið meiriháttar vandamál Guðjón segir mikla þörf fyrir bætta heilbrigðisþjónustu á svæðinu en þegar fjölskyldan kom þangað árið 2018 var aðeins lítil heilsugæsla á skólalóðinni. „Það er ekki beint heilsugæsla þarna heldur lítil aðstaða á skólalóðinni fyrir krakkana þar sem þau geta fengið sárabindi og einhver smá lyf. Það er mjög algengt hjá krökkum þarna úti að þau kannski detti, meiði sig og fái sár af því eða fái sár eftir bruna, sem er mjög algengt, og svo hafa þau ekki efni á að fara til læknis eða þurfa að labba marga kílómetra. Fyrir vikið er ekkert gert og síðan kemur sýking í sárið. Þá er þetta litla sár, sem getur verið einfalt að laga, orðið meiriháttar vandamál,“ segir hann. Heilsugæslustofa hjá skólanum árið 2018. Ljósmynd/Guðjón Norðfjörð Opin fyrir krakkana og fólkið í hverfinu Áætlaður kostnaður við uppbygginguna er um sjö milljónir króna að sögn Guðjóns. Hann segir bæði vinnu og efni kosta tiltölulega lítið miðað við það sem við þekkjum hér heima. Með uppbyggingu sem þessari taka þau einnig þátt í atvinnusköpun á svæðinu. Sótt hefur verið um leyfi hjá yfirvöldum í Búrkína Fasó til að reka heilbrigðisþjónustuna og apótek henni samhliða, segir Guðjón og liggja teikningar fyrir. „Þannig að þessi heilbrigðisþjónusta er á lóðarmörkunum og hún verður opin fyrir krakkana í skólanum og svo verður hún opin út á götu líka, þannig að fólk í hverfinu getur komið og nýtt aðstöðuna.“ Rúmlega 1.400 börn í skólanum Skólinn hefur stækkað mikið á undanförnum árum og eru þar nú rúmlega 1.400 börn. Guðjón segir að í kringum skólann hafi jafnframt byggst upp samfélag þar sem börnin fá máltíðir og foreldrar þeirra taka virkan þátt í starfinu og nýta aðstöðuna. Á skólalóðinni hefur meðal annars verið byggð upp íþrótta- og tómstundaaðstaða auk þess sem borað hefur verið eftir vatni og er þar nú nægt rennandi vatn. Fólk bíður eftir að ná sér í vatn í Búrkína Fasó. Ljósmynd/Guðjón Norðfjörð „Fátæktin er víðfeðm“ Guðjón hefur farið nokkrum sinnum til Búrkína Fasó og segir að aðstæðurnar þar hafi mikil áhrif á sig í hvert skipti. „Ég er búinn að fara nokkrum sinnum og í hvert skipti verð ég jafn sleginn. Það er alveg magnað hvernig fólk lifir þarna. Ég hef séð fátækrahverfi annars staðar í heiminum en fátæktin er víðfeðm í Búrkína Fasó, þetta er í raun allt landið.“ Hann segir innviði víða bágborna og vegina í kringum skólann mikið holótta moldarvegi. Mörg barnanna í skólanum búi jafnframt í leirkofum sem geti skemmst eða hrunið í miklum rigningum. Guðjón segir flestalla eldun fara fram utandyra þar sem eldað er yfir eldiviði með potti á steinum. Ljósmynd/Guðjón Norðfjörð Guðjón segir að þrátt fyrir erfiðar aðstæður sé hægt að koma miklu til leiðar með þeim fjármunum sem safnast. „Það er hægt að gera svo mikið fyrir tiltölulega litla fjármuni,“ segir hann. Hann segist jafnframt þakklátur þeim fjölmörgu sem þegar hafa lagt verkefninu lið. „Við erum náttúrulega endalaust þakklát fyrir alla þá sem hafa stutt við verkefnið og þá sem lögðu inn peninga hjá ABC í minningu Örnu í tengslum við jarðarförina. Það er bara langur nafnalisti og auðvitað stórkostlegt hvað fólk er viljugt að styðja við og styrkja.“ Hægt er að heita á Guðjón á hlaupastyrkur.is og rennur söfnunarféð til ABC barnahjálpar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þurfti að hætta sundi eftir 13 tíma vegna meiðsla Ronaldo: „Þetta er örugglega síðasta tímabilið mitt“ Tveir látnir í gróðureldum nærri Aþenu Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ Arsenal fór illa með City Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Er spjót Bjólfs loks heimt úr jörðu? Tröllin mín eru hamingjusöm Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Getur farið á hvorn veginn sem er Mest lesið Í gær Í vikunni Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara Nærri uppselt á kappræðurnar „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Heppinn spilari fékk rúmlega 800 þúsund krónur Frumsýning og sonur í sömu vikunni „Ávísun á leigumorðingja“ Kolrassa krókríðandi reimar á sig skóna Kirkja afhelguð og fer í fóstur Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Vissu að ekki yrði samið við ESB Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Segja kostnaðinn fimmfalt hærri „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Inga: „Þetta er fámennur gagnrýninn hópur“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Þurfti að hætta sundi eftir 13 tíma vegna meiðsla Ronaldo: „Þetta er örugglega síðasta tímabilið mitt“ Tveir látnir í gróðureldum nærri Aþenu Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ Arsenal fór illa með City Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvissa um framtíð Gallerý Pizza eftir 30 ár á sama stað Myndu mæta og „klára málið fyrir hádegi“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig „Ávísun á leigumorðingja“ Mest lesið Í gær Í vikunni Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara Nærri uppselt á kappræðurnar „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Heppinn spilari fékk rúmlega 800 þúsund krónur Frumsýning og sonur í sömu vikunni „Ávísun á leigumorðingja“ Kolrassa krókríðandi reimar á sig skóna Kirkja afhelguð og fer í fóstur Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Vissu að ekki yrði samið við ESB Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Segja kostnaðinn fimmfalt hærri „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Inga: „Þetta er fámennur gagnrýninn hópur“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna