Tilnefningarnefnd Haga hefur lagt til að Orri Hauksson, stjórnarformaður First Water og fyrrverandi forstjóri Símans, verði kosinn í stjórn smásölufyrirtækisins á aðalfundi þess 21. maí næstkomandi. „Hann er með framúrskarandi reynslu, m.a. sem forstjóri félags á neytendamarkaði í 11 ár, sem mun eflaust nýtast Högum vel til framtíðar,“ segir í skýrslu tilnefningarnefndar. Orri myndi þá taka sæti í stjórninni í stað Jensínu Böðvarsdóttur sem hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri. Hún hefur setið í stjórninni í sex ár. Tilnefningarnefndin leggur því til að eftirtalin verði kjörin í stjórn Haga: Eiríkur S. Jóhannsson stjórnarformaður, fyrst kjörinn árið 2019 Einar Örn Einarsson, setið í stjórn frá árinu 2025 Eva Bryndís Helgadóttir, setið í stjórn frá árinu 2020 Sigríður Olgeirsdóttir, setið í stjórn frá árinu 2022 Orri Hauksson Í skýrslunni kemur fram að alls hafi borist 9 formleg framboð til stjórnar Haga og voru þau frá fjórum núverandi stjórnarmönnum og fimm frá öðrum. Hagar, móðurfélag Bónus, Hagkaups og Olís, birtu í gær ársuppgjör fyrir fjárhagsárið 2025/26 sem lauk 28. febrúar sl.. Smásölufyrirtækið velti 197 milljörðum króna og hagnaðist um 7,7 milljarða. Sjá einnig Hagar leggja til 3,3 milljarða arðgreiðslu