Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Laun stjórnarmanna Haga hækka um 3,5%

Read Full Article →

Aðal­fundur Haga samþykkti í dag 3,5% hækkun stjórnar­launa félagsins. Sam­kvæmt samþykkt fundarins fær stjórnar­for­maður Haga 855 þúsund krónur á mánuði, vara­for­maður 629 þúsund krónur og al­mennir stjórnar­menn 427.500 krónur á mánuði. Laun í undir­nefndum stjórnar hækka einnig um 3,5%. Laun í endur­skoðunar­nefnd verða 114 þúsund krónur á mánuði og fær for­maður nefndarinnar tvöfalda þá fjár­hæð. Laun í starfs­kjara­nefnd verða 98.500 krónur á mánuði og fær for­maður einnig tvöfalda fjár­hæð. Þá var samþykkt að nefndar­menn til­nefningar­nefndar fái greitt sam­kvæmt reikningi, 28 þúsund krónur á klukku­stund. Á fundinum var einnig samþykkt að greiða hlut­höfum 3,03 krónur á hlut í arð, eða sam­tals 3,3 milljarða króna. Arð­leysis­dagur verður 22. maí og arð­greiðslu­dagur 2. júní. Fimm voru í fram­boði til stjórnar og var því sjálf­kjörið. Í stjórn Haga voru kjörin Einar Örn Einars­son, Eiríkur S. Jóhanns­son, Eva Bryndís Helga­dóttir, Orri Hauks­son og Sigríður Ol­geirs­dóttir. Sjá einnig Tilnefna Orra í stjórn Haga

Share this article