Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Halla himinlifandi eftir konunglegt afmæli

Read Full Article →

Innlent | mbl | 1.5.2026 | 19:52 Halla himinlifandi eftir konunglegt afmæli Margrét Þórhildur, fyrrverandi drottning Dana, ásamt Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í Stokkhólmi í gær þar sem öllu var tjaldað til við 80 ára afmæli Karls Gústafs XVI Svíakonungs. Ljósmynd/Skrifstofa forseta Íslands Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta var virkilega skemmtileg og hlýleg afmælishátíð. Við náðum að taka þátt í allri dagskrá sjálfs afmælisdagsins sem hófst á messu um morguninn og hélt svo áfram með ýmsum atburðum í og við höllina,“ segir Halla Tómasdóttir forseti Íslands um veglega 80 ára afmælishátíð Karls Gústafs XVI Svíakonungs í Stokkhólmi í gær. „Skemmtilegast fannst mér þegar sænsku börnin mættu prúðbúin og færðu kónginum sínum blóm. Svo var hádegisverður í Ráðhúsi Stokkhólms og um kvöldið hátíðarkvöldverður í höllinni. Það voru margir sem sýndu listir sínar og mikið um kórsöng og um kvöldið fór fólk fögrum orðum um kónginn sinn. Svo við fórum sannarlega ekki varhluta af þeirri upplifun sem 80 ára afmæli konungs er, þess núverandi þjóðhöfðingja sem setið hefur lengst allra í Svíþjóð,“ segir Halla um afmælisboð þeirra Björns Skúlasonar eiginmanns hennar hjá konungi Svíþjóðar. Halla var ánægð með heimsóknina og hafði á orði hve fróðir ýmsir erlendir þjóðhöfðingjar og fylgdarfólk þeirra væru um Ísland og íslenska þjóð. Ljósmynd/Skrifstofa forseta Íslands Í huga forsetans ríkir fyrst og fremst þakklæti fyrir vel heppnaða og lærdómsríka heimsókn. „Það er ekki oft sem manni gefst færi á að eiga svo góðar samræður við aðra þjóðhöfðingja eins og gefst færi á við svona aðstæður. Ég ræddi meðal annars heilmikið við Alexander Stubb forseta Finnlands, við þekkjumst nú þegar en það er afar verðmætt að ná samtali í eigin persónu, ekki síst í ljósi núverandi stöðu heimsmála. En þarna voru ekki bara þjóðhöfðingjar Norðurlandanna heldur ýmsir aðrir, til dæmis konungur Taílands sem kom með 40 manna fylgdarliði sem fór ekki fram hjá neinum. Það var skemmtilegt að upplifa hvað samfélag Taílendinga í Svíþjóð fagnaði því innilega að hann léti sjá sig. Þá átti ég einnig langt og gagnlegt samtal við Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar,“ segir Halla sem sat við borð afmælisbarnsins í hádegisverðinum og sat þar með Haraldi Noregskonungi og Margréti Þórhildi, fyrrverandi drottningu Dana. Stöðugleiki á tíma konungs „Dagskráin var stórglæsileg í alla staði. Reyndar er það nánast yfirþyrmandi hvað mikið er lagt í viðburð á borð við þennan en það var virkilega gaman að sjá hvað Karl Gústaf er í miklum metum hjá sinni þjóð sem virðist kunna einkar vel við þann stöðugleika sem hann færir þjóðinni um leið og hann er líka maður framfara,“ heldur forsetinn áfram og skýrir mál sitt, þar sem greinilega kemur fram að Svíakonungur er annað og meira en einhver sjálfkjörinn karl sem hangir inni á skrifstofu eða inni í sinni höll. „Hann virðist afar vel að sér á öllum sviðum samfélagsins og er sagður forvitinn, les mikið og leggur gríðarlega mikið upp úr því að fylgjast með því sem er að gerast í framþróun á flestum sviðum. Maður kemur ekki að tómum kofunum hjá Karli Gústaf í umræðuefnum, hann er alveg með það á hreinu hvað er að gerast í þróun heilbrigðistækni, gervigreindarbyltingunni og menningar- og atvinnulífi Svíþjóðar. Hann tekur virkan þátt í þjóðlífinu og fylgist vel með,“ segir forsetinn. Þetta kunni Svíar vel að meta. Þjóðhöfðingar fjölmenntu í veisluna og sátu fyrir á hópmynd ásamt afmælisbarninu Karli Gústaf og Silvíu drottningu. Ljósmynd/Sænska konungshöllin Vel fróðir um Ísland Ekki hafi það verið síður áhugavert að finna hve vel aðrir þjóðhöfðingjar og fylgdarlið þeirra fylgist með íslensku samfélagi og helstu áherslum. „Fólk úr öllum áttum var að ræða við mig um þekkingu og reynslu Íslendinga af virkjun jarðhita, á því sviði tel ég Ísland standa frammi fyrir stórum tækifærum enda orkumálin víða efst á baugi. Jafnréttismálin ber einnig oft á góma og fólk lýsir iðulega áhuga sínum á að heimsækja Ísland, eða jákvæðri reynslu sinni hafi það gert það, nú eða hlustað á íslenska tónlist eða lesið íslenskar bókmenntir,“ lýsir forsetinn. Halla kveðst um langt árabil hafa barist fyrir jafnréttismálum og hvatt stúlkur og konur til að virkja kraft sinn og það hafi aðrir gert á undan henni. „Þessi barátta öll skilar sér, til okkar er litið í samfélagi þjóðanna fyrir jafnrétti og jöfn tækifæri sem hefur skilað okkur bæði efnahagslegum og samfélagslegum framförum. Þú trúir því ekki hve margir komu að máli við mig um þetta, einnig þjóðhöfðingjar og fulltrúar fjarlægra landa, því fólk fylgist með því sem er að gerast á Íslandi og sér okkar styrkleika vel, jafnvel betur en við sjálf,“ segir forsetinn sem kunni einnig að meta mörg samtöl við ættmenni konungsfjölskyldna Norðurlandanna um stöðu og líðan ungs fólks, sem er mál sem virðist þeim öllum ofarlega í huga. Björn og Halla stilla sér upp til beggja handa Mikaels Holm, Aide-de-Camp Commandante, sem er starfsmannastjóri konungshallarinnar. Ljósmynd/Skrifstofa forseta Íslands „Framtíð hvers samfélags er jafn björt og staða og líðan ungs fólks er í dag og þetta skilja allir sem leggja upp úr langtímahugsun og kynslóðajafnrétti,“ segir Halla. „Það var aðdáunarvert að heyra og finna að börn og ungmenni eru ofarlega í huga konungsfjölskyldunnar, ekki síst Viktoríu krónprinsessu, sem mun taka við af föður sínum, og fengu þau sinn sess í dagskránni,“ segir Halla Tómasdóttir forseti Íslands að lokum, nýlent á Íslandi eftir heimsókn í Svíþjóð sem vissulega snerist um afmæli konungsins en var engu að síður annað og meira en bara afmælisveisla. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Grindavík - Njarðvík, staðan er 47:42 Bjarni á skotskónum í tapi Halla himinlifandi eftir konunglegt afmæli Grátlegt tap Íslendinganna Stórleikur Hauks í Íslendingaslagnum Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Jón Gnarr sendi RÚV ekki reikning Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Mest lesið Í gær Í vikunni Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Herjólfur III verður klár í næstu viku Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Nýjast á mbl.is » Grindavík - Njarðvík, staðan er 47:42 Bjarni á skotskónum í tapi Halla himinlifandi eftir konunglegt afmæli Grátlegt tap Íslendinganna Stórleikur Hauks í Íslendingaslagnum Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Akranes: Kappræður oddvita Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Mest lesið Í gær Í vikunni Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Herjólfur III verður klár í næstu viku Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum

Share this article