Innlent | Morgunblaðið | 2.5.2026 | 12:07 „Við erum nánast ósýnileg“ Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Samantekt 12:09 12:07 Frétt: „Við erum nánast ósýnileg“ 12:05 Frétt: X26: Ætla sér stórsókn í ferðaþjónustu 22:20 Frétt: Nýtt útspil Sósíalistaflokksins mælist misvel fyrir Mikil innviðauppbygging hefur átt sér stað á Akranesi undanfarin ár, meðal annars í skóla- og íþróttamannvirkjum, en tími er kominn á að endurnýja gatnakerfið sem lítið hefur verið hlúð að síðustu áratugi. Þá er nauðsynlegt að koma Akranesi á kortið í ferðaþjónustu og byggja upp hafnarsvæðið, meðal annars með tilliti til skemmtiferðaskipa. Þetta er meðal þess sem oddvitar framboða í sveitarstjórnarkosningum á Akranesi tókust á um í kappræðum í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum. Þar mættust þau Ragnar Baldvin Sæmundsson oddviti Framsóknar, Sigurður Vopni Vatnsdal oddviti Samfylkingarinnar, Líf Lárusdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins, Hrafn Ágúst Björnsson oddviti Miðflokksins og Jón Guðni Guðmundsson oddviti Viðreisnar. „Gatnakerfið okkar er gamalt. Þetta er gríðarlegt átak sem við þurfum að fara í. Margar götur eru orðnar 70 ára gamlar. Það er verkefni sem hefur setið á hakanum, en má aldrei stoppa. Þær götur sem við lögum í dag eru orðnar gamlar á morgun,“ segir Ragnar oddviti Framsóknar. Sigurður Vopni oddviti Samfylkingar tekur undir og bendir á að níu af hverjum tíu íbúum sveitarfélagsins hafi nefnt gatnakerfið þegar spurt var út í aðkallandi mál, fyrir síðustu fjórar kosningar. 400 milljónir hafi verið settar í endurbætur á gatnakerfinu síðustu ár, en það dugi ekki til. Opna bókhaldið Oddvitarnir eru sammála um að einblína þurfi á innviði í stækkandi samfélagi og stendur sveitarfélagið frammi fyrir þeirri áskorun að þurfa að öllum líkindum að fjölga um eina leikskóladeild á ári næstu fimm árin. Þá þurfi að huga að undirbúningi nýs grunnskóla og nýrrar sundlaugar. Oddviti Framsóknar vill meina að skólarnir séu orðnir of þéttsetnir nú þegar. „Við erum í raun með ofsetna skóla og til að mæta þeim markmiðum sem við höfum sett okkur þurfum við að fjölga um eina deild, en við þurfum jafnframt að hefja byggingu á nýjum leikskóla á neðri Skaga,“ segir Ragnar. Þá þurfi að klára uppbyggingu á búsetuúrræði fyrir fatlaða og efla atvinnutækifæri fyrir fyrir þann hóp. Líf oddviti Sjálfstæðisflokksins bendir á að sveitarfélagið hafi fjárfest fyrir um 12 milljarða á síðustu árum og að eignasafn bæjarins hafi tvöfaldast. Minna fjármagn hafi hins vegar farið í götur á meðan einblínt var á uppbyggingu skólahúsnæðis og íþróttamannvirkja. Segir hún að þrátt fyrir að kreppt hafi að í rekstri á kjörtímabilinu þá hafi verið ráðist í gerð nýrra gatna í nýju atvinnu- og íbúðahverfi. Vilja tvöfalda frístundastyrk Hrafn Ágúst oddviti Miðflokksins segir mikilvægt að forgangsraða betur í framkvæmdum og kallar eftir meira gagnsæi í rekstri sveitarfélagsins. „Þetta eru peningarnir okkar sem eru að fara í nákvæmlega þessi málefni,“ segir hann og hvetur til opins bókhalds svo íbúar Akraness hafi betri yfirsýn yfir það hvað peningarnir fara í. Líf segir það í vinnslu og gerir ráð fyrir að í maí verði bókhaldið orðið opið. Skuldir bæjarins hafa aukist samhliða þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað og ljóst er að áframhaldandi uppbygging krefst fjármagns. Sigurður segir fjárhagsstöðuna vera nokkuð góða þrátt fyrir að skuldir hafi aukist. Þá tekur hann fram að mikilvægt sé að horfa líka á litlu hlutina, ekki bara einblína á þá stóru. Tekur hann sem dæmi frístundastyrkinn sem Samfylkingin vill tvöfalda og hækka úr 40 þúsund krónum í 80 þúsund krónur. Jón Guðni oddviti Viðreisnar segir að skoða þurfi í hvað peningarnir fari, þrátt fyrir að mikilvægt sé að halda uppbyggingunni áfram í stækkandi samfélagi. Öll eru þau á því að vilja lækka álögur á íbúa og halda aftur af hækkun gjaldskráa. Ragnar nefnir að Framsókn vilji tryggja að álögur séu í takt við það sem nauðsynlegt sé en segir ekki eðlilegt að fasteignagjöld hækki mikið aðeins vegna hækkunar fasteignaverðs. Ætla að „lyfta Akranesi“ Töluvert hefur verið fjárfest í atvinnuhúsnæði fyrir utan bæinn í svokölluðum grænum iðngörðum í Flóahverfi en uppbygging svæðisins hefur ekki gengið að óskum. Er því velt upp hvort miklar kröfur á fyrirtæki vegna umhverfissjónarmiða séu of hamlandi. Þau eru sammála um að þrýsta þurfi á um innviði á svæðinu eins og vatn og rafmagn. Það þurfi raunhæft plan svo svæðið geti orðið spennandi valkostur fyrir fyrirtæki. Á síðasta kjörtímabili hófust framkvæmdir við stækkun hafnarinnar sem sér nú fyrir endann á. Ragnar segir tækifærin varðandi höfnina ekki endilega í augsýn núna en að þau muni koma. „Hafnir eru ekki byggðar til áratuga, þær eru byggðar til árhundraða.“ Sigurður tekur undir að mikilvægt sé að horfa til framtíðar varðandi hafnarsvæðið. Bendir hann á að byggja þyrfti upp svæðið ef skemmtiferðaskip eigi að geta lagst að bryggju. „Það er fullt af tækifærum í hafnsækinni starfsemi í dag, bæði í ferðaþjónustu og einmitt í því var áður lífæðin á Akranesi.“ Sjálfstæðisflokkurinn leggur mikla áherslu á að koma Akranesi á kortið í ferðaþjónustu. „Við erum nánast ósýnileg. Við eigum allan þennan iðnað eftir,“ segir Líf. „Við ætlum okkur í stórsókn í ferðaþjónustu,“ bætir hún við. Jón Guðni tekur undir og segir Viðreisn vilja „lyfta upp Akranesi.“ Frumkvöðlasetur hefur verið byggt á Breiðinni en uppbygging á svæðinu er ekki hafin að ráði. Bæjarstjórnin hefur átt í samtali við Brim, sem á stærstan hluta lóðarinnar, og segir Ragnar það samtal væntanlega halda áfram. Mikilvægt sé hins vegar að gæta þess að þrengja ekki að höfninni og horfa á uppbyggingu svæðisins með augum íbúa. Kappræðurnar í hljóð og mynd má nálgast á mbl.is og Spotify. Fimm framboð bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi, þar af tvö í fyrsta sinn. Morgunblaðið/María Matthíasdóttir Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang 12:09 12:07 „Við erum nánast ósýnileg“ Mikil innviðauppbygging hefur átt sér stað á Akranesi undanfarin ár, meðal annars í skóla- og íþróttamannvirkjum, en tími er kominn á að endurnýja gatnakerfið sem lítið hefur verið hlúð að síðustu áratugi Meira 12:05 X26: Ætla sér stórsókn í ferðaþjónustu Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí, en þá verður efnt til kosninga í 62 sveitarfélögum landsins af öllum stærðum og gerðum. Meira Í gær, 22:20 Nýtt útspil Sósíalistaflokksins mælist misvel fyrir Bílastæðaforritið Rósa Parks er nýjasta útspil framboðs Sósíalistaflokksins í Reykjavík, en forritinu er ætlað að koma í stað bílastæðaforrita í eigu einkafyrirtækja á borð við Easypark og Parka, sem hagnast hafa á þjónustugjöldum. Meira Í gær, 20:00 Ávarp Kristrúnar hluti af nálgun flokksins Ávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á jafnaðarkaffi Samfylkingarinnar í Iðnó í dag er hluti af nálgun flokksins í kosningabaráttunni sem nú stendur yfir í aðdraganda sveitastjórnarkosninga, að sögn Jónasar Más Torfasonar, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi. Meira Í gær, 17:20 Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir það undarlega að forsætisráðherra, ráðist sérstaklega á Kópavog enda hafi bærinn unnið hvað mest að því að finna lausnir í leikskólamálum. Meira Í gær, 15:35 Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skaut föstum skotum að bæjarstjórnarmeirihlutanum í Kópavogi í ávarpi sínu á verkalýðskaffi Samfylkingarinnar í dag. Meira Í gær, 13:30 Akranes: Kappræður oddvita Mikil uppbygging, skuldsetning, leikskólar, atvinnumál og framtíð hafnarsvæðisins voru meðal þess sem tekist var á um í oddvitakappræðum á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Fimm framboð taka þátt í kosningunum og ljóst að áherslurnar eru víða svipaðar þótt leiðirnar séu ólíkar. Meira í gær Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Borgarbyggð gengur nú í fyrsta skipti til kosninga eftir sameiningu við Skorradalshrepp. Töluverð uppbygging hefur átt sér stað á kjörtímabilinu og gert er ráð fyrir að hún haldi áfram næstu árin. Ýmsar áskoranir hafa fylgt móttöku flóttafólks frá Úkraínu og breytingar á lögum um jöfnunarsjóð hafa haft neikvæð áhrif á sveitarfélagið. Meira í fyrradag Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, spurði oddvitana hvort þeir ætli að beita sér fyrir breytingum á Suðurlandsbrautarskipulaginu. Meira í fyrradag Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Uppbygging, fjármál sveitarfélagsins og grunnþjónusta voru í forgrunni í oddvitakappræðum Borgarbyggðar í Hádegismóum. Meira í fyrradag Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar á fjölmennum borgarafundi Mikill áhugi virðist vera á sveitarstjórnarkosningunum í Fjarðabyggð ef marka má mætinguna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is þar sem oddvitar fjögurra framboða tókust á um rekstur sveitarfélagsins, atvinnuuppbyggingu, samgöngur og þjónustu við íbúa. Meira í fyrradag Frelsi frá „fáránleika og brjálæði“ bílastæðaappa Sósíalistaflokkurinn ætlar að gefa Reykjavíkurborg nýtt bílastæðaapp sem flokkurinn hefur þróað, sem hann kallar Rósu Parks. Meira 30.4. Unnu í raun í Víkingalottóinu Tjörneshreppur er fámennasti hreppur landsins en lætur ekki smæðina stöðva sig. Í samtali við Morgunblaðið í félagsheimilinu Sólvangi fer Aðalsteinn J. Halldórsson oddviti yfi