Innlent | mbl | 3.9.2026 | 16:30 Vilja byggja upp gagnaverssvæði á Akranesi Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri, Bjarni Ármannsson og Alexander Eiríksson undirrita viljayfirlýsinguna. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Akraneskaupstaður og félag í eigu Alexanders Eiríkssonar, Bjarna Ármannssonar og Benedikts Bjarnasonar hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa á Akranesi. Að því er segir í tilkynningu munu eigendur félagsins leiða undirbúning og þróun verkefnisins í góðu samstarfi við Akraneskaupstað. Gert er ráð fyrir að gagnaverssvæðið verði byggt upp í sjálfstæðum áföngum sem teknir verða í notkun eftir því sem verkefninu vindur fram. Mikil áhersla verður lögð á að þróa lausnir til að nýta glatvarma frá gagnaverunum, meðal annars til framleiðslu á heitu vatni. Samhliða verður stefnt að uppbyggingu hvers konar atvinnustarfsemi á svæðinu sem getur nýtt varmann, til dæmis í matvælaframleiðslu, ylrækt og annarri varmaháðri starfsemi. Með því skapast tækifæri til betri orkunýtingar, aukinnar verðmætasköpunar og fjölbreyttari atvinnuuppbyggingar á Akranesi. Viljayfirlýsingin gildir í 24 mánuði og er stefnt að því að ná samkomulagi um framhald og nánari útfærslu verkefnisins innan þess tíma. Sturlaugur, Bjarni og Alexander ásamt bæjarstjórn Akraneskaupstaðar og Sigurði Páli Harðarsyni sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs bæjarins. Ljósmynd/Aðsend Gera ráð fyrir að fjöldi starfa fylgi uppbyggingunni „Það er gríðarlegur vöxtur í uppbyggingu gagnavera um þessar mundir, meðal annars vegna örrar framþróunar gervigreindar. Það er mikið gleðiefni fyrir Akraneskaupstað að þessir öflugu Skagamenn hafi gengið til samstarfs við sveitarfélagið um þróun gagnavers og tengdrar atvinnustarfsemi í Grjótkelduflóa,“ er haft eftir Sturlaugi Haraldssyni bæjarstjóra. Svæðið sé vel til þess fallið að hýsa starfsemi af þessu tagi og staðsetning Akraness jafnframt hentug. Þá njóti svæðið stöðugleika gagnvart eldsumbrotum. Gert er ráð fyrir að fjöldi sérhæfðra starfa fylgi uppbyggingunni auk þess sem fjöldi fólks mun koma að uppbyggingunni á framkvæmdatíma. „Miklar framfarir hafa orðið á undanförnum árum í nýtingu glatvarma frá gagnaverum. Sú þróun skapar spennandi möguleika á frekari atvinnuuppbyggingu í fjölbreyttum greinum og getur stuðlað að því að orkan nýtist með enn hagkvæmari og sjálfbærari hætti,“ er enn fremur haft eftir bæjarstjóranum. „Þetta er metnaðarfullt og spennandi verkefni sem getur haft verulega jákvæð áhrif á atvinnulíf og samfélag á Akranesi. Það verður afar ánægjulegt að fylgjast með framvindu þess.“ Þá segist Bjarni Ármannsson sjá mikil tækifæri í uppbyggingu gagnaverssvæðis á Akranesi: „Staðsetningin, aðstæður til áfangaskiptrar uppbyggingar og möguleikar á nýtingu glatvarma skapa sterkan grunn að verkefni sem getur laðað að sér fjárfestingu og stutt við fjölbreytt atvinnulíf til framtíðar.“ Frétt af mbl.is Vilja gagnaver á Akranes Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mikilvægir leikmenn fjarverandi hjá Arsenal Kanna hrygningu í Ytri og bara leyfð fluga Gerði ilm til minningar um vinkonu Vaxtarsprotinn óx um 260% Sanchez segir engar sannanir liggja fyrir Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kölluðu Rússa á teppið vegna drónaárásar Brot sem verða að hafa afleiðingar Eins og blaut tuska Stjórnsýslukæru Sorpu vísað frá Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Eins og blaut tuska Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Mjóu dósirnar kláruðust Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Heildartekjur að meðaltali 875 þúsund Leita að vitnum eftir meiriháttar skemmdarverk Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Mikilvægir leikmenn fjarverandi hjá Arsenal Kanna hrygningu í Ytri og bara leyfð fluga Gerði ilm til minningar um vinkonu Vaxtarsprotinn óx um 260% Sanchez segir engar sannanir liggja fyrir Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einn af hverjum sex fólksbílum frá Kína „Hópur“ af vitnum kallaður til lögreglu „Stærri bilun en við áttum von á“ Leita að vitnum eftir meiriháttar skemmdarverk Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Eins og blaut tuska Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Mjóu dósirnar kláruðust Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Heildartekjur að meðaltali 875 þúsund Leita að vitnum eftir meiriháttar skemmdarverk Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar