Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 17 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Fjármálaáætlun og orkunýting á dagskrá þingsins Brynjólfur Þór Guðmundsson Fjórtán mál eru á dagskrá þingfundar sem hefst á Alþingi klukkan 10:30. Fundurinn hefst á óundirbúnum fyrirspurnatíma. Því næst eru á dagskrá atkvæðagreiðslur um afdrif og framgang níu þingmála, þar á meðal þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun næstu fimm ára. Því næst taka við umræður um atvinnuréttindi útlendinga, 1100 ára afmæli Alþingis og vernd- og orkunýtingu landsvæða. Stefnt er að því að ljúka þingstörfum í þessari viku. Alþingishúsið. RÚV / Ari Páll Karlsson Fyrir 9 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Biður um aukinn stuðning eftir nýjustu árásir Rússa Brynjólfur Þór Guðmundsson Úkraínski flugherinn segir að Rússar hafi skotið 70 eldflaugum og 611 drónum að Úkraínu í nótt, flestum þeirra að höfuðborginni Kyiv. Hellaklaustrið, Pechersk Lavra, stóð í ljósum logum eftir árásirnar. Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, hvatti leiðtoga G7-ríkjanna til að auka þrýsting sinn á Rússa. Þeir hittast á fundi í Frakklandi. Zelensky sagði mikilvægt að leiðtogarnir yrðu afdráttarlausir í viðbrögðum sínum og létu aðgerðir fylgja. Hann sagði að auk þrýstings á Rússa þyrftu Úkraínumenn aukinn stuðning við loftvarnir sínar, sérstaklega til að verjast eldflaugum Rússa. Avraamiy fylgist með klaustrinu brenna. AP / Evgeniy Maloletka Fyrir 44 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hlýjast á Norðausturlandi í dag Hiti gæti farið í 19 stig norðaustanlands í dag. Léttskýjað verður þar og austanlands. Útlit er fyrir einhverja rigningu norðvestan til. Fyrir 54 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Marius Borg Høiby dæmdur í fjögurra ára fangelsi Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákonar, krónprins Noregs, var í morgun dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Óslóar. Fyrir 59 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Spánverjar mæta til leiks Í dag eru fjórir leikir á dagskrá á heimsmeistaramóti karla í fótbolta. Spánverjar mæta til leiks. Þeir mæta Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik keppninnar sem hefst klukkan 16:00. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Mótorsport Langyngsti keppandinn smíðaði bleika tryllitækið Túttuna Thelma Lind Árnadóttir hefur vakið mikla athygli í fyrstu torfærukeppnum sumarsins. Ekki bara fyrir það að konur hafi verið fáar í torfærukeppnum í gegnum tíðina, heldur líka fyrir það að hún er bara 17 ára og smíðaði tryllitækið sem hún keppir á sjá Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Svíar léku á als oddi gegn Túnis Svíar unnu stórsigur á Túnisbúum 5–1 í fyrsta leik liðanna á HM í fótbolta í nótt. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Dánaraðstoð aftur á dagskrá breska þingsins Frumvarp um dánaraðstoð er komið aftur inn á borð breska þingsins. Það var samþykkt með afgerandi meirihluta í fyrra en dagaði uppi hjá lávarðadeildinni vegna málþófs. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Hellaklaustrið í Kænugarði í ljósum logum Hellaklaustrið, Pechersk Lavra, í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði stendur í ljósum logum eftir árásir Rússa í nótt. Erkibiskup úkraínsku rétttrúnaðarkirkjunnar segir að einn heilagasti staður kristindómsins brenni. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sviss Tillögu um takmörkun íbúafjölda hafnað Svisslendingar höfnuðu því í þjóðaratkvæðagreiðslu að setja þak á íbúafjölda landsins. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Japanir neituðu að gefast upp Japanir og Holland gerðu 2-2 jafntefli á Heimsmeistaramóti karla í fótbolta rétt í þessu. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Holland - Japan Japan og Hollendingar gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta leik F riðils á HM karla í fótbolta. Markalaust var í hálfleik en Hollendingar komust yfir í tvígang í seinni hálfleik. Japanir gáfust aldrei upp og jöfnuðu metin tvisvar. Hér má sjá mörkin. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Friðarsamkomulag í höfn: Olíuverð tekið að lækka Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Íran hafa náð saman um friðarsamkomulag. Hormússund verður opnað á ný og olíuverð er tekið að lækka. Stjórnvöld í báðum ríkjum hrósa sigri. 14. júní 2026 kl. 21:21INNLENDAR FRÉTTIR Garðabær Klaustrið í Garðabæ í niðurníðslu og býður upp á slysahættu Klaustrið í Garðabæ liggur undir skemmdum og býður upp á töluverða slysahættu. Rúður hafa verið brotnar og dæmi um að fólk fari þangað inn í leyfisleysi. 14. júní 2026 kl. 21:20INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Leigubílastöðin komin á leiðarenda Elín Hrönn Jónsdóttir Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar var flutt í lögreglufylgd frá Strandgötu á Akureyri yfir í Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit í kvöld. Stöðva þurfti umferð á meðan flutningnum stóð vegna breiddar hússins. Leigubílastöðin var auglýst gefins gegn því að vera sótt, eftir að bærinn hafði betur í langdreginni deilu um lóðina við Hofsbót. Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar flutt í jólagarðinn. Rúv-Kristófer Óli Birkisson Rúv-Kristófer Óli Birkisson 14. júní 2026 kl. 20:48ÍÞRÓTTIR Fótbolti FH-ingar náðu sínum fyrsta sigri í sumar FH vann 1-2 sigur en er enn í fallsæti. Þetta fyrsti sigur liðsins í ár í tíu tilraunum. Þá fór ÍBV upp úr fallsæti og sendi Þórsara í það með 1-4 sigri á Akureyri. 14. júní 2026 kl. 20:34ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tólf létust í flugslysi í Missouri í Bandaríkjunum Tólf létust í flugslysi í Missouri í Bandaríkjunum í dag. Einkaflugvélin, sem flutti ellefu fallhlífastökkvara og einn flugmann, sneri við af ókunnum ástæðum skömmu eftir flugtak og hrapaði nálægt þjóðvegi. Líklegt er að um slys sé að ræða. 14. júní 2026 kl. 20:03INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Leigubílastöðin flutt í kvöld Til stendur að flytja leigubílastöð BSO frá Strandgötu á Akureyri yfir í Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit í kvöld eða nótt. Stöðva þarf umferð meðan á flutningum stendur. 14. júní 2026 kl. 20:02INNLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Umdeildir bardagar í Hvíta húsinu í kvöld Í kvöld fara fram umdeildir UFC-bardagar í Hvíta húsinu í Washington í tilefni af 250 ára afmæli Bandaríkjanna og 80 ára afmæli forsetans. Gagnrýnendum finnst viðburðurinn ekki við hæfi þessa sögufræga staðar. 14. júní 2026 kl. 20:00ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Þýskaland valtaði yfir fámennustu þjóð sögunnar á HM Þjóðverjar unnu afar öruggan 7-1 sigur. Þýskaland komst yfir snemma leiks en Curacao menn náðu að jafna metin. Curacao menn eiga hrós skilið fyrir að reyna að spila fótbolta allan leikinn en Þjóðverjar voru hreinlega allt of sterkir. 14. júní 2026 kl. 19:47ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Þýskaland - Curacao Þýskaland fór illa með Curacao og vann 7-1 sigur í E-riðli HM karla í fótbolta. Hér má sjá öll mörkin. 14. júní 2026 kl. 19:28INNLENDAR FRÉTTIR Veður Svæðið „lifnar allt við“ í góða veðrinu Landsmenn streymdu í golf í veðurblíðunni í dag, að sögn skrifstofustjóra Golfklúbbsins Odds. „Það eru mjög margir sem myndu vilja koma hérna í viðbót, það er ekki spurning.“ 14. júní 2026 kl. 18:45INNLENDAR FRÉTTIR Sund „Ég hafði áhuga á að athuga hvort þetta væri hægt” Sjósundskappinn Sigurgeir Svanbergsson stingur sér til sólarhringssunds í Lagarfljóti annað kvöld. Hann ætlar að synda niður fljótið fyrstur manna sem vitað er af til styrktar Píeta samtökunum. 14. júní 2026 kl. 18:31ÍÞRÓTTIR Handbolti Viktor Gísli vann Meistaradeild Evrópu með Barcelona Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, vann Meistaradeild Evrópu með liði sínu Barcelona í dag. Liðið vann 37-34 sigur gegn Füchse Berlin. 14. júní 2026 kl. 18:15INNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Ósammála um íbúðaþörf á Langanesi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og sveitarstjórnina í Langanesbyggð greinir á um þörf fyrir leiguíbúðir. Langnesingar vilja halda áfram uppbyggingu og koma hreyfingu á húsnæðismarkaðinn. 14. júní 2026 kl. 17:12INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Umferðarslys í Mývatnssveit Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Þrír hlutu minniháttar meiðsl þegar tveggja bíla árekstur varð á Þjóðvegi 1 við Vindbelgjarfjall í Mývatnssveit. Annar bílanna hafnaði utan vegar og valt á hlið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Tveir slökkviliðsbílar fóru á vettvang vegna þess að margir vettvangsliðar eru í slökkviliðinu, segir fulltrúi lögreglu. Lögregla stöðvaði umferð í skamma stund á meðan bílarnir voru dregnir af vettvangi. Þeir voru báðir óökuhæfir eftir slysið. RÚV / Bjarni Rúnarsson 14. júní 2026 kl. 16:33ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump: „Klúðrum þessu ekki!“ Donald Trump er gagnrýninn á árásir Ísraels á Beirút í morgun. Þær setji friðarviðræður í uppnám. Hann biðlar til allra sem koma að málinu að halda að sér höndum og klúðra ekki tækifærinu á friði. 14. júní 2026 kl. 15:53ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Kúrasá setti metin og Japan jafnaði metin Holland og Japan gerðu 2-2 jafntefli. Fyrri hálfleikur var afar bragðdaufur en nú er komið líf í leikinn. Mikið er undir þar sem liðin eru talin þau sterkustu í F-riðli. Svíþjóð og Túnis mætast klukkan 02:00 í nótt. Þjóðverjar unnu afar öruggan 7-1 sigur gegn Curacao. Í E-riðli mætast svo Fílabeinsströndin og Ekvador klukkan 23:00. Curacao sló met Íslands sem fámennasta þjóð í sögu HM og þjálfari liðsins, Dick Advocaat, varð í dag sá elsti í sögu HM. Hér fylgdumst við með gangi mála í lifandi leikdagsvakt. Hér að neðan má sjá öll helstu atvik úr leikjum Hollands og Japans og Þýskalands og Curacao. SAMANTEKT 14. júní 2026 kl. 15:33INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Eigandi Exit segir lokunina ólögmæta Eigandi skemmtistaðarins Exit sem lögregla lokaði um helgina segir aðgerðir lögreglu ólögmætar. Lögmaður félagsins fari yfir málið auk þess sem aðkomu SVEIT hafi verið óskað. 14. júní 2026 kl. 15:26ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Sigurgleðin fór úr böndunum Stuðningsmenn New York Knicks slepptu fram af sér beislinu í fagnaðarlátum eftir að liðið vann sinn fyrsta meistaratitil í áratugi. Nokkrir fóru þó yfir strikið. Táningur særðist í skothríð og skemmdir voru unnar á bílum. 14. júní 2026 kl. 15