Breiðablik og Víkingur hafa skipst á að sigra Bestu deild karla síðustu fimm tímabilin. Þessi tvö lið hafa síðan á víxl komist inn í Sambandsdeild UEFA síðustu þrjú tímabilin. Með þessum Evrópuævintýrum fylgir svo mikill peningur, í mörgum tilfellum eru Evróputekjurnar margfalt hærri en velta annarra fótboltaliða á Íslandi. Eignir svipaðar og hjá öllum hinum Í þessari grein verða ársreikningar Breiðabliks og Víkings bornir saman við ársreikninga þeirra liða sem kepptu í Bestu deild karla sumarið 2025. Það skal þó hafa í huga að ársreikningar eru gerðir fyrir alla knattspyrnudeildina og innihalda því einnig tölur fyrir meistaraflokk kvenna og yngri flokka. Samanburðurinn er því ekki fullkominn, en gefur þó einhverja mynd af stöðu mála. Tekjur og útgjöld Breiðabliks og Víkings eru töluvert lægri en hjá hinum 10 liðunum til samans. En það sem er eftirtektarvert er munurinn á afkomunni. Samanlögð afkoma Breiðabliks og Víkings frá 2022-2025 eru 766 milljónir króna. Á þessu sama tímabili er samanlögð afkoma hinna 10 liðanna 242 milljónir króna. Afkoman er sem sagt 525 milljónum krónum hærri hjá Breiðabliki og Víkingi, eða rúmlega 217% hærri. Þessi munur á afkomu sést vel í efnahagsreikningunum hjá liðunum. Í árslok 2025 námu samanlagðar eignir Breiðabliks og Víkings 1.129 milljónum króna. Hjá hinum 10 liðunum voru samanlagðar eignir 1.176 milljónir króna. Eignir hinna liðanna voru því einungis 47 milljónum krónum hærri, eða rúmlega 4%. Skuldir Breiðabliks og Víkings námu samtals 338 milljónum króna en skuldir hinna 10 liðanna voru samtals 483 milljónir króna í lok síðasta árs. Skuldir hinna liðanna voru þar af leiðandi 145 milljónum krónum hærri, eða tæplega 43%. Þá var eigið fé Breiðabliks og Víkings 791 milljón króna í árslok 2025 en eigið fé hinna 10 liðanna var 693 milljónir króna. Eigið fé Breiðabliks og Víkings var því 98 milljónum krónum hærra, eða sem um nemur 12%. Tveggja turna tal Það er engin nýlunda í íslenskri knattspyrnu að lið eigi nokkur ár þar sem þau virðast vera óstöðvandi. Gott dæmi er FH sem endaði í 1. eða 2. sæti frá 2003-2016. Félagið var algjör risi um margra ára skeið en hefur mátt muna fífil sinn fegri undanfarin misseri. Það sem gerir stöðu Breiðabliks og Víkings frábrugðna öðrum gullaldarliðum eru Evrópupeningarnir. Það félag sem var tekjuhæst á síðasta ári, á eftir Breiðabliki og Víkingi, var FH. Velta þeirra árið 2025 voru 625 milljónir króna. Það er samt sem áður minni peningur en Breiðablik fær fyrir sitt Evrópuævintýri í ár. Eins og staðan er í dag þá eru Breiðablik og Víkingur með sterkustu leikmannahópanna. Þessir tveir turnar geta líka greitt bestu launin og eytt mestum pening í leikmenn. Þar af leiðandi eru þessi tvö lið í reynd með fyrsta valrétt á öllum leikmönnum á Íslandi. Ef Breiðablik og Víkingur halda áfram að skiptast á því að sigra Besta deildina þá þyrfti kannski KSÍ að byrja veita bronsverðlaun, af því fjárhagslegir yfirburðir Breiðabliks og Víkings munu bara aukast. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild hér .