Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ef Sam­keppnis­eftir­litið myndi at­huga Bestu deildina

Read Full Article →

Breiðablik og Víkingur hafa skipst á að sigra Bestu deild karla síðustu fimm tímabilin. Þessi tvö lið hafa síðan á víxl komist inn í Sambandsdeild UEFA síðustu þrjú tímabilin. Með þessum Evrópuævintýrum fylgir svo mikill peningur, í mörgum tilfellum eru Evróputekjurnar margfalt hærri en velta annarra fótboltaliða á Íslandi. En er samkeppnisstaðan í íslenskri knattspyrnu að skekkjast? Ef Samkeppniseftirlitið fengi að nýta hluta af 30 milljón króna viðbótarfjárveitingunni sem þeir fengu á dögunum þá er eitt mælitæki sem kæmi til greina. Það er HHI-samþjöppunarstuðullinn sem mælir samþjöppun og samkeppni á tilteknum markaði. Gildi stuðulsins liggur á milli 0 og 10.000, og því hærra sem gildið er því meiri er samþjöppunin og þar af leiðandi er samkeppnin takmörkuð. Í þessum samanburði verður litið til skandinavísku deildanna og topp fimm deildanna í Evrópu. Ef miðað er við síðustu fimm tímabil þá er HHI-stuðull Bestu deildarinnar 5.200. Þrjár deildir eru með hærri HHI-stuðul. Síðustu fimm tímabil hafa einungis Breiðablik og Víkingur unnið Bestu deildina. Þær deildir sem hafa lægri HHI-stuðul eru með þrjú eða fleiri lið sem hafa unnið síðustu fimm tímabilin. Allt virðist stefna í það að annaðhvort Breiðablik eða Víkingur muni vinna deildina aftur í ár, eða það vilja hinir svokölluðu sérfræðingar meina. HHI-stuðullinn mun því ekkert skána ef þær spár ganga eftir. Með næstlægsta Gini-stuðulinn Það væri líka hægt að nota Gini-stuðulinn til þess að mæla hversu jöfn Besta deildin er. Gini-stuðullinn er venjulega notaður til þess að mæla ójöfnuð tekna. Það er hins vegar líka hægt að nýta hann til þess að mæla ójöfnuð í stigasöfnun í íþróttum. Stuðullinn er á skalanum 0-1 og því hærri sem hann er því ójafnari er stigasöfnunin. Ef litið er á meðaltal Gini-stuðulsins síðustu fimm tímabilin þá er það næstlægst hjá Bestu deildinni. Einungis danska úrvalsdeildin er með lægri Gini-stuðul. Það þarf þó að hafa í huga að leikjafjöldinn er mismunandi í þessum deildum, en það hefur áhrif á Gini-stuðulinn. Því fleiri leikir sem eru spilaðir, því meira getur bilið orðið í stigum á milli liða og því líklegra er að Gini-stuðullinn sé hærri. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild hér .

Share this article