Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 10.5.2026 | 11:41 „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Samantekt 11:41 Frétt: „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ 11:21 Frétt: X26: Selfyssingar munu eignast bæinn sinn aftur 11:15 Nú er aðeins vika í kosningar og ferðalagið heldur áfram 11:00 Frétt: „Þú abbast ekkert upp á hennar konur“ Íbúar í Árborg mega gera ráð fyrir því að álögur lækki á næsta kjörtímabili, en allir oddvitar þeirra framboða sem bjóða fram í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi telja svigrúm til lækkunar eftir að ráðist var í sársaukafullar aðhaldsaðgerðir og töluverða hækkun gjalda á yfirstandandi kjörtímabili, til að greiða niður skuldir. Oddvitar framboðanna fjögurra mættust í kappræðum Morgunblaðsins, en þar var meðal annars tekist á um fjármál, uppbyggingu innviða, leikskólamál og atvinnuþróun. Einnig var töluvert rætt um mikilvægi þess að efla byggðina við ströndina og koma á betri tengingu á milli byggðakjarna sveitarfélagsins með skilvirkari tómstundaakstri og almenningssamgöngum. Árborg hefur vaxið töluvert síðustu misseri og íbúum fjölgað hratt en uppbygging innviða hefur ekki náð að halda í við þá þróun. Öll framboðin leggja áherslu á að horfa í meira mæli bæði til Eyrarbakka og Stokkseyrar þegar kemur að uppbyggingu bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæðis, en þar þurfi samhliða að byggja upp innviði. Það er nokkuð sem hefur setið á hakanum. Í kappræðunum mættust þau Matthías Bjarnason oddviti Framsóknarflokksins, Bragi Bjarnason oddviti Sjálfstæðisflokksins, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, oddviti Samfylkingarinnar og óháðra, og Heiðrún Kristmundsdóttir oddviti Viðreisnar, sem býður í fyrsta skipti fram sjálfstætt í sveitarfélaginu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur leitt meirihlutann á yfirstandandi kjörtímabili, ásamt Áfram Árborg sem býður ekki fram að þessu sinni. Bragi Bjarnason núverandi sveitarstjóri er jafnframt oddviti flokksins, og sækist eftir embættinu áfram, en önnur framboð sjá fyrir sér að fá faglega ráðinn sveitarstjóra inn á næsta kjörtímabili. Aðgerðir skilað árangri Bragi segir að sveitarstjórnin hafi tekið við krefjandi verkefni að loknum síðustu kosningum sem hafi litað allt kjörtímabilið. „Við höfum farið í gegnum ótrúlega endurskipulagningu á rekstri sveitarfélagsins og tekið erfiðar og óvinsælar ákvarðanir á kjörtímabilinu.“ Meðal annars hafi verið farið í miklar hagræðingar, fólki verið sagt upp og stöðugildum fækkað, ásamt því að framkvæmdum hafi verið forgangsraðað, eignir seldar og álag sett á útsvarið. Bragi segir þetta hafa skilað árangri sem sjáist í ársreikningi sveitarfélagsins. Uppsafnaður rekstrarhalli hafi numið um 6,5 milljörðum króna við upphaf kjörtímabilsins, en á síðustu tveimur árum hafi tekist að vinna um 4,7 milljarða á móti þeim halla. Hann segist vilja halda áfram ábyrgum rekstri svo hægt verði að lækka álögur á íbúa. Sigurjón gagnrýnir að ráðist hafi verið í að lækka skuldir sveitarfélagsins með of sársaukafullum aðgerðum á of skömmum tíma í stað þess að greiða þær niður á lengri tíma. Hann segir að það sé „númer eitt, tvö og þrjú“ að vinda ofan af skattahækkunum núverandi meirihluta. Fasteignagjöldin hafi til að mynda hækkað um 78 prósent frá árinu 2021. „Það hefur gert það að verkum að bæði íbúar og fyrirtæki eru að sligast undan þessari gjaldheimtu og við erum, eins og staðan er í dag, ekki samkeppnishæf við nágrannasveitarfélögin okkar, sem er ekki gott.“ Þá talar Sigurjón um að efla þurfi byggðirnar á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þar sé hægt bjóða upp á spennandi byggingarland og fjölga íbúum. Hin taka undir það. Matthías segir mikilvægt að hraða uppbyggingu innviða í öllu sveitarfélaginu því framkvæmdir verði kostnaðarsamari eftir því sem innviðaskuldin vex. „Samhliða held ég að það sé mikilvægt að beina þeirri uppbyggingu, sem hefur átt sér stað á Selfossi og mun halda áfram, vestar. Beina henni niður að strönd því við sjáum tækifæri þar sem sveitarfélagið á næstum allt landið.“ Ráðist hefur verið í sársaukafullar aðgerðir í Árborg á kjörtímabilinu. mbl.is/Sigurður Bogi Má ekki verða einsleitt Þegar kemur að forgangsröðun verkefna eru þau öll sammála um að brýnast sé að hraða uppbyggingu leikskóla og íþróttamannvirkja. Bragi bendir á að einnig þurfi að sinna ýmsum viðhaldsverkefnum, meðal annars á fráveitukerfum. Þá þurfi að halda áfram með boranir eftir heitu og köldu vatni. Allir oddvitar eru sammála um að brýnt sé að hraða uppbyggingu leikskóla og íþróttamannvirkja. Bragi bendir á að einnig þurfi að sinna ýmsum viðhaldsverkefnum, líka á því sem enginn sér en er mikilvægt að sé í lagi, eins og á fráveitukerfum. Einnig þurfi að halda áfram með boranir eftir heitu og köldu vatni. Varðandi atvinnuuppbyggingu segir Heiðrún mikilvægt að laða að fyrirtæki með fjölbreytta starfsemi, en verslun og þjónusta hefur verið töluvert ráðandi á svæðinu. „Við verðum að tryggja að hér sér stöðug atvinnuþróun, en þetta má ekki verða einsleitt atvinnusvæði.“ Sigurjón tekur undir og segir að það að fá starf við hæfi í heimabyggð geti aukið lífsgæði fólks. Matthías bendir á að lykilatriði sé að lækka álögur og fella niður byggingarréttargjöld til að laða að fyrirtæki, en fjölgun starfa hafi ekki haldið í við vöxt sveitarfélagsins. Ný Ölfusárbrú er í byggingu en með tilkomu hennar verður hringvegurinn færður út fyrir þéttbýlið á Selfossi. Allir eru sammála um að því fylgi mikil tækifæri og óttast ekki að það dragi úr komum ferðamanna í bæinn. Heiðrún talar um að Selfyssingar muni eignast bæinn sinn aftur. „Það verður ekki þessi stanslausa traffík og íbúar munu sækjast eftir því að fara á Austurveginn á ný. Þar eru klárlega tækifæri til vaxtar og atvinnuuppbyggingar.“ Frétt af mbl.is X26: Selfyssingar munu eignast bæinn sinn aftur Fjögur framboð bjóða fram lista í Árborg að þessu sinni og mættust oddvitar þeirra í kappræðum í myndveri. Morgumblaðið/María Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang 11:41 „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Íbúar í Árborg mega gera ráð fyrir því að álögur lækki á næsta kjörtímabili, en allir oddvitar þeirra framboða sem bjóða fram í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi telja svigrúm til lækkunar eftir að ráðist var í sársaukafullar aðhaldsaðgerðir og töluverða hækkun gjalda á yfirstandandi kjörtímabili, til að greiða niður skuldir. Meira 11:21 X26: Selfyssingar munu eignast bæinn sinn aftur Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí, en þá verður efnt til kosninga í 62 sveitarfélögum landsins af öllum stærðum og gerðum. Meira 11:15 Nú er aðeins vika í kosningar og ferðalagið heldur áfram 11:00 „Þú abbast ekkert upp á hennar konur“ „Við urðum eiginlega strax óaðskiljanlegar. Það skemmdi svo alls ekki fyrir að mæður okkar urðu líka vinkonur og eru enn svo þetta var allt skrifað í skýin.“ Meira Í gær, 18:55 Jón bjó í öðru landi þegar hann féll fyrir Hildi „Allir góðir dagar hefjast á tveimur tvöföldum espressobollum,“ segir Jón Skaftason um líf þeirra Hildar Björnsdóttur sem einkennist af miklum hasar. Meira Í gær, 13:50 X26: oddvitar í Árborg mætast Oddvitar fjögurra framboða í Árborg takast á í myndveri Morgunblaðsins. Fjármál sveitarfélagsins, álögur á íbúa og fyrirtæki, uppbyggingu innviða, leikskólamál, atvinnuþróun og framtíð byggðanna við ströndina eru á dagskrá. Meira í gær Skipulagsmál, leikskólar, hitaveita stóru málin á Dalvík Skipulagsmál, leikskólar, hitaveita og uppbygging samfélagsins eru meðal helstu umræðuefna í Dalvíkurbyggð í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Fjögur framboð bjóða nú fram í sveitarfélaginu, í fyrsta sinn í langan tíma. Meira í fyrradag Miðflokksmenn verja myndbandið Ungliðar Miðflokksins í Mosfellsbæ segja yfirlýsingu oddvita meirihlutans í sveitarfélaginu vegna TikTok-myndskeiðs sem þeir birtu sýna að oddvitarnir séu ótengdir unga fólkinu í sveitarfélaginu. Meira í fyrradag Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Oddvitar meirihlutans í Mosfellsbæ, Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingarinnar, fordæma harðlega kosningamyndband sem Miðflokkurinn í Mosfellsbæ birti á TikTok en hefur nú verið eytt. Meira í fyrradag View this post on Instagram A post shared by mbl.is (@mblfrettir) í fyrradag „Líta á málefni eldri borgara sem aukastærð“ Stjórnmálaflokkarnir sem bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosningunum líta á málefni eldri borgara sem aukastærð, auk þess sem borgaryfirvöld hafa ekki sýnt Félagi eldri borgara (FEB) mikla virðingu. Meira 8.5. Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Breytingar í leikskólaþjónustu hafa gert daglegt líf barnafjölskyldna flóknara, kostnaðarsamara og síður fyrirsjáanlegt. Meira 7.5. Flestir vilja Hildi sem borgarstjóra Tæplega 30% vilja að Hildur Björnsdóttir verði næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Meira 7.5. Borgarafundurinn á Akureyri var fjörugur 7.5. X26 - Borgarafundur Akureyri Atvinnumál, Norðurorka, sjókvíaeldi í Eyjafirði, málefni eldri borgara og möguleg sameining sveitarfélaga voru meðal umræðuefna á fjölmennum borgarafundi Morgunblaðsins á Akureyri í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Meðal annars var hart tekist á um Norðurorku, sjókvíaeldi og framtíð Akureyrar Meira Sýna meira Nýjast á mbl.is » Elísa hljóp langt undir brautarmetinu – hafnaði í 4.sæti „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ X26: Selfyssingar munu eignast bæinn sinn aftur Fjórða tapið í röð hjá Sveindísi og félögum

Share this article