Innlent | Morgunblaðið | 25.8.2026 | 9:29 Árborg lækkar gjöld á byggingar Byggingarréttargjald af atvinnhúsnæði var fellt niður. mbl.is/Sigurður Bogi Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Sveitarfélagið Árborg hefur lækkað byggingarréttargjöld af íbúðarlóðum og afnumið gjöldin af atvinnulóðum. Markmiðið með þessum aðgerðum er að einfalda gjaldskrá, auka sveigjanleika í greiðslum af íbúðarlóðum og hvetja til uppbyggingar atvinnulóða. „Það var eitt af stefnumálum okkar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor að lækka álögur og gjöld eins og mögulegt væri hjá sveitarfélaginu,“ segir Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar við Morgunblaðið. Í síðustu kosningum vann Sjálfstæðisflokkurinn stórsigur og er með hreinan meirihluta í bæjarstjórn. Segir hann að byggingarréttargjöld af íbúðalóðum hafi lækkað um 30-40%, mismunandi eftir byggðakjörnum í sveitarfélaginu. Byggingarréttargjaldið var um 8.000 krónur fyrir hvern fermetra á dýrustu svæðunum. Var greitt ákveðið lágmarksgjald þegar farið var af stað með byggingu, en síðan greitt m.v. hvern byggðan fermetra. Byggingarréttargjaldið af íbúðarhúsnæði á Selfossi var lækkað úr 35.000 krónum á fermetra niður í 25.000, en gjaldið fór úr 25.000 niður í 10.000 í dreifbýli ásamt Eyrarbakka og Stokkseyri. „Við einfölduðum gjaldskrána verulega og viljum stuðla að lækkun byggingarkostnaðar og vonandi verðbólgu einnig,“ segir Bragi. „Markmið okkar er að auðvelda fólki að eignast heimili og vonandi einnig að hafa áhrif á efnahagsástandið á Íslandi,“ segir hann. Bragi segir sveitarfélagið vera í góðu samstarfi við byggingaraðila og hafi vitneskju um það hversu margar eignir komi inn á markaðinn á hverju ári. „Við finnum það í okkar sveitarfélagi eins og aðrir að markaðurinn er rólegri í dag og við viljum hjálpa til á réttan hátt, þannig að bæði íbúar, fyrirtæki og framkvæmdaaðilar finni fyrir því að við séum að róa í sömu átt og þeir,“ segir Bragi. Hann kveðst hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð við þessum aðgerðum, ekki síst hvað atvinnulóðirnar varðar, enda standi vilji sveitarfélagsins til þess að byggja upp öfluga atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu. Bragi nefnir einnig að Árborg sé með nokkrar einbýlishúsalóðir tiltækar og kveðst hann vonast til þess að lækkun bygginarréttargjaldsins greiði fyrir sölu þeirra. „Við ákváðum einnig fyrr í sumar að í fjárhagsáætlunarvinnunni myndum við miða við að hækka gjaldskrár ekki meira en sem nemur verðbólguviðmiði Seðlabankans. Það er stefna okkar í meirihlutanum að lækka álögur og gjöld á íbúana og vonandi að hafa áhrif á verðbólguna í landinu og væntingar. Gjaldskrá okkar mun því ekki hækka meira en um 2,5% á næsta ári og vonandi minna,“ segir Bragi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Galin þróun“: Níu og tíu ára börn komin í meðferð Ósanngjörn gagnrýni Haukar fá alvöru liðsstyrk Ættingjar krefjast afsökunarbeiðni Árborg lækkar gjöld á byggingar Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Kæra Heiðrún Lind – fullyrðing þín er einfaldlega röng Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tugþúsundir á flótta vegna gróðurelda við Reno Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Efnisatriði ferlisins háð trúnaði Banaslys varð í Stuðlagili Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys varð í Stuðlagili Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Leit haldið áfram þar til maðurinn finnst Skólaliðum hjá borginni sagt upp Reyndi að kýla farþega og hella bjór yfir annan Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » „Galin þróun“: Níu og tíu ára börn komin í meðferð Ósanngjörn gagnrýni Haukar fá alvöru liðsstyrk Ættingjar krefjast afsökunarbeiðni Árborg lækkar gjöld á byggingar Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Kæra Heiðrún Lind – fullyrðing þín er einfaldlega röng Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Pysjurnar streyma í bæinn Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 Árásin í Fagersta: Skoða TikTok-reikning mannsins Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys varð í Stuðlagili Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Leit haldið áfram þar til maðurinn finnst Skólaliðum hjá borginni sagt upp Reyndi að kýla farþega og hella bjór yfir annan Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar