Baldur Þór Ragnarsson hefur sagt starfi sínu lausu hjá körfuboltaliði Stjörnunnar. Baldur Þór hefur stýrt karlaliði Stjörnunnar með góðum árangri síðustu tvö árin. Liðið varð Íslandsmeistari undir hans stjórn á síðasta ári en datt út í undanúrslitum gegn Tindastól í ár. Þá mátti Stjarnan þola tap gegn KR í bikarúrslitum í ár. Liðið varð meistari meistaranna í upphafi þessa tímabils. Baldur átti eitt ár eftir af þriggja ára samningi en nýtti sér uppsagnarákvæði. Baldur hefur einnig sinnt starfi aðstoðarþjálfara karlalandsliðsins samhliða störfum sínum hjá Stjörnunni. Óvíst er hvað tekur við hjá honum. Auk þess lætur einn aðstoðarþjálfara Stjörnunnar, Ilija Omercen, af störfum.