Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jón Þór tekur við Stjörnunni

Read Full Article →

Knattspyrnudeild Stjörnunnar tilkynnti nú í morgun að Jón Þór Hauksson tæki við karlaliði félagsins. Í gær yfirgaf Jökull Elísabetarson liðið. Síðasta aðalþjálfarastarf Jóns Þórs var hjá ÍA en hann var rekinn síðasta sumar. Hann hefur verið í þjálfarateymi Vestra síðan, félagi sem hann þjálfaði áður. Þá var hann þjálfari íslenska kvennalandsliðsins frá 2018 til 2020. Hann þekkir vel til hjá Stjörnunni, hann starfaði áður hjá félaginu og meðal annars sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Hans fyrsti leikur í nýju starfi er næsta þriðjudag þegar Stjarnan tekur á móti Breiðabliki. Gengi Stjörnunnar hefur ekki verið samkvæmt væntingum, liðið er í níunda sæti Bestu deildarinnar með 10 stig, fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið. Þá tapaði liðið fyrir Aftureldingu í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í vikunni.

Share this article