Yfirvöld í New York hafa samþykkt frumvarp sem myndi banna notkun kalíumbrómats í matvælum. Kalíumbrómat er hvítt og sterkt oxandi duft sem hefur mikið verið notað sem deigbætandi efni í brauðgerð til að auka rúmmál og áferð. Á vef New York Times segir að ef frumvarpið verði að lögum þurfi þúsundir bakaría og pizzustaða í ríkinu að hætta að nota svokallað brómerað hveiti (e. bromated flour). Rúmlega 90% af öllum bakaríum New York notast við þetta tiltekna hveiti en efnið gerir deigið teygjanlegra og er talið hafa mótað bæði hinar klassísku New York-beyglur og hina þekktu New York-pizzusneið. Sjá einnig San Francisco lögsækir stærstu matvælafyrirtækin Deigið myndar einnig sterkan botn sem heldur vel utan um bæði ost og pizzusósu. Efnið gerir deigið hins vegar létt á sama tíma sem auðveldar neytendum að brjóta pizzusneiðina saman. Kalíumbrómat hefur þó verið umdeilt undanfarna áratugi eftir að rannsóknir tengdu efnið við skjaldkirtils- og nýrnakrabbamein í rottum. Efnið hefur síðan þá verið bannað í löndum ESB, Kanada, Kína og á Indlandi. Frá og með næsta ári verður efnið einnig bannað í Kaliforníu samkvæmt lögum sem ríkisstjórinn Gavin Newsom undirritaði árið 2023.