Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Domino‘s veðjar á pizzu fyrir einn

Read Full Article →

Domino’s í Bandaríkjunum mun síðar í þessum mánuði setja á markað nýja pizzu sem er sérstaklega ætluð einstaklingum. Með vörunni vonast fyrirtækið til að ná til viðskiptavina sem myndu annars velja sér máltíðir á borð við hamborgara eða vefjur. Á vef WSJ segir að ákvörðunin sé tekin í tengslum við breyttar neysluvenjur Bandaríkjamanna en 43% máltíða á veitingastöðum þar í landi voru neyttar í einrúmi á tólf mánaða tímabili sem lauk í júní. Nýja pizzan nefnist Domino og verður rétthyrnd í laginu. Hugmyndin á bak við vöruna er einnig að leysa ákveðið vandamál meðal viðskiptavina sem þurfa oft að gera málamiðlanir um álegg, botn og fleira þegar pizza er pöntuð og snædd með öðrum. Domino‘s hefur undanfarin misseri reynt að blása nýju lífi í starfsemi félagsins á Bandaríkjamarkaði á sama tíma og þrengt hefur að pizzugeiranum þar í landi. Sjá einnig Domino‘s Pizza ræður nýjan forstjóra Sala Domino‘s hefur staðið betur að vígi en hjá mörgum samkeppnisaðilum, eins og Papa John‘s og Pizza Hut, sem hafa neyðst til að loka hundruðum veitingastaða í Bandaríkjunum. Joe Jordan, verðandi forstjóri Domino‘s, hefur leitt þróun þessarar nýju vöru en hann segir að fyrirtækið hafi varið tveimur árum í að rannsaka hvað Bandaríkjamenn sækist eftir þegar skyndibiti verður fyrir valinu. Niðurstöður rannsóknanna leiddu í ljós að neytendur vilja gjarnan hafa matinn út af fyrir sig, jafnvel þegar þeir borða með öðrum. Hamborgarar, vefjur og samlokur henta því betur sem máltíð fyrir einn á meðan pizza er gjarnan tengd fjölskyldum og stærri hópum. Framkvæmdastjóri Domino‘s á Íslandi segir að pizzan verði mögulega fáanleg hér á landi. © Aðsend mynd (AÐSEND) Samkvæmt fréttaflutningi WSJ mun pizzan, sem kemur á markað 31. ágúst nk., kosta 7,99 dali, eða um þúsund krónur. Útgáfa með tveimur áleggstegundum verður einnig í boði fyrir 6,99 dali og verður pizzan sjálf afhent í sérstökum rétthyrndum kassa. Verður mögulega fáanlegt á Íslandi Steinar B. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Domino‘s á Íslandi, segir í samtali við Viðskiptablaðið að þetta sé spennandi nýjung sem félagið mun fylgjast vel með þegar hún fer af stað í Bandaríkjunum. „Ef viðtökurnar verða góðar er mjög líklegt að við munum bjóða upp á sambærilega vöru hjá Domino‘s á Íslandi áður en langt um líður, að sjálfsögðu aðlagaða að íslenskum markaði og okkar viðskiptavinum. Ég get til dæmis alveg séð fyrir mér að Meat & Cheese í þessari útfærslu myndi slá í gegn.“

Share this article