Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Texas kærir Netflix fyrir njósnir

Read Full Article →

Dómsmálaráðherra í Texas hefur höfðað mál gegn streymisveitunni Netflix vegna ásakana um að fyrirtækið hafi safnað upplýsingum um bæði börn og fullorðna í ríkinu án samþykkis. Á vef BBC segir að Netflix sé meðal annars sakað um að notast við ávanabindandi eiginleika á streymisveitunni til að gera notendur háða þjónustunni. Ken Paxton, dómsmálaráðherra í Texas, segir að Netflix hafi í raun njósnað um íbúa í ríkinu með því að skrásetja og hagnýta upplýsingar um hegðun notenda á streymisveitunni. Hann segir í yfirlýsingu að allt sem notendur gerðu á Netflix hafi afhjúpað upplýsingar um þá. Sjá einnig Fer fram á að Net­flix víki Rice úr stjórninni Netflix hafnar hins vegar þessum ásökunum og segir að fyrirtækið muni verja sig fyrir dómstólum. Talsmaður streymisveitunnar segir að málið væri byggt á ónákvæmum og brengluðum upplýsingum. Í kærunni segir að Netflix hafi til að mynda notast við sjálfvirka spilun á efni og víðtæka skráningu á hegðun notenda sem sýndi hvað notendur smelltu á og hversu lengi var horft á efnið hverju sinni.

Share this article