Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði eftir því um helgina að Netflix víki Susan Rice, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna fyrir hönd Demókrataflokksins, úr stjórn streymisveitunnar, annars muni félagið „sæta afleiðingum“ (e. „pay the consequences“). Trump lét ummælin falla á sama tíma og Netflix keppir nú við Paramount Skydance um að kaupa Warner Bros Discovery. Hann hafði áður sagt að hann myndi ekki skipta sér af söluferlinu. Möguleg kaupa beggja fyrirtækja yrðu að fá grænt ljós frá eftirlitsaðilum í Bandaríkjunum. Trump tjáði sig um stjórnarsetu Rice á samfélagsmiðlinum Truth Social, að hvatningu Maga-áhrifavaldsins Laura Loomer, að því er segir í frétt Financial Times . „Netflix ætti að reka rasíska, Trump-brjálaða Susan Rice, STRAX, eða sæta afleiðingunum. Hún hefur enga hæfileika né kunnáttu - eingöngu pólitísk handbendi!“ skrifaði Trump á Truth Social á laugardaginn og endurbirti færslu Loomer á X þar sem hann var hvattur til að stöðva yfirtöku Netflix á Warner Bros. Rice var þjóðaröryggisráðgjafi og fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum í forsetatíð Barack Obama. Hún var jafnframt í innanríkisráði ríkisstjórnar Joe Biden. Rice sat í stjórn Netflix frá árinu 2018 til 2020 og kjörin aftur í stjórn félagsins á árinu 2023. „VÖLD HENNAR ERU HORFIN OG MUNU ALDREI KOMA AFTUR. Hvað er hún að fá mikið borgað og fyrir hvað???“ skrifaði Trump um Rice. Ummælin fylgja í kjölfar þess að Rice sagði í hlaðvarpi á fimmtudaginn að það muni ekki reynast þeim fyrirtækjum sem krjúpa fyrir Trump vel ef Demókrataflokkurinn nær aftur völdum í Washington. Hún spáði því að Demókrataflokkurinn verði reiðubúið með „ábyrgðaráætlun“ (e. „an accountability agenda”) og sagði að fyrirtæki ættu að halda vel utan um gögn og vera tilbúin fyrir vitnastefnum. „Ef þessi fyrirtæki telja að Demókratar, þegar þeir ná vopnum aftur, muni leika eftir gömlu reglunum… Ég held að þau eigi eftir að komast að öðru.“ Loomer fordæmdi þessi ummæli og spurði hvort Netflix standi með stjórnarmanni sínum sem hóti hálfri þjóðinni með þessum hætti. Rice var þjóðaröryggisráðgjafi og fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum í forsetatíð Barack Obama. © EPA (EPA)