Nýr vettvangur fyrir samstarf atvinnulífs á Norðurlöndunum hefur verið stofnaður undir heitinu Nordic Compass en samtökin eru leidd af norrænum fyrirtækjum, sjóðum og öðrum samtökum. Nordic Compass hefur það markmið að efla sameiginlega umgjörð og nýta styrkleika norræns atvinnulífs. Í tilkynningu segir að fyrstu verkefnin verði kynnt á ráðstefnu Nordic Compass í Gautaborg í Svíþjóð í nóvember næstkomandi. Stjórn Nordic Compass samanstendur af leiðtogum frá öllum Norðurlöndum. Formaður er Jyrki Katainen, forstöðumaður samskipta og regluvörslu hjá Nordea, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands og fyrrverandi varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Varaformaður er Kristin Skogen Lund, stjórnarformaður INSEAD. Sjá einnig Hagnaður Festi dróst saman þrátt fyrir aukna sölu Einnig eiga sæti í stjórn Øyvind Eriksen, forstjóri Aker ASA, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi hf., Antti Herlin, formaður stjórnar KONE Corporation, Lars Rebien Sørensen, stjórnarformaður Novo Nordis Foundation og Jacob Wallenberg, stjórnarformaður Investor AB og varaformaður stjórnar Wallenbert Investments AB. Christian Frigast, stjórnarformaður Enterprise Think Tank, gegnir hlutverki framkvæmdastjóra. „Reynsla Íslands sýnir hvernig smærri hagkerfi geta brugðist hratt við þegar atvinnulíf, stjórnvöld og frumkvöðlar vinna saman. Nordic Compass flytur þennan samstarfsanda yfir á öll Norðurlöndin og tryggir að þau haldi áfram að vera leiðandi miðstöð fyrir sjálfbærar atvinnugreinar, stafræna nýsköpun og ábyrga viðskiptahætti,“ segir Ásta Fjeldsted, fulltrúi í stjórn Nordic Compass og forstjóri Festi.