Innlent | Morgunblaðið | 7.9.2026 | 10:15 Samstarfið við Norðurlönd treyst frekar Frændþjóðirnar efla samstarfið og standa þétt saman. mbl.is/Eggert Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Kölluðu Rússa á teppið vegna drónaárásar Búum við sambærilegt ástand og í kalda stríðinu Viðbrögð við árás æfð með Bandaríkjaher Skammsýni í viðbrögðum NATO Segir íslenska tækni veita bandamönnum forskot » Fleiri tengdar fréttir Ville Cantell, sendiherra Finna á Íslandi, segir mikilvægt að treysta samstarf Íslands og Finnlands og annarra Norðurlandaþjóða á komandi árum, í grein sem var birt hjá Varðbergi á laugardaginn var. Þar bendir sendiherrann á að Norðurlandaþjóðirnar séu á toppnum þegar kemur að lífsgæðum, jafnrétti og velferð í samfélaginu og því sé mikilvægt að styrkja enn frekar tengsl þessara nágrannaríkja. Ísland skrifaði undir tvíhliða samstarfsyfirlýsingu um varnarmál við Finnland í opinberri heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta í Helsinki í október síðastliðnum, sem sýnir vilja ríkjanna, sem nú eru öll í Atlantshafsbandalaginu, til að styrkja tengslin enn frekar, enda eigi öll ríkin margt sameiginlegt, ekki síst í menningar- og sögulegu tilliti. Landsbjörg fær sjöunda bátinn Í greininni kemur fram að samstarf ríkjanna muni m.a. „ná yfir samráð um varnarstefnu, gistiríkjastuðning, hreyfanleika herafla, eftirlit, upplýsingagjöf, loftrýmiseftirlit og loftvarnir, fjölþáttaógnir, æfingar og þjálfun, mannauð og rannsóknir og þróun“. Núna í september kemur finnsk sendinefnd til landsins með fyrirtækjum Finna til að leita samstarfs við íslensk fyrirtæki, en hluti af því að styrkja samstarfið er að auka viðskiptatengsl og samstarf. Í þessari heimsókn verður sá sjöundi af 13 varnarbátum frá finnska skipafyrirtækinu Kewatec afhentur Slysavarnafélaginu Landsbjörg eftir samning þeirra þess efnis sem var gerður árið 2021. Framvarðasveit NATO Athygli vekur í grein Cantells að Ísland tekur þátt í framvarðasveit Atlantshafsbandalagsins á landi (e. NATO Forward Land Forces) og er á dagskrá að Ísland sendi starfsfólk í það starf á næsta ári. „Þetta var ákveðið fyrir nokkru, en tvíhliða samstarfsyfirlýsingin var undirrituð á síðasta ári,“ segir Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmála hjá utanríkisráðuneytinu, við Morgunblaðið. „Þetta verður gert með svipuðum hætti og við erum að gera í Eystrasaltslöndunum, þótt útfærslan sé ekki alveg niðurnegld, en öll Norðurlöndin verða með fulltrúa í þessu starfi. Við höfum verið að senda til Eystrasaltsríkjanna borgaralega upplýsingafulltrúa eða pólitíska ráðgjafa til starfa fyrir NATO þar í mörg ár og þetta mun verða með sambærilegum hætti,“ segir Jónas og bætir við að það hafi lengi verið sterkur vilji Norðurlandaþjóðanna að standa þétt saman og það sé ekkert að breytast. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Kölluðu Rússa á teppið vegna drónaárásar Búum við sambærilegt ástand og í kalda stríðinu Viðbrögð við árás æfð með Bandaríkjaher Skammsýni í viðbrögðum NATO Segir íslenska tækni veita bandamönnum forskot » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kílómetragjald hækki um 15,9% Vilja draga úr vægi verðtryggingar Samstarfið við Norðurlönd treyst frekar Í annað sinn á 50 árum hjá United Myrkur og morð áberandi Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Um 40% handtekinna erlend Yfir 100 milljarðar í beinan stuðning til Grænlands Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði „Stórhættuleg“ eftirför endaði á umferðareyju Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsakað sem alvarlegt atvik Um 40% handtekinna erlend Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Varað við öflugum vindhviðum Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Myndir: Heiðruðu Gunnar Þórðarson með lófataki „Mínus í plús“: Langvinnur hallarekstur stöðvaður Ríkisráðsfundur á Bessastöðum Hækkun bankaskatts og aukin gjöld af ferðamönnum Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Kílómetragjald hækki um 15,9% Vilja draga úr vægi verðtryggingar Samstarfið við Norðurlönd treyst frekar Í annað sinn á 50 árum hjá United Myrkur og morð áberandi Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Stórhættuleg“ eftirför endaði á umferðareyju „Þetta er bara byrjunin“ „Mínus í plús“: Langvinnur hallarekstur stöðvaður Rannsakað sem alvarlegt atvik Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsakað sem alvarlegt atvik Um 40% handtekinna erlend Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Varað við öflugum vindhviðum Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Myndir: Heiðruðu Gunnar Þórðarson með lófataki „Mínus í plús“: Langvinnur hallarekstur stöðvaður Ríkisráðsfundur á Bessastöðum Hækkun bankaskatts og aukin gjöld af ferðamönnum Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar