Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Laus við vorkunn og vonbrigðasvip og er heilsað með virktum í Vesturbænum

Read Full Article →

16-liða úrslit bikarkeppni karla í fótbolta hefjast í dag. Einn úrvalsdeildarslagur er í umferðinni og það er viðureign Stjörnunnar og KR. Leikurinn verður sýndur á RÚV 2. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, segir að hann sé spenntur fyrir því að mæta Stjörnunni öðru sinni á stuttum tíma. Eftir 3-2 endurkomusigur síðastliðinn föstudag mætir KR aftur í Garðabæinn og spilar gegn Stjörnunni. Í húfi er sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. „Stjarnan er með öflugt lið og skemmtilega andstæðinga. Jökull er ólíkindatól og getur bryddað upp á áhugaverðum hlutum sem við höfum kannski ekki séð áður. Ég á von á skemmtilegri skák og frábærum leik.“ Frá fallbaráttu í fullt hús stiga KR er eitt besta lið landsins miðað við þessar myndir og situr taplaust á toppi Bestu deildar karla. Einungis sex mánuðir eru síðan liðið var í harðri fallbaráttu í deildinni á síðasta tímabili og spilamennska liðsins oft og tíðum gagnrýnd. „Eins ótrúlegt og það hljómar þá var stemningin góð. Það var enginn með hausinn undir hendinni. Menn voru glaðir þótt það hafi blásið á móti og það hafi verið drulluerfitt.“ Þá segir Óskar að viðmót Vesturbæinga sé vitanlega annað. „Það er vissulega aðeins öðruvísi stemning í Vesturbænum. Manni er heilsað núna með virktum en í fyrra var svona fyrst horft á mann með vonbrigðaaugum. Svo þegar líða tók á var það meiri vorkunn.“ Óskar Hrafn Þorvaldsson og KR-ingar mæta Stjörnunni í úrvalsdeildarslag í 16-liða úrslitum bikarsins í dag. Óskar ræðir þessa hörkuviðureign en einnig viðsnúninginn sem hefur orðið á liðinu frá síðasta tímabili. En hvað hefur breyst milli tímabila? „Ég held að það hafi minnst breyst hjá mér. Ég er náttúrulega kominn með mjög öflugan aðstoðarþjálfara, Halldór Árnason. Hann hefur komið gríðarlega sterkur inn á mörgum sviðum. Við fengum norskan sjúkraþjálfara sem hefur komið sterkur inn í álagsstjórnun. Meiðslin eru færri.“ Þá segir Óskar það einnig spila inn í að ungt KR-liðið sé nú orðið árinu eldra, reynslunni ríkara og hafi öðlast styrk í mótlæti síðasta árs. „Fyrir mér má Vesturbærinn fljúga með himinskautum og það nálægt sólinni að vængirnir bráðni.“ Að því sögðu segir Óskar mikilvægt að KR-ingar hafi báða fætur á jörðinni því liðið hefur jú landað titlum þrátt fyrir góða byrjun á tímabilinu. Leikur Stjörnunnar og KR verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2 klukkan átta í kvöld og hefst útsending 10 mínútum fyrir leik.

Share this article