Innlent | Morgunblaðið | 14.5.2026 | 8:00 Sterk sveitarfélög byggjast á ábyrgð Guðrún Hafsteinsdóttir Anton Brink Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Á laugardaginn komum við til með að kjósa um hvernig sveitarfélögin munu þróast á komandi árum. Við kjósum um nærsamfélagið okkar, skólana, leikskólana, samgöngur, skipulagsmál, íþróttir, þjónustu við eldri borgara og reksturinn. Við kjósum um það hvernig við viljum að okkar daglega líf verði á kjörtímabilinu. Ég hef síðustu daga ferðast vítt og breitt um landið og hitt Sjálfstæðisfólk sem hefur lagt allt í komandi kosningar. Alls staðar finn ég sama kraftinn og sama viljann til að láta verkin tala. Það er bjart yfir Sjálfstæðisflokknum. Það er kraftur í sjálfstæðismönnum og þennan kraft geta kjósendur nú leyst úr læðingi á laugardag. Sjálfstæðisflokkurinn býður fram í sveitarfélögum um allt land. Innan okkar raða er fólk með víðtæka reynslu úr atvinnulífi, skólastarfi, félagsstarfi, rekstri, heilbrigðisþjónustu, íþróttum og sveitarstjórnarmálum, svo eitthvað sé nefnt. Þetta er fólk sem þekkir samfélagið sitt, á í góðu sambandi við aðra íbúa og veit að góð þjónusta verður ekki tryggð með innantómum loforðum heldur ábyrgum rekstri. Reynslan um allt land sýnir að þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft forystu eru sveitarfélög rekin vel og þegar sveitarfélag er vel rekið verða til tækifæri til að bæta þjónustu við íbúana. Þegar reksturinn er laus í reipunum finna íbúarnir einnig fyrir því í formi hærri gjalda og lakari þjónustu. Fullnægjandi þjónusta við íbúana verður aðeins til með ábyrgum rekstri sveitarfélagsins. Breytingar í Reykjavík strax Það skiptir öllu máli að ná fram breytingum í Reykjavík. Höfuðborgin á að vera leiðandi afl fyrir landið allt. Hún á að vera borg fjölskyldna, tækifæra og skilvirkrar þjónustu. Tækifærin í Reykjavík eru á hverju strái, en þrátt fyrir það hafa borgarbúar allt of lengi búið við þungan rekstur, tafir í umferð, lóðaskort – og hreinlega skort á tækifærum. Og nú, rétt fyrir kosningar, tala margir um breytingar. En breytingar koma ekki af sjálfu sér. Það er ekki breyting að skipta enn einu sinni um varadekk undir sama bíl. Það er ekki breyting að greiða atkvæði til þeirra flokka sem hafa á einum eða öðrum tímapunkti lagt sitt af mörkum til þess að tryggja kyrrstöðu í Reykjavík, hvort sem þeir flokkar kannast nú við sinn þátt í því eða ekki. Samfylkingin og hennar fylgitungl hafa stýrt borginni meira og minna í þrjá áratugi. Meirihlutar hafa fallið. Nýir flokkar hafa komið að borðinu, en niðurstaðan fyrir borgarbúa hefur verið sú sama og ekkert hefur breyst. Ein leið er fær til að tryggja raunverulegar breytingar í Reykjavík. Hún er að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Reykjavík þarf nýja forystu. Hildur Björnsdóttir og öflugur listi Sjálfstæðisflokksins eru best til þess fallin að leiða þær breytingar. Þar þarf að taka til í rekstrinum, auka lóðaframboð, lækka álögur, hlusta betur á barnafjölskyldur og gera borgina aftur að stað þar sem framtíðarsýn og framkvæmdakraftur haldast í hendur. Sjálfstæðisflokkurinn tekur afstöðu með fólkinu sem byggir landið. Með heimilunum og með fyrirtækjunum. Með þeim sem vilja vinna, skapa, byggja upp og láta gott af sér leiða. Á laugardaginn bið ég um stuðning við Sjálfstæðisflokkinn, hvar sem þú býrð á landinu. Setjum sveitarfélögin í hendur fólks sem kann að fara vel með traustið. Kjósum Sjálfstæðisflokkinn. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Framlengja áætlunarflug til mánaðamóta Aðsend grein: Sterk sveitarfélög byggjast á ábyrgð Dónaskapur og leiðindi í Síkinu afþökkuð Tara Sif endurgerði gamla mynd í Flórída Varaði Trump við mistökum Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Gerum Reykjavík góða til búsetu á ný Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Mikill munur eftir sveitarfélögum Mest lesið Í gær Í vikunni „Við vorum algerlega búnir á því“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Greiddi sama flugið tvisvar Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Ólík skuldaþróun Segir ákveðna aðila hafa farið langt yfir öll mörk Segir Kristrúnu fara með dylgjur Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Nýjast á mbl.is » Framlengja áætlunarflug til mánaðamóta Aðsend grein: Sterk sveitarfélög byggjast á ábyrgð Dónaskapur og leiðindi í Síkinu afþökkuð Tara Sif endurgerði gamla mynd í Flórída Varaði Trump við mistökum Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Gerum Reykjavík góða til búsetu á ný Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Algerlega óljóst hver tók ákvörðunina Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Fósturforeldri á Suðurnesjum til rannsóknar Mest lesið Í gær Í vikunni „Við vorum algerlega búnir á því“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Greiddi sama flugið tvisvar Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Ólík skuldaþróun Segir ákveðna aðila hafa farið langt yfir öll mörk Segir Kristrúnu fara með dylgjur Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur