Innlent | Morgunblaðið | 21.5.2026 | 7:00 Takk fyrir traustið Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Anton Brink Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Niðurstaða sveitarstjórnarkosninganna er skýr. Sjálfstæðisflokkurinn er sterkasta stjórnmálaaflið á sveitarstjórnarstiginu. Árangurinn er fyrst og fremst kominn til vegna mikillar vinnu undanfarna mánuði, öflugrar grasrótar, sterkra framboða um land allt og skýrs málflutnings sem byggist á ábyrgð, frelsi og að hafa trú á fólkinu í landinu. Sjálfstæðisflokkurinn bauð fram í 34 sveitarfélögum í öllum landshlutum. Alls stigu 596 frambjóðendur fram undir merkjum flokksins. Það eitt og sér segir mikla sögu. Það sýnir breiddina, kraftinn og rótgróna stöðu Sjálfstæðisflokksins í íslensku samfélagi. En kjósendur sögðu líka sína sögu. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 128 kjörna fulltrúa um allt land og jók verulega áhrif sín í byggðum landsins. Af þeim 34 sveitarfélögum þar sem flokkurinn bauð fram fékk Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í 11 sveitarfélögum. Í Kópavogi fékk Sjálfstæðisflokkurinn sína bestu kosningu í tuttugu ár og náðist sögulegur árangur með hreinum meirihluta í fyrsta sinn. Við erum aftur stærsti flokkurinn í Reykjanesbæ, í Vestmannaeyjum og Mosfellsbæ. Í Reykjavík varð einn glæsilegasti sigur flokksins í borginni um árabil. Víða um land var niðurstaðan sú sama og kjósendur völdu að halda áfram þar sem vel hefur tekist, en breyta þar sem þurfti að breyta. Þessi árangur verður enn skýrari þegar hann er settur í samhengi. Atkvæðafjöldi Sjálfstæðisflokksins va r meiri en atkvæði allra ríkisstjórnarflokkanna samanlagt, eða 20.843 atkvæðum meiri. Til samanburðar fékk Miðflokkurinn 19.151 atkvæði í heildina. Sú staðreynd sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn er sú stjórnmálahreyfing sem nýtur víðtækasta traustsins í sveitarfélögum landsins. Ég er afar þakklát öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum. Frambjóðendum sem stigu fram og gáfu kost á sér, sjálfboðaliðunum sem gáfu allan sinn tíma sinn og kraft, fjölskyldum sem stóðu vaktina og síðast en ekki síst kjósendum sem sýndu okkur traust. Niðurstaðan um liðna helgi er upphafið á nýju verkefni. Nú tekur við sú mikilvæga vinna sem við lofuðum að sinna af heilindum og við ætlum að standa undir traustinu. Við ætlum að bretta upp ermar, mæta verkefnunum af festu og sýna í verki að Sjálfstæðisflokkurinn er reiðubúinn að leiða. Í sveitarstjórnum landsins liggja fyrir stór verkefni. Góð þjónusta við íbúana, ábyrgur rekstur, öflug uppbygging og traust atvinnulíf. Við viljum að nærsamfélögin finni fyrir í sínu daglega lífi hverjir halda um stjórnartaumana. Þar eigum við að láta verkin tala. Það er þannig sem traust er endurgoldið og góður árangur verður að varanlegum árangri. Næstu fjögur ár geta orðið gjöful fyrir sveitarfélögin og fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Við mætum þeirri ábyrgð auðmjúk, bjartsýn og ákveðin í að gera betur. Við ætlum áfram að vinna sameinuð fyrir fólkið í landinu. Takk fyrir traustið. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið sýnir meðferð Ísraela á aðgerðasinnunum Sektað fyrir að fara ekki að barnaverndarlögum Aðsend grein: Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Aðsend grein: Takk fyrir traustið 62 ára óþekkjanleg með ljóst hár Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Við viljum finna skjól og öryggi Veik staða slökkviliða á Íslandi Gætu ekki setið á sér í haust ef verðbólga eykst Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Mjög margir hringdu í 112“ Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Hvati til að draga úr framlagi sínu Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Ráðuneytið birtir upplýsingar um frammistöðu nemenda Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Myndskeið sýnir meðferð Ísraela á aðgerðasinnunum Sektað fyrir að fara ekki að barnaverndarlögum Aðsend grein: Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Aðsend grein: Takk fyrir traustið 62 ára óþekkjanleg með ljóst hár Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf Enginn mætti frá ríkisstjórninni Gætu ekki setið á sér í haust ef verðbólga eykst Veik staða slökkviliða á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Mjög margir hringdu í 112“ Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Hvati til að draga úr framlagi sínu Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Ráðuneytið birtir upplýsingar um frammistöðu nemenda Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?