Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ég var ekki alveg áttaður á þessu“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 14.5.2026 | 12:00 „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Jón Gnarr kveðst í samtali við mbl.is ekki hafa verið alveg áttaður á máli tónleikahátíðar á Þingvöllum 20. júní þegar hann sat hjá í atkvæðagreiðslu Þingvallanefndar í marslok. mbl.is/Samsett mynd Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Eins og ég gerði grein fyrir í bókuninni fannst mér þetta dálítið óskýrt og ég sá mér ekki alveg fært að kjósa með þessu vegna þess að ég var ekki alveg áttaður á þessu,“ segir Jón Gnarr, nefndarmaður í Þingvallanefnd, í samtali við mbl.is um afgreiðslu nefndarinnar á komandi tónleikahátíð á Þingvöllum 20. júní þar sem hljómsveitin Kaleo kemur fram ásamt fleiri tónlistarmönnum. Eins og greint var frá hér á mbl.is í vikunni sat Jón hjá við atkvæðagreiðslu nefndarinnar í mars og lét bóka ástæðuna fyrir því í fundargerð þar sem í upphafi bókunar sagði svo: Þar sem mér hefur ekki gefist tími til að yfirfara gögn vegna tónleikanna sé ég mér ekki fært að greiða atkvæði með tillögunni. Þingvellir eru helgur staður í mínum huga. Ég veit ekki hvernig svona viðburður samræmist lögum um þjóðgarða eða skilyrðum UNESCO. Tók hann þó fram, síðar í bókuninni, sem lesa má í heild í fréttinni hér fyrir neðan, að hann vildi alls ekki gera lítið úr aðstandendum og skipuleggjum viðburðarins, óskaði þeim allrar blessunar og að tónleikarnir gengju vel og yrðu okkur öllum til sóma. Frétt af mbl.is Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Hefði viljað meiri upplýsingar Tekur Jón fram við mbl.is að hann leggist alls ekki gegn tónleikunum en hefði viljað hafa meiri upplýsingar. „Þarna eru miklar og viðkvæmar fornminjar til dæmis sem ég hef lengi haft áhuga á og ég veit til dæmis ekkert hvernig þetta kemur út hvað þær snertir,“ segir hann. Þú nefndir skilyrði UNESCO (Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna) í bókuninni, veistu hvar tónleikahaldið stendur með þau í huga? „Mér skilst að þetta rúmist nú innan þeirra reglna, það var bara aðeins of mikið fyrir mig að setja mig inn í þetta. Margir hafa verið að benda á það líka að þetta kunni að hafa fordæmisgildi,“ svarar nefndarmaðurinn. Jón tekur fram að hann voni að uppákoman verði frábær „þó að ég hafi ekki greitt atkvæði með þessu“. Frétt af mbl.is Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Mætir ef stemmningin verður góð Ætlarðu sjálfur að mæta á tónleikana? „Ég veit það ekki, ef það verður góð stemmning fyrir þeim og lausir miðar,“ segir Jón Gnarr að lokum sem óskar aðstandendum og listamönnum tónleikanna á Þingvöllum alls hins besta en kaus sjálfur að sitja hjá við atkvæðagreiðslu Þingvallanefndar þar sem hann hafði ekki náð að setja sig nægilega inn í málið í heild. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » 31 þúsund þurfa að endurgreiða TR Þrír leikmenn Arsenal og fyrirliði United koma til greina „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Telur Kristrúnu draga fylgið niður Hættir störfum í Þorlákshöfn Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Föst í baksýnisspeglinum eða fram á veginn í átt að tækifærunum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Fólk bíður í fjögur ár eftir aðgerð Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar „Við vorum algerlega búnir á því“ „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi Ólík skuldaþróun FÍA neitar því að standa í aðgerðum Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Nýjast á mbl.is » 31 þúsund þurfa að endurgreiða TR Þrír leikmenn Arsenal og fyrirliði United koma til greina „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Telur Kristrúnu draga fylgið niður Hættir störfum í Þorlákshöfn Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Föst í baksýnisspeglinum eða fram á veginn í átt að tækifærunum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Fósturforeldri á Suðurnesjum til rannsóknar Segir Kristrúnu fara með dylgjur Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar „Við vorum algerlega búnir á því“ „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi Ólík skuldaþróun FÍA neitar því að standa í aðgerðum Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Eins og borgin hafi kveikt í húsinu

Share this article