Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.5.2026 | 7:25 Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði um Þingvallatónleika Jón Gnarr sat hjá við afgreiðslu Þingvallanefndar á væntanlegri tónleikahátíð en lagðist ekki gegn hátíðinni og kvaðst vonast til að hún yrði til sóma. Samsett mynd Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þar sem mér hefur ekki gefist tími til að yfirfara gögn vegna tónleikanna sé ég mér ekki fært að greiða atkvæði með tillögunni. Þingvellir eru helgur staður í mínum huga. Ég veit ekki hvernig svona viðburður samræmist lögum um Þjóðgarða eða skilyrðum UNESCO.“ Framangreint er úr bókun Jóns Gnarr af 526. fundi Þingvallanefndar 23. mars þegar nefndin tók fyrir erindi Jakobs Frímanns Magnússonar, eins skipuleggjenda tónleikahátíðar á Þingvöllum 20. júní, en Jakob kynnti dagskrá og skipulag hátíðarinnar þar sem hljómsveitin Kaleo mun stíga á svið auk fjölda annarra listamanna. Á fundinum fór fram umræða um innsend gögn tónleikahaldara og umsagnir en Þingvallanefnd er umsagnaraðili. Gerði nefndin ekki athugasemdir við þær vegalokanir sem lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur gert tillögu um, að því marki sem þær teldust nauðsynlegar til þess að fyrirhugaður viðburður í þjóðgarðinum gæti farið fram. „Nú er hún Snorrabúð stekkur,/og lyngið á Lögbergi helga/blánar af berjum hvert ár,/börnum og hröfnum að leik,“ orti Jónas. Snorrabúð er þó ekki lengur notuð fyrir kvíær við mjöltun og varla breyta tónleikar Kaleo miklu þar. Bláberin koma sennilega líka að vanda hvað sem tónleikahaldi líður enda hefur Þingvallanefnd samþykkt að tónleikarnir fari fram. mbl.is/Ómar Óskarsson Óttast fordæmisgildi Samþykkti nefndin að heimila tónleikana með framlögðum gögnum og ganga til samninga við Tónaþing ehf. og Polarbeat ehf. og var þjóðgarðsverði falið að vinna að samningi og kynna Þingvallanefnd með tölvupósti. Við atkvæðagreiðsluna sat Jón Gnarr hjá en setti fram bókun vegna tónleikanna sem hófst með inngangsorðum þessarar fréttar en niðurlagið var eftirfarandi: „Ég óttast líka að ákvörðunin sé fordæmisgefandi og fleiri svipaðar hugmyndir muni fylgja í kjölfarið. Ég vil alls ekki gera lítið úr aðstandendum og skipuleggjendum viðburðarins og óska þeim allrar blessunar og vona að þessir tónleikar gangi vel og verði okkur öllum til sóma. Ég leggst ekki gegn tillögunni en kýs að sitja hjá við atkvæðagreiðslu.“ Fjallað var um væntanlega tónleika, sem nefndin hefur nú lagt blessun sína yfir, hér á vefnum í marslok, og farið yfir ýmis áhyggjuefni. Frétt af mbl.is Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Jakob Frímann sagðist þá ekki telja ástæðu til að hafa áhyggjur af því að tónleikagestir vanhelguðu staðinn með drykkjuskap og fíflalátum og vísaði í því samhengi til þeirrar dagskrárstefnu sem tónleikahaldarar fylgdu áfram eftir vel heppnaða tónleika í Vaglaskógi síðasta sumar. Jakob Frímann hefur veg og vanda af öllu saman, vanur tónleikahaldi. mbl.is/Birta Margrét Ólíklegt að hátíðin laði að sér dusilmenni „Þetta verður margháttuð dagskrá sem tekur mið af sögu staðarins og menningu þjóðarinnar,“ sagði Jakob þá við mbl.is. Greindi hann frá því að hann hefði þá rætt við alla nefndarmenn Þingvallanefndar auk þjóðgarðsvarðar og farið ítarlega yfir málið. Áfram hélt gamli Stuðmaðurinn og hafði rætt við fleiri. „Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók afar vel á móti okkur Jökli [Júlíussyni, innsta koppi í búri Kaleo] og innsiglaði að þetta mætti verða. En síðan tók við langt og flókið ferli sem lýtur að nánari útfærslum og öllum þessum gæsluþáttum. Þetta er mjög flókið og krefjandi verkefni á þessum helga stað.“ Blúsrokkararnir í Kaleo úr Mosfellsbæ léku fyrir þúsundir í Vaglaskógi í fyrra og munu stíga á sviðið á Þingvöllum 20. júní. mbl.is/Þorgeir Sagði Jakob enn fremur að hátíðin í sumar væri ólíkleg til að laða að sér gesti sem líklegir væru til ósæmilegrar hegðunar. „Við höfum satt að segja ekki áhyggjur af því að þar verði nokkurs konar vanhelgun eða komi til neins sem við þyrftum að iðrast eða skammast okkar fyrir, þvert á móti. Æra okkar sem stöndum að þessu er í húfi og við vitum mætavel að það ber að haga sér þarna eins vel og fallega og kostur er,“ sagði Jakob Frímann Magnússon um það sem í vændum er á Þingvöllum 20. júní. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Aðgangsbeiðni Mílu ítrekað synjað Eitthvað verður að koma á óvart Alvarlega veik og í öndunarvél Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Viðræðum um Grænland miðar vel Segir vopnahléið vera í öndunarvél Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ „Allt ægilega flókið bla bla“ Hvað var hann að gera á Íslandi? Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Andlát: Eyvindur Erlendsson Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Hjón sitt á hvorum listanum „Ég vil svara fyrir mig núna“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Nýjast á mbl.is » Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Aðgangsbeiðni Mílu ítrekað synjað Eitthvað verður að koma á óvart Alvarlega veik og í öndunarvél Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð X26: Oddvitar í Reykjanesbæ mætast Umræðan vekur ugg meðal lækna „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ „Allt ægilega flókið bla bla“ Hvað var hann að gera á Íslandi? Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Andlát: Eyvindur Erlendsson Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Hjón sitt á hvorum listanum „Ég vil svara fyrir mig núna“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn

Share this article