Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fá sigurlaunin 58 árum eftir úrslitaleik

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 14.5.2026 | 19:45 Fá sigurlaunin 58 árum eftir úrslitaleik Aftari röð f.v.: Kristinn Kolbeinsson, Gunnar Ingimundarson, Símon Unndórsson, Gísli Jón Magnússon, Björn Gunnlaugsson, Björn Magnússon, Kári Friðþjófsson, Stefán Aðalsteinsson, Atli Helgason þjálfari. Framri röð f.v.: Ellert Már Jónsson, Sverrir Hjaltason, Ásmundur Hafsteinsson, Árni Guðmundsson, Kristján Hilmarsson, Halldór Pálsson. Á myndina vantar Guðjón B. Hilmarsson og Kristin Inga Sigurjónsson. Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Næstkomandi sunnudag fá Íslandsmeistarar í 5. flokki karla í knattspyrnu afhent gullverðlaun fyrir sigurinn á Íslandsmótinu. Reyndar eru þar ekki á ferðinni Íslandsmeistarar árið 2026, enda sparksumarið nýhafið, heldur Íslandsmeistaralið KR í 5. flokki (12 ára og yngri) árið 1968. KR-ingarnir fengu ekki verðlaunapening þegar þeir urðu meistarar á sínum tíma vegna þess að það tíðkaðist einfaldlega ekki á þeim tíma að KSÍ veitti verðlaunapeninga í yngstu aldursflokkunum. Bikar fyrir liðið var látinn nægja. „Einn úr liðinu 1968 bauð okkur félögunum heim fyrir þremur árum og það var mjög skemmtilegt. Menn fóru að rifja þetta upp og fannst það svolítið súrt að eiga ekki medalíu,“ segir Árni Guðmundsson sem hefur orð fyrir hópnum enda var hann fyrirliði liðsins. Þegar gömlu félagarnir hittust fyrir þremur árum voru þeir sammála um að þeir þyrftu nú að eiga verðlaunapening til minningar um sigurinn á Íslandsmótinu. Fyrst leikmenn fengu ekki verðlaunapeninga frá KSÍ á sínum tíma þá yrðu þeir einfaldlega að ganga sjálfir í málið. „Ekkert gerðist þó í málinu fyrr en nýlega. Halldór Pálsson sem var markvörður liðsins hafði samband við KSÍ og sagði þeim þessa sögu. KSÍ gekk bara í málið og tilkynnti Halldóri skömmu síðar að sextán medalíur væru tilbúnar. Þá fóru menn að ræða um hvað ætti að gera fyrst málið væri komið svona langt.“ Umfjöllun um úrslitaleikina 24. ágúst 1968. Verðlaunaafhendingin fer fram 58 árum eftir að úrslitaleikurinn var leikinn en verðlaunaafhendingin verður aldeilis ekki í kyrrþey. Íslandsmeistararnir verða eftir því sem blaðið kemst næst kallaðir út á völl þegar KR tekur á móti Fram í Frostaskjólinu næstkomandi sunnudag. Tveir úr liðinu eru látnir en flestir liðsmennirnir geta veitt verðlaunum viðtöku við þetta tilefni. „Til stendur að afhenda okkur medalíurnar fyrir leik KR og Fram. Okkur hefur á þessum tímapunkti tekist að ná í langflesta en við verðum væntanlega 10 til 12 sem eigum þess kost að mæta. Það lítur því bara vel út og við erum allir mjög peppaðir enda hefur það hvílt þungt á okkur í 58 ár að hafa ekki fengið medalíu,“ segir Árni sposkur en á honum má heyra að þeir liðsfélagarnir sjá spaugilegu hliðarnar á málinu. Engin hætta er á að einhver úr KR-liðinu þetta sumarið gleymist því fyrirliðinn hélt samviskusamlega bókhald yfir alla leikina hjá KR sumarið 68 og færði þar inn úrslit leikjanna og hverjir spiluðu. Þess má geta að KR hafði betur gegn ÍBV í úrslitum, 4:1, en tvo úrslitaleiki þurfti til að knýja fram úrslit því þeim fyrri lauk 0:0. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Haukar - Njarðvík, staðan er 26:22 Fá sigurlaunin 58 árum eftir úrslitaleik Reykjavík var splunkuný borg í mótun Frá Texas til Íslands Tryggvi var óstöðvandi gegn Real Madrid Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Framfarir eða áframhaldandi stöðnun? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi Fósturforeldri á Suðurnesjum til rannsóknar Segir Kristrúnu fara með dylgjur Segir fasteignagjöld hafa lækkað mest í Kópavogi Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar Telur Kristrúnu draga fylgið niður Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ „Við vorum algerlega búnir á því“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ 31 þúsund þurfa að endurgreiða TR Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Greiddi sama flugið tvisvar Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Haukar - Njarðvík, staðan er 26:22 Fá sigurlaunin 58 árum eftir úrslitaleik Reykjavík var splunkuný borg í mótun Frá Texas til Íslands Tryggvi var óstöðvandi gegn Real Madrid Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Framfarir eða áframhaldandi stöðnun? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Hafa romm meðferðis að fornum sið Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar Telur Kristrúnu draga fylgið niður Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ „Við vorum algerlega búnir á því“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ 31 þúsund þurfa að endurgreiða TR Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Greiddi sama flugið tvisvar Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum

Share this article