Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Valsmenn heiðruðu meistarana frá 1956

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 2.9.2026 | 22:00 Valsmenn heiðruðu meistarana frá 1956 Gunnar, Árni og Páll þakka fyrir móttökurnar á Valsvellinum. mbl.is/Hákon Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Ekki er beinlínis sjálfgefið að heilsan leyfi fólki að fagna 70 ára gömlum Íslandsmeistaratitli í flokki fullorðinna með pomp og prakt. Á dögunum gátu þó þrír úr Íslandsmeistaraliði Vals í knattspyrnu frá 1956 gengið út á Valsvöllinn á Hlíðarenda og tekið við viðurkenningum frá Val. Tilefnið var 70 ára afmæli þessa sigurs Vals á Íslandsmótinu og vettvangurinn var heimaleikur Vals og ÍA í efstu deild karla á sunnudaginn. Árni Njálsson, Gunnar Kristinn Gunnarsson og Páll Aronsson voru þá kallaðir út á völl áður en leikurinn hófst. Kristinn Lárusson, stjórnarmaður í knattspyrnudeild Vals, færði þeim viðurkenningarplatta frá félaginu þar sem nöfn þeirra voru áletruð og afrekið tilgreint: Íslandsmeistarar með Val 1956. Þess má geta að Kristinn varð sjálfur Íslandsmeistari í íþróttinni og var það 42 árum síðar eða þegar ÍBV sigraði árið 1998. Íslandsmeistararnir voru í skemmtilegum sérmerktum treyjum frá Henson eins og sést á myndunum en treyjurnar eru í takt við fatatískuna eins og hún var í sparkheiminum í þá daga. Halldór Einarsson var einmitt á staðnum en ásamt Lárusi Loftssyni afhenti hann Árna, Gunnari og Páli blómvendi frá fulltrúaráði Vals. „Þessir þrír mætu Valsmenn hafa alla tíð sýnt sínu félagi mikinn stuðning á margvíslegan hátt og því var það mikill heiður að hylla þá og þakka þeim fyrir,“ segir í tilkynningu frá Val. Síðasta mark mótsins Úrslitin á Íslandsmótinu 1956 réðust ekki fyrr en í síðustu umferðinni þegar Valur og KR mættust á Melavellinum. Árni, Gunnar og Páll léku allir leikinn en liðin skildu jöfn, 1:1, og stigið dugði Val til sigurs en með sigri hefði KR orðið meistari. „Síðasta mark mótsins réði úrslitum“ var fyrirsögn Morgunblaðsins og er þar vísað til þess að KR-ingar komust yfir í leiknum með marki Harðar Felixsonar og jöfnunarmark Vals réði því úrslitum í mótinu. Vel fór á með Kristni Lárussyni og heiðursgestunum. mbl.is/Hákon „Valsmenn gáfust aldrei upp. Þó þeir næðu ekki hættulegum tækifærum lengi vel, þá reyndu þó einstaklingar í framlínunni að nýta það sem traustir framverðir (Halldór og Páll Aronsson) sendu fram. Úr einni slíkri sendingu – ekki verulega hættulegu upphlaupi – þá fékk Björgvin Daníelsson háa sendingu yfir KR-vörnina og honum tókst að skora með fallegum skalla,“ stóð í grein blaðsins um lokaleikinn hinn 25. september 1956 en fjöldi áhorfenda fylgdist með leiknum. Árni lék 21 A-landsleik fyrir Íslands hönd í knattspyrnunni samkvæmt KSÍ og Gunnar lék sjö og skoraði eitt mark. Tíu árum eftir sigurinn á Íslandsmótinu, eða árið 1966, varð Gunnar Íslandsmeistari í skák. Ásamt Árna, Gunnari, Páli og Björgvini markaskorara léku eftirtaldir lokaleikinn gegn KR: Hilmar Magnússon, Einar Halldórsson, sem var fyrirliði, Ægir Ferdinandsson, Sigurður Sigurðsson, Björgvin Hermannsson, Magnús Snæbjörnsson og Halldór Halldórsson. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Harry Kane fór mikinn Þyngsta refsing í sögu NBA Yfir þúsund vörur lækka í verði hjá IKEA „Alltaf vitað að ég ætti við vandamál að stríða“ Valsmenn heiðruðu meistarana frá 1956 Umræðan Meiri umræðu um menntamál Búverkin bíða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Hámarksrefsing verði tvöfölduð Ísland dregist aftur úr í netöryggi Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Harry Kane fór mikinn Þyngsta refsing í sögu NBA Yfir þúsund vörur lækka í verði hjá IKEA „Alltaf vitað að ég ætti við vandamál að stríða“ Valsmenn heiðruðu meistarana frá 1956 Umræðan Meiri umræðu um menntamál Búverkin bíða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Markaðurinn sýndi engin viðbrögð „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Kerlínan nú rekin með 95% afköstum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article