Jón Erik Sigurðsson er búinn með fyrri ferðina í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum. Hann var í 38. sæti á tímanum 1:21,61. 77 keppendur hófu leik, þar af voru átta sem ekki tókst að klára fyrri ferðina. Jón Erik í fyrri ferðinniImago Jón Erik var 7,98 sekúndum á eftir þeim hraðasta, norska Brasilíumanninum Lucas Pinheiro Braathen. Þrír Svisslendingar röðuðu sér svo í næstu þrjú sæti; Marco Odermatt, Loic Meillard og Thomas Tumler. Í seinni ferðinni fara fyrstu 30 úr þeirri fyrri niður í öfugri röð þannig að Braathen skíðar 30. í röðinni. Eftir það er farið eftir sætum svo Jón Erik mun vera 38. í rásmarkinu. Bein útsending frá seinni ferðinni hefst 12:20 á RÚV 2 .